Fréttablaðið - 14.05.2005, Side 12
12 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
Aldurshnignun Evrópu
Spár um lýðfræðilega
þróun Evrópu á næstu 45
árum benda til þess að
þrátt fyrir innflytjenda-
straum muni íbúum
fækka og hlutfall aldr-
aðra stórhækka.
Valdas Adamkus, forseti Litháens,
sagði í stefnuræðu sinni fyrir
skemmstu að þjóðin stæði frammi
fyrir þremur stórum áskorunum.
Ein þeirra væri „að stöðva út-
dauða þjóðarinnar“.
Þessi orð Litháensforseta end-
urspegla þær áhyggjur sem evr-
ópskir ráðamenn hafa af lýð-
fræðilegri þróun í löndum álfunn-
ar. Skýrslur sem stofnanir á borð
við Sameinuðu þjóðirnar, Evrópu-
ráðið og Evrópusambandið hafa
birt á síðustu misserum benda all-
ar í sömu átt: Mikil lækkun fæð-
ingartíðni stefnir í að valda tals-
verðri fólksfækkun í álfunni á
næstu áratugum. Minni fæðingar-
tíðni, ásamt hækkandi meðalaldri,
mun einnig valda miklum breyt-
ingum á aldurssamsetningu Evr-
ópubúa, sem mun verða mikil
prófraun fyrir félagsleg kerfi
landanna sem í hlut eiga. Þótt inn-
flytjendur sem streyma til hinna
ríkari landa álfunnar dragi að
nokkru leyti úr þessum vandamál-
um skapa þeir jafnframt önnur
ekki síður erfið úrlausnarefni.
Í Litháen, sem og í mörgum
öðrum fyrrverandi austantjalds-
löndum, eru horfurnar sérstak-
lega alvarlegar þar sem þar fer
snarlækkuð fæðingartíðni saman
við fólksflótta; unga fólkið flykk-
ist úr landi til að leita atvinnu og
betri lífskjara í hinum ríkari lönd-
um álfunnar. Hundruð þúsunda
manna, mest ungt fólk, hafa flust
frá Litháen frá því landið endur-
heimti sjálfstæði sitt árið 1991.
Straumurinn hefur að sögn frekar
aukist en hitt frá því landið fékk
aðild að Evrópusambandinu fyrir
ári, þar sem aðildin gerir Litháum
auðveldara að fá atvinnuréttindi í
öðrum ESB-löndum. Reiknað
hefur verið út að búast megi við
því að íbúafjöldi Litháens falli úr
3,5 milljónum nú í um þrjár millj-
ónir árið 2050. Horfurnar eru síst
skárri í hinum Eystrasaltslöndun-
um; reiknað er með að íbúatala
Lettlands muni á sama tímabili
dragast saman um 19,2 prósent og
Eistlands um 16,6 prósent.
Innflytjendur hægja á fólks-
fækkuninni
Íbúum Evrópu hefði fækkað um
4,4 milljónir á tímabilinu 1995 til
2000, sem samsvarar um 1,2 pró-
sentustigum, ef ekki hefðu fimm
milljónir innflytjenda streymt
þangað á þessu
tímabili, að því er
segir í nýjustu
skýrslu Samein-
uðu þjóðanna um
hag- og félags-
þróun í heiminum
(UN World Eco-
nomic and Social
Survey). Íbúum
Þýskalands, fjöl-
mennasta lands
álfunnar utan
Rússlands, hefði
farið fækkandi
allt frá árinu 1970 ef engir hefðu
verið innflytjendurnir. Eurostat
spáir því að íbúatala Þýskalands
muni, þrátt fyrir áframhaldandi
innflytjendastraum, lækka um 9,6
prósent fram til ársins 2050, niður
í 74,6 milljónir.
Jafnvel þótt að meðaltali komi
um 600.000 innflytjendur árlega til
Evrópu umfram það fólk sem
flytur þaðan, eins og skýrslu-
höfundar SÞ reikna með að gerist á
árabilinu 2000-2050, eru samt sem
áður horfur á að heildaríbúafjöldi
Evrópulandanna dragist saman
um 96 milljónir á þessu tímaskeiði.
Á sama tíma fjölgar fólki í öllum
hinum heimsálfunum, reyndar
misört, mest í Asíu og Afríku.
