Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 19
19LAUGARDAGUR 14. maí 2005
Bur›arás og KB banki
myndu hagnast verulega ef
Old Mutual gerir tilbo› í
fyrirtæki›
Skandia gæti orðið yfirtekið af Old
Mutual, suður-afrísku tryggingarfé-
lagi sem starfar meðal annars einnig í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Fjár-
málasérfræðingar álíta að Old Mutual
sjái veruleg kauptækifæri í gegnum
þann hluta Skandia sem starfar á
breskum markaði. Stjórnir félaganna
eiga í viðræðum um mögulegt yfir-
tökuboð Old Mutual sem gæti hljóðað
að hámarki upp á 50 sænskar krónur í
hlut. Gengi Skandia hækkaði um 20
prósent við tíðindin og fór upp í tæp-
ar 42 sænskar krónur á hlut.
Ekki er talið útilokað að aðrir fjár-
festar vilji gera tilboð í Skandia. Þar
hafa nöfn Burðaráss og KB banka,
sem eru meðal tíu stærstu hluthafa í
Skandia, dúkkað upp ásamt Cevian
Capital. Burðarás á 1,4 prósent í
Skandia og hefur að auki rétt til að
kaupa tvö prósent til viðbótar. KB
banki áætlar að gengishagnaður
Burðaráss, á 2. ársfjórðungi, sé orð-
inn um 2,6 milljarðar króna með
kaupréttinum. KB banki er 6. stærsti
hluthafinn í Skandia með sinn 2,5 pró-
senta hlut og gæti gengishagnaður
bankans verið um 1,9 milljarðar
króna á ársfjórðungnum. Þessar tölur
myndu svo hækka enn frekar ef til-
boðið hljóðaði upp á 50 krónur á
hvern hlut. - eþa
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.051
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 415
Velta: 3.430 milljónir
+1,33%
MESTA LÆKKUN
Hugsanleg yfirtaka á Skandia
Actavis 41,90 +3,20% ... Atorka 6,00 -
0,83% ... Bakkavör 34,00 +1,19% ... Burðarás 14,50 +3,57% ... FL
Group 14,30 -0,35% ... Flaga 4,95 -2,17% ... Íslandsbanki 13,15 +0,77%
... KB banki 530,00 +1,34% ... Kögun 63,00 +0,80% ... Landsbankinn
16,80 +0,60% ... Marel 55,50 -0,36% ... Og fjarskipti 4,26 +0,71% ...
Samherji 12,10 – ... Straumur 11,65 +2,19% ... Össur 79,50 -
Burðarás 3,57%
Actavis 3,20%
Straumur 2,19%
Flaga -2,17%
Atorka -0,83%
Marel -0,36%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
RÓBERT WESSMANN Forstjóri Actavis vill
ekki gefa upp hvaða félag sé næst á inn-
kaupalistanum.
Actavis a›
kaupa félag
Viðskipti voru stöðvuð með bréf
Actavis klukkan rúmlega ellefu í
gærmorgun eftir að bréfin höfðu
hækkað snögglega.
Klukkutíma síðar birtist frétt
frá félaginu þar sem fram kom að
Actavis væri langt komið í samn-
ingaviðræðum um kaup á öðru
fyrirtæki.
Að sögn Róberts Wessmann,
forstjóra Actavis, hefðu viðskipti
ekki verið stöðvuð vegna þessa
undir venjulegum kringumstæð-
um en í ljósi hækkunarinnar og í
samráði við Kauphöll Íslands
hefði það nú verið gert.
„Við erum alltaf með fyrirtæki
í skoðun. Sum eru komin lengra í
ferli en önnur,“ segir Robert.
Hann vill ekki að svo stöddu láta
neitt uppi um það um hvaða félag
sé að ræða að þessu sinni.
- þk
ERLENDUR HJALTASON, FORSTJÓRI EXISTA
Meiður fjárfestingarfélag hefur breytt heiti
sínu í Exista í samræmi við breyttar áhersl-
ur í rekstrinum.
Exista ver›ur
til úr Mei›i
Fjárfestingarfélagið Meiður hef-
ur breytt nafni sínu í Exista ehf. Í
tilkynningu frá félaginu segir að
þetta sé liður í því að „aðlaga
ásýnd félagsins að breyttum
áherslum.“
Félagið er í eigu Bakkabræðra,
KB banka, SPRON, Sparisjóða-
bankans, Sparisjóðs Keflavíkur
og fleiri sparisjóða. Stærstu eign-
ir Exista eru í KB banka og
Bakkavör. Eigið fé félagsins var
um 27 milljarðar um síðustu ára-
mót.
- eþa
GÓÐ FJÁRFESTING Burðarás hefur sennilega
hagnast um 2,6 milljarða á 2. ársfjórðungi af
fjárfestingu í Skandia. Old Mutual hefur hug á
að gera tilboð í Skandia sem bæði Burðarás og
KB banki eiga verulegan eignarhlut í.