Fréttablaðið - 14.05.2005, Qupperneq 32
6
ATVINNA
!
" #$%
#&
#'#$%
#&
#()
**+*!,--.+
-, / 0
!
"
" #
$
%
"
"&
'
(
)
!
'
"
**+,-./00
!
"
#
$
$% &
Véla- og verka-
menn óskast
S.S. verktak ehf. óskar eftir að ráða
véla- og verkamenn til starfa.
Mikil vinna framundan.
Upplýsingar fást í síma 893-3915.
Sjálfboðaliða vantar til
Sambíu og Mosambík
Barátta gegn alnæmi, vinna með götubörnum.
Kennsla og samfélagsþjónusta.
14 mánaða prógramm, 6 mánaða þjálfun í Noregi.
Frítt fæði og húsnæði, möguleikar á námsstyrk.
Fundur framundan í Reykjavík.
Nánari upplýsingar
sidsel@humana.org
0047 61 26 44 44
www.humana.org
www.drh-norway.org
Brúarskóla vantar kennara í eftirtaldar stöður:
Heimilisfræðikennsla, matargerð, húshald og
fleira tengt rekstri heimilis, 60% staða
Textílkennsla og vefnaður, fullt starf
Brúarskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Skólinn
er staðsettur í Öskjuhlíðinni einni af náttúruperlum Reykjavíkur
og var stofnaður haustið 2003 og er því í mótun og þróun. Í
skólanum eru nemendur sem eiga í alvarlega geðrænum,
hegðunar- og félagslegum erfiðleikum. Nemendur skólans
hafa allir verið áður í almennum grunnskólum þar sem reynt
hefur verið til hins ýtrasta að mæta námsþörfum þeirra. Hlut-
verk skólans er að mæta þörfum nemenda sem eru með
námstilboð við hæfi í lengri eða skemmri tíma og veita ráðgjöf
til kennara og annars starfsfólks skóla. Skólinn sér ennfremur
um kennslu nemenda á Stuðlum og nemenda sem eru
innlagðir á BUGL.
Kennslan er einstaklingsmiðuð og unnið er út frá færni, getu
og áhuga hvers og eins nemanda. Kennt er í 4-12 manna
hópum Rík áhersla er lögð á kennslu í félagslegum samskipt-
um og verklegum greinum. Jákvæðni og gleði eiga að ein-
kenna starf í Brúarskóla. Stuðst er við hugmyndafræði Upp-
byggingarstefnunnar í daglegu skólastarfi.
Samstarf er einn af mikilvægustu þáttum skólastarfsins, bæði
inna skóla sem utan.
Leitað er að kennurum sem eru m.a.:
Með kennaramenntun
Liprir í mannlegum samskiptum
Til í mikla samvinnu og þróunarstarf
Jákvæðir, fjölhæfir og sveigjanlegir í starfi
Til í að takast á við krefjandi verkefni
Brúarskóli
Kennarar fyrir
skólaárið 2005-2006
Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík, www.grunnskolar.is
sími: 535 5000, fmr@reykjavik.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björk Jónsdottir, skólastjóri
bjorkjo@bruarskoli.is, sími 520 6000. Skriflegar umsóknir sendist
í Brúarskóla, Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til
10. júní nk. Laun samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Við leitum að
verslunarstjóra fyrir
BT í Smáralind
BT Smáralind er:
• Önnur stærsta BT verslun landsins en BT rekur alls 9 verslanir
• Ört vaxandi verslun í lifandi umhverfi
• Staða verslunarstjóra í þessari verslun er mjög spennandi
tækifæri fyrir árangursdrifið fólk
Meðal þess sem verslunarstjóri ber ábyrgð á:
• Daglegum rekstri verslunar og stjórnun starfsmanna
• Mánaðarlegum veltu- og framlegðarmarkmiðum
• Lágmörkun kostnaðar
• Útliti verslunar, hámörkun gæða í sölu og þjónustu
• Jákvæðri upplifun viðskiptavina
• Mótun starfsánægju og jákvæðs, hvetjandi starfsanda
Við leitum að fólki sem er:
• Árangursdrifið með gott frumkvæði, metnað og getu til að
starfa sjálfstætt
• Skipulagt og hefur tileinkað sér vönduð vinnubrögð
• Með jákvæð viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
• Með mikla aðlögunarhæfni í síbreytilegu starfsumhverfi
• Ósérhlífið og hefur gaman af samskiptum og þjónustu
• Tilbúið til að leggja mikið á sig við að uppfylla þarfir
viðskiptavina
Hæfniskröfur:
• Nauðsynlegt er að verslunarstjóri hafi reynslu af
verslunarrekstri og stjórnun með mannaforráðum
• Æskilegt er að umsækjendur hafi almenna þekkingu og
áhuga á þeim vörum sem seldar eru í BT verslunum
Umsóknir með ferilskrá berist til starfsmannastjóra á annabirna@bt.is
Umsóknarfrestur er föstudagur 20. maí.