Fréttablaðið - 14.05.2005, Side 54
34 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
A›dáendurnir héldu sveitinni saman
Breska hljómsveitin DuranDuran er væntanleg tillandsins í júní eins og al-
þjóð veit og mun spila á tónleikum
í Egilshöll þann þrítugasta júní.
Íslenskir aðdáendur Duran Duran
hafa beðið þeirra í ofvæni í rúm
20 ár en þeir létu þó ekki sjá sig
þegar sveitin var á hátindi frægð-
ar sinnar. Simon segist þó full-
meðvitaður um að nærveru þeirra
hafi lengi verið óskað. „Það hefur
samt aldrei áður komið til tals að
fara til Íslands og ég hlakka mikið
til.“
Vinsældirnar breyttust í geðveiki
Duran Duran sló í gegn með
fyrstu stóru plötunni sinni sem
bar nafn sveitarinnar árið 1981 og
vinsældunum var fylgt eftir með
fullum þunga árið 1982 með breið-
skífunni Rio, Seven and the Ragg-
ed Tiger, sem almennt er talin
besta plata Duran Duran, ári síðar
og svo kom tónleikaplatan Arena
út árið 1984 en þá var sveitin á há-
tindi frægðar sinnar. En var þetta
ekki of mikið og má kannski segja
að sveitin hafi brennt sig upp á of
stuttum tíma?
„Unnum við of mikið eða vann
ég of mikið? Ég veit það ekki,
maður gerir eins mikið og maður
getur og við unnum vissulega
mikið. Það var svo árið 1984 sem
við fundum að langþreyta var far-
in að gera vart við sig og við sögð-
um við sjálfa okkur að þetta væri
orðin geðveiki. Við vorum of mik-
ið í sviðsljósinu og vissum að
þetta myndi enda með því að allir
fengju ógeð á okkur og þess vegna
skiptum við liði og stofnuðum
hljómsveitirnar Arcadia og Power
Station.“
Upplausn og stefnubreyting
Bassaleikarinn John Taylor og gít-
arleikarinn Andy Taylor gengu til
liðs við söngvarann Robert Palm-
er og spiluðu amerískt iðnaðar-
rokk í Power Station á meðan
Simon, hljómborðsleikarinn Nick
Rhodes og trommarinn Roger
Taylor voru á rólegri nótum í
Arcadia. „Roger ákvað síðan að
koma ekki aftur í Duran Duran og
Andy fór svo sömu leið í fram-
haldinu en þessar ákvarðanir
þeirra snerust um allt önnur mál,“
segir Simon og vill ekki eyða
mörgum orðum í upplausn sveit-
arinnar.
Simon, John og Nick héldu
áfram að starfa undir merkjum
Duran Duran og gáfu út breiðskíf-
una Notorious árið 1986. Platan er
metnaðarfull og vönduð en ansi
frábrugðin Seven and the Ragged
Tiger og það má segja að hún sé
frekar rökrétt framhald af því
sem Nick og Simon voru að gera í
Arcadia.
„Á Notorius vorum við að
teygja Duran Duran-sándið eins
langt og við gátum. Ég var mjög
upptekinn af textum og melódíu á
þessum tíma en það eru takmörk
fyrir því hversu langt þú getur
farið með melódíuna, nema auð-
vitað að þú sért Björk. Þá geturðu
gert allan andskotann og allt sem
þú vilt. Björk er yndisleg og við
elskum hana allir. Hún er mjög
góður vinur okkar.“
Aðdáendurnir björguðu bandinu
Það eru líklega fáar hljómsveitir
sem geta státað af jafn tryggum
aðdáendum og Duran Duran en
ótrúlega stór hópur hefur staðið
með þeim í gegnum súrt og sætt
og keypt plöturnar þeirra þrátt
fyrir alls konar manna- og stefnu-
breytingar. „Aðdáendur okkar eru
alveg ótrúlegir og þeir héldu okk-
ur saman. Þegar John hætti í
bandinu á árunum 1997 til 2001
leið mér oft mjög illa. Þetta voru
erfið ár og sveitin hefði getað lagt
endanlega upp laupana hvenær
sem var. Þá voru það aðdáendurn-
ir sem héldu okkur virkilega sam-
an.“
Simon segist oft finna fyrir því
að aðdáendur Duran Duran virði
þá félaga fyrir að hafa aldrei lagt
árar í bát. „Þetta er mjög
skemmtilegt og það hefur komið
mér á óvart hversu traustir aðdá-
endur okkar eru. Ég man eftir
dómi frá því við vorum að byrja.
Ég held að hann hafi birst í NME
en þar sagði að tónlist okkar væri
eins og gárur í gruggugri tjörn og
að hún væri svo gagnsæ að hún
myndi gleymast á einu ári. Í fyrra
las ég það svo í Daily Telegraph í
umsögn um nýju tónleikaferðina
okkar að eins undarlega og það
kynni að hljóma þá yrðum við ef
til vill næstu Rolling Stones Bret-
lands hvað úthald varðar. Ég veit
ekki hvort þetta mun ganga svo
langt en það var frábært að sjá að
einhver sá enn lífsmark með okk-
ur.“
Lífsháski og lífsgleði
Aðdáendur Wham og Duran Dur-
an háðu heilagt stríð á Íslandi á
gullöld hljómsveitanna og Simon
segist ekki hafa farið varhluta af
þessum deilum sem hafi einnig
geisað á heimavelli. „Þegar ég var
£að keppa í kappsiglingu á skút-
unni Drum og hún sökk og ég
drukknaði næstum því þá sást til
kafbáts merktum Wham! í ná-
grenninu,“ segir Simon og hlær en
þessi brandari segir líklega meira
en þúsund orð um stöðu mála í þá
daga.
Simon segist aðspurður ekki
sakna gömlu, góðu dagana og er
mjög afdráttarlaus. „Nei. Ég er
ekki sú manngerð sem festir sig í
nostalgíu en ég lít stundum til
baka og brosi yfir öllu sem við
gerðum í gamla daga en ég á mér
líka líf núna. Ég er í frábærri
hljómsveit og við erum að gera
frábæra nýja tónlist og getum
spilað á tónleikum fyrir fólk sem
vll sjá okkur hér og nú. Svo á ég
fjölskyldu þannig að ég á mér líf.“
Klikka ekki á gömlu lögunum
Þegar vinsældir Duran Duran
voru sem mestar var sveitin feng-
in til að semja titillag James
Bond-myndarinnar A View to a
Kill. Það var mikið gert með það í
fjölmiðlum á sínum tíma að þetta
væri nánast lokatakmark strák-
anna þar sem þeir væru allir mikl-
ir James Bond-aðdáendur. Simