Fréttablaðið - 14.05.2005, Side 28
Öryggi
Áður en lagt er í hann með fellihýsið aftan í bílnum er ágætt að yfirfara
öll öryggisatriði. Athuga hvort speglarnir á bílnum séu nægilega stórir
til að sjá aftur fyrir fellihýsið og hvort ljósatengillinn virki. [ ]
REYNSLUAKSTUR
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Partur–Spyrnan–Lyftarar
Eldshöfða 10
s. 585 2500 og 567 8757
TRIO
G O L F H J Ó L
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Súðavogur 6
Bakkmyndavélin er toppurinn
Nissan Murano sver sig óneitanlega í ætt við frændur sína í lúxusborgarjeppaflokknum.
Nissan Murano er lúxusborg-
arjeppi með öllu því sem fylgir.
Hann er afar aðgengilegur og
þægilegur í akstri og umgengni
en bakkmyndavélin hlýtur þó
að teljast aðall bílsins.
Það verður seint sagt að hann biðjist
afsökunar á sjálfum sér Nissan
Muranoinn. Hann ber með sér nýja
strauma í útliti og svipar reyndar til
nokkurra annarra borgarjeppa af
lúxusgerð með breiðan skrokk og
langt bil á milli fram- og afturhjóla
en séreinkenni hans er svipurinn að
framan með áberandi stálgrilli.
Þegar inn er komið taka á móti
manni leðurklædd sæti sem flytjast
fram þegar lyklinum er stungið í
svissinn og aftur þegar hurðin er
opnuð, til þess að gera ökumanni
þægilegar um vik að setjast inn í
bílinn. Minni er í lykli þannig að
tveir notendur geta haft hvor sína
stillingu, ekki bara á bílstjórasæti
heldur einnig hliðarspegli. Fleira
mætti telja, svo sem öflugar hljóm-
flutningsgræjur og mörg og rúm-
góð geymsluhólf, til dæmis djúpt
hólf milli framsæta þar sem má
koma fyrir fartölvu upp á rönd.
Það flottasta í bílnum er þó tví-
mælalaust bakkmyndavélin sem
virkar þannig að þegar sett er í
bakkgír birtist svæðið fyrir aftan á
skjá í mælaborðinu. Þar koma
einnig upp línur sem sýna stefnu
bílsins og eru grænar ef nóg pláss
er fyrir aftan, verða svo gular og
loks rauðar. Bakkmyndavélin er
gríðarlega þægileg þegar ökumaður
hefur komist upp á lag við að nota
hana. Þessi bakkmyndavél mun ein-
ungis vera til í Nissan-bílum og er
fáanleg sem aukabúnaður í
nokkrum öðrum bílum en Murano.
Umgengni við bílinn er þægileg
og má þar nefna handföng til að
leggja niður bök á aftursætum fyrir
innan afturhlerann þannig að ekki
þarf að fara inn um afturhurðina
fyrir þá aðgerð, og bökin jafnast við
gólfhæð þegar búið er að leggja þau
fram
Muranoinn er með þriggja lítra
vél og skortir ekki kraft. Sjálfskipt-
ingin er stiglaus X-Tronic með sex
gíra handskiptimöguleika og bíllinn
er búinn ESP+ stöðugleikastýringu.
Hann er því afar þýður í akstri og
liggur vel á vegi. Nissan Murano er
sannkallaður dekurbíll og verður að
teljast vel samkeppnisfær við sína
líka í verði. steinunn@frettabladid.is
NISSAN MURANO
Vélar
stærð Hestöfl Verð
3 l 234 Sjálfskiptur 4.990.000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA