Fréttablaðið - 14.05.2005, Síða 6
6 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
Sænska söng- og leikkonan Monica Zetterlund:
Lést í eldsvo›a í Stokkhólmi
Könnun nemenda við Háskólann í Reykjavík:
Tap af kennitöluflakki á annan milljar›
KENNITÖLUBRASK Sjö af hverjum tíu
fyrirtækjum hafa borið fjárhags-
legan skaða af kennitöluflakki sam-
kvæmt könnun nemenda í við-
skiptafræði við Háskólann í Reykja-
vík. Þar af hafði fjórðungur þeirra
fengið að kenna á kennitöluflakki
sex sinnum eða oftar svo fjárhags-
legur skaði hlytist af. Aðeins tvö af
hverjum tíu fyrirtækjum sem spurð
voru í könnuninni sögðu kennitölu-
flakk ekki vera alvarlegt vandamál
í íslensku atvinnulífi.
Alls bárust svör frá 354 fyrir-
tækjum og þau þeirra sem orðið
höfðu fyrir tjóni námu það svo að
þau hefðu samtals tapað rúmlega
einum og hálfum milljarði vegna
kennitöluflakks á síðustu fimm
árum.
Samtök iðnaðarins hefja nú her-
ferð gegn kennitölubraski en það
var álit flestra sem þátt tóku í
könnuninni að þörf væri á frekari
reglu- eða lagasetningu til að koma
í veg fyrir kennitöluflakk. - jse
Um flúsund aldra›ir
deila herbergjum
Ekki er hægt a› búast vi› endurbótum á gömlum hjúkrunarr‡mum nema
stórauknir fjármunir fáist til framkvæmda. fió eru öll n‡ r‡mi bygg› me› fla›
a› augnami›i a› flar geti fólk veri› út af fyrir sig.
ALDRAÐIR Um 950 aldraðir einstak-
lingar búa í herbergi með öðrum á
hjúkrunarstofnunum og eru þá
frátalin hjón og sambúðarfólk.
Þetta kemur fram í svari heil-
brigðisráðherra
við fyrirspurn
Björgvins G. Sig-
urðssonar, þing-
manns Samfylk-
ingarinnar, á Al-
þingi. Víða í þeim
löndum sem við
viljum bera okkur
saman við gildir
löggjöf sem bann-
ar fjölbýli á öldrunarstofnunum
með þeim rökstuðningi að það
stríði gegn grundvallarreglu um
friðhelgi einkalífsins.
Ef ná á þeim áfanga hér á landi
þarf að kosta til 7-9 milljörðum og
miðað við þann tæpa milljarð sem
varið er í framkvæmdir í þessum
málaflokki árlega tæki langan
tíma að leiðrétta þetta ástand,
segir í svari ráðherra.
Ólafur Ólafsson, formaður
Landssambands eldri borgara,
segir ástandið slæmt, sérstaklega
á eldri stofnunum. Samkvæmt út-
tekt sem nefnd á vegum Félags
eldri borgara
gerði árið 2004
virðast þó ný við-
mið gilda þegar
nýjar stofnanir
eru byggðar en
þar búa 73% ein-
staklinga í einbýli.
A ð s p u r ð u r
hvort úttekt hafi
verið gerð á vilja
eldri borgara til þess að vera í ein-
býli segir Ólafur að slík úttekt
hafi ekki verið gerð nýlega en síð-
ast þegar það var gert lýsti yfir-
gnæfandi meirihluti einstaklinga
því yfir að helst vildu þeir vera út
af fyrir sig. Ólafur gerir sterklega
ráð fyrir að svo sé enn. Eins tekur
Ólafur sérstaklega fram að auk
þess sem margir þurfi að deila
stofum með bláókunnugu fólki sé
víða mannekla sem bitni á þjón-
ustunni.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra sagði í samtali við blaða-
mann að ekki væri hægt að búast
við því að hægt
yrði að ráðast í
endurbætur á
gömlum stofnun-
um. Aðaláhersla
væri lögð á það
núna að öll ný
hjúkrunarrými
væru einbýlis-
rými og sökum
þess hve biðlistar
væru langir þyrfti að verja þess-
um fjármunum í nýbyggingar.
Mun meiri peninga þyrfti í geir-
ann ef hægt ætti að vera að gera
endurbætur á gömlum rýmum.
Samstarfssamningur væri í gildi
við Landssamband eldri borgara
og stefnt að því að fjölga einbýl-
um á öldrunarstofnunum skref
fyrir skref.
oddur@frettabladid.is
Danska þingið:
Vill draga úr
gosdrykkju
DANMÖRK Meirihluti er fyrir því í
danska þinginu að gefa út opinbera
tilskipun þess efnis að ungmenni
undir 18 ára aldri eigi ekki að
drekka meira en hálfan lítra af gos-
drykkjum á viku.