Samkvæmt útreikningum hag-
stofu Evrópusambandsins,
Eurostat, mun innflytjenda-
straumur til Evrópusambands-
landanna valda því að íbúunum
fjölgi tímabundið um rúmlega
þrettán milljónir á næstu 20
árum. Þannig muni íbúum núver-
andi ESB-landanna 25 fjölga í 470
milljónir árið 2025. Næstu 25 ár
þar á eftir mun þeim fækka aftur
um 20 milljónir að sögn Eurostat,
en þessar tölur eru alveg í sam-
ræmi við útreikninga SÞ sem áður
er vitnað til. Hlutfall fólks sem er
yfir 65 ára aldri mun líka hækka
mikið, úr 16,4 prósentum nú í rétt
tæp 30 prósent árið 2050.
„Hvort sem okkur líkar betur
eða verr mun rík Evrópa með
síminnkandi hlutfall íbúafjölda
heimsins alltaf verða segull á inn-
flytjendur, og reyndar þurfa á
þeim að halda,“ sagði Terry Davis,
forseti Evrópuráðsins, á ráð-
stefnu í síðasta mánuði um lýð-
fræðilegar breytingar í álfunni, í
kjölfar birtingar skýrslu um sama
efni sem unnin var á vegum stofn-
unarinnar.
Davis skoraði á ríkisstjórnir
Evrópulanda að grípa til ráðstaf-
ana til að ýta undir barneignir
Evrópubúa. Allt of margt í vinnu-
markaðsreglum, skattkerfi
o.s.frv. væri íþyngjandi fyrir fólk
sem vildi samræma atvinnuframa
og barneignir. Þessu yrði að
breyta.
Ört „gránandi“ þjóðfélög
Hlutfall íbúa ESB-landa á aldrin-
um 15 til 64 ára, virkasta atvinnu-
aldrinum, mun að líkindum lækka
úr 67,2 prósentum árið 2004 í 56,7
prósent árið 2050, samkvæmt út-
reikningum Eurostat. Það sam-
svarar samdrætti um 52 milljónir
manna á atvinnualdri. Fyrirsjáan-
legt er að þessi samdráttur verði
mikil byrði á vinnandi íbúa álf-
unnar, sem munu þurfa að fjár-
magna heilbrigðisþjónustu og líf-
eyriskerfi samfélaga sem eru
sífellt að eldast. Reiknað er með
að hæst verði hlutfall aldraðra á
Spáni, 35,5 prósent allra íbúanna,
árið 2050. Reiknað hlutfall vinn-
andi hluta íbúanna á þann hluta
sem þiggur velferðarþjónustu
verður þá 93:100 á Spáni, sam-
kvæmt útreikningi SÞ. Ef engir
kæmu innflytjendurnir til Spánar
á þessu tímabili yrði þetta hlutfall
100:100 samkvæmt sömu spá. Það
þýðir að hver vinnufær einstak-
lingur myndi í raun þurfa að fjár-
magna framfærslu eins barns eða
eftirlaunaþega.
Samkvæmt fyrrnefndri
skýrslu Evrópuráðsins eru íbúar
Evrópulandanna nú þegar lang-
elstir allra landa heims. Meðalald-
ur Evrópubúa er meira en tíu
árum hærri en meðaltal alls
heimsins.
„Fólksfækkunin sýnir hve
mikilvægt það er að ríkisstjórn-
irnar taki á vandanum sem fylgir
Stangarhyl 3 · 110 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri Sími: 461 1099
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Súpersól til Portúgal
8. júní
frá kr. 39.995
Í Algarve fer allt saman sem prýða má gott frí. Því hafa þær þúsundir Íslendinga sem
heimsótt hafa þennan heillandi áfangastað á vegum Terra Nova komist að. Nú bjóðum
við frábært tilboð til að njóta alls þess sem þessi heillandi staður hefur að bjóða.
Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
25. maí - 4 sæti laus frá kr. 39.995 í 2 vikur.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð, 8. júní í viku.
Kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð, 8. júní í viku.
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjaví
Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Bo
Xilai, utanríkisviðskiptaráðherra Kína,
undirrituðu í síðustu viku samkomulag
um að hefja undirbúning að fríverslun-
arsamningi milli þjóðanna. Ísland er
eina landið á norðurhveli sem hefur
gert slíkt samkomulag við Kína.
En til hvers eru fríverslunarsamningar
gerðir?
Breytingar á sviði alþjóðastjórnmála og
framfarir í tækni, flutningum og fjar-
skiptum hafa dregið úr áhrifum fjar-
lægða og landamæra á viðskipti, opnað
lönd og álfur og gefið einstaklingum og
fyrirtækjum nýja möguleika til athafna.