Heilbrigðisyfirvöld telja þetta
mikilvægt skref í baráttu gegn
gegndarlausu gosþambi danskra
barna og unglinga. Kannanir sýna
að 80 af hundraði þeirra neyta
sykurs í óhófi og megnið af honum
innbyrða þau í formi gosdrykkja.
Til samanburðar sýna kannanir að
íslenskir unglingar á aldrinum 15-
19 ára drekka að meðaltali hálfan
lítra af gosi á dag. ■
Alþýðusambandið:
Vill áminna
Kínverja
MANNRÉTTINDI Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
hefur ritað Ólafi Ragnari Grímssyni
forseta bréf vegna heimsóknar hans
til Kína og lýst áhyggjum sínum af
stöðu mannréttindamála í Kína.
Grétar vill jafnframt að forsetinn
komi þessu á framfæri við kínversk
stjórnvöld.
Í bréfi sínu lýsir Grétar einkum
áhyggjum af því að forystumenn
frjálsra stéttarfélaga hafi verið
fangelsaðir og launafólki bannað að
nota verkföll til að knýja fram
kjarabætur. - bþg
Norska ríkisstjórnin:
Sker ni›ur fé
til hermála
NOREGUR Norska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að skera niður
fjárframlög til hermála á þessu
ári um nærri sex milljarða ís-
lenskra króna.
Ákvörðunin er tekin í ljósi
þess að ekki alls fyrir löngu kom
í ljós að hermálayfirvöld fóru
gróflega fram úr fjárheimildum
á síðasta ári og nam umfram-
keyrslan um ellefu milljörðum
króna. Fengu yfirmenn hersins
og varnarmálaráðherrann held-
ur bágt fyrir en héldu embættum
sínum engu að síður. ■
edda.is
„Skáldið er í ham
... Bítlaávarpið er
skemmtileg saga,
stráksleg og gosaleg í
sprúðlandi stílnum.“
Páll Baldvin Baldvinsson,
DV
„Mikið vor og
glettni í þessari bók ...
skemmtilestur.“
Gauti Kristmannsson, RÚV
Komin
í kilju
Tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna
2004
5. sæti
Skáldverk – kiljur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
4. – 10. maí
www.plusferdir.is
N E T
Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
á Elimar í 7 nætur.á Pil Lari Playa í 7 nætur.
Verð frá 35.800 kr.*
Portúgal 13. júní, 11. júlí og 1. ágúst
48.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 34.930 kr.*
Mallorca 1. júní, 13. júlí og 10. ágúst
46.730 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
Verð frá 39.560 kr.*
Costa del Sol
9. júní, 7. júlí og 18. ágúst
49.830 kr. ef 2 ferðast saman.
á Res Madrid í 7 nætur.
Verð frá 46.620 kr.*
Feneyska Rivieran
1. júní, 6. júlí og 17. ágúst
63.620 kr. ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar.
*Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
Eiga flingmenn a› halda
flingsæti sínu ef fleir skipta
um flokk á kjörtímabilinu?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar flú á leik í Íslands-
mótinu í fótbolta?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
79,8%
20,2%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
SVÍÞJÓÐ Hin heimsþekkta sænska
söng- og leikkona Monica
Zetterlund fórst í eldsvoða í Stokk-
hólmi í fyrradag.
Eldur kom upp í íbúð hennar í
miðborg Stokkhólms og var Zett-
erlund látin þegar slökkvilið kom á
vettvang. Hún var fötluð og bundin
hjólastól síðustu ár ævinnar.
Monica Zetterlund sló í gegn
sem djasssöngkona skömmu fyrir
1960, þá tæplega tvítug, og söng sig
inn í hug og hjörtu djassunnenda
um allan heim. Hún söng meðal ann-
ars með heimsfrægum djassistum á
borð við Thad Jones, Bill Evans og
Louis Armstrong. Sömuleiðis naut
hún mikillar hylli í heimalandi sínu
sem leikkona og lék bæði í kvik-
myndum og sjónvarpi. Hún kom til
Íslands í lok áttunda áratugarins og
hélt tónleika ásamt Pétri Östlund og
fleirum.
Meðfædd hryggskekkja og slys
sem Zetterlund varð fyrir sem barn
batt enda á feril hennar sem
leikkonu en hún hélt áfram að
syngja þrátt fyrir að vera komin í
hjólastól. Síðasta plata hennar, Bill
Remembered, kom út fyrir fimm
árum. Monica Zetterlund var 67 ára
gömul þegar hún lést. ■
MONICA ZETTERLUND Var dáð djass-
söngkona víða um heim á sjöunda
og áttunda áratug síðustu aldar.
ÍBÚAR Á GRUND Auka þarf fjármagn ef fækka á öldruðum sem þurfa að deila herbergi með ókunnugum.
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
ÓLAFUR
ÓLAFSSON
JÓN
KRISTJÁNSSON
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Könnun nem-
enda við Háskólann í Reykjavík leiddi í ljós
að kennitöluflakk skaðar sjö af hverjum tíu
fyrirtækjum fjárhagslega.