Þegar segja má að markaðssvæði fyrir-
tækja nái um allan heim er nauðsynlegt
að tryggja þeim aðgang í fjarlægum
löndum á jafnréttisgrundvelli.
Á vegum Fríverslunarsamtaka Evrópu,
EFTA, hafa verið gerðir fríverslunarsamn-
ingar við fjölda ríkja á síðasta áratug.
Samningarnir veita íslenskum útflytj-
endum tollfrjálsan aðgang að mörkuð-
um í viðkomandi löndum. Það er sér-
stakt einkenni samninganna að fríversl-
unin nær til fisks og fiskafurða eins og í
viðskiptum milli EFTA-landanna en
gagnstætt því sem er til dæmis í samn-
ingum Íslands við ESB þar sem einung-
is var samið um tollaívilnanir þannig að
ýmsar fisktegundir og sjávarafurðir bera
misháa tolla við útflutning til ESB.
Fríverslunarsamningar EFTA við lönd utan
ESB líkjast þeim samningum sem gerðir
hafa verið á milli EFTA-ríkjanna sjálfra,
það er þeir eru um fríverslun með iðnað-
arvörur, unnar landbúnaðarvörur, fisk og
fiskafurðir. Í tengslum við þessa samn-
inga eru sérstakir tvíhliða samningar á
milli einstakra EFTA-ríkja og hvers sam-
starfslands fyrir sig um verslun með
óunnar landbúnaðarvörur. Auk þess að
fella niður tolla og innflutningstakmark-
anir ná fríverslunarsamningar EFTA einnig
til fjölmargra atriða, svo sem samkeppn-
isreglna, hugverkaréttar og ríkisstyrkja, og
innihalda ákvæði um að aðilar samning-
anna geti þróað samskipti sín á öðrum
sviðum svo sem um þjónustuviðskipti.
Tryggi vi›skipti á jafnréttisgrundvelli
FBL GREINING: FRÍVERSLUNARSAMNINGAR
Nefnd sem skipuð var til að gera úttekt
á áhrifum gengishækkunar á íslenskan
sjávarútveg hefur lokið störfum. Arnar
Sigmundsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka fiskvinnslustöðva, hefur lengi beð-
ið niðurstöðunnar.
Vantar beinar tillögur
Skýrslan er góð í alla staði og vel
unnin eins og við var að búast. Þar
kemur fram að staða greinarinnar í
heild er bærileg en það sem ég
sakna og átti von á er tillögur til að-
stoðar þeim vinnslufyrirtækum í
sjávarútvegi sem eru og hafa verið
að berjast í bökkum. Ég hafði gert
mér vonir um slíkt en svo er ekki.
Krónan byrjuð að gefa eftir
Nefndin metur það svo að þar sem
krónan hefur gefið eftir allra síðustu
daga sé vart tilefni til að ætla að
staðan verði verri en hún var þegar
gengið stóð sem hæst. Auðvitað veit
enginn hvert framhaldið verður en
það er svekkjandi að meðan krónan
hefur styrkst hefur verðbólga verið
há. Það er fyrst núna sem gripið
hefur verið til aðgerða varðandi
breytingar á vísitölunni.
Staðfestir grun manna
Skýrslan staðfestir að greinarnar inn-
an sjávarútvegsins standa misjafn-
lega, eins og reyndar allra útflutn-
ingsfyrirtækja í landinu. Fiskvinnslan
stendur lakar en útgerðin en í mörg-
um tilfellum er um eitt og sama
fyrirtæki að ræða og það jafnast út.
Hátt gengi kemur við öll fyrirtæki
sem í útflutningi standa og því lá
fyrir að ef í aðgerðir hefði verið farið
hefði það þurft að ná yfir öll fyrir-
tæki í útflutningi.
ARNAR SIGMUNDSSON framkvæmdastjóri
samtaka fiskvinnslustöðva.
Tillögur vantar
NÝ SKÝRSLA UM GENGISÁHRIF
Á SJÁVARÚTVEGINN
SPURT & SVARAÐ
AUÐUNN ARNÓRSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
LÝÐRÆÐISLEG ÞRÓUN
EVRÓPU
„GAMLA EVRÓPA“ Franskur afi með barnabarn í almenningsgarði í París. Hugtakið
„gamla Evrópa“ hefur fengið nýja merkingu nú þegar stórir árgangar Evrópubúa eru að
komast á eftirlaun en færri og færri börn fæðast í álfunni.
,, Við verð-
um að
stöðva út-
dauða þjóð-
arinnar,“
sagði Lithá-
ensforseti í
stefnuræðu
sinni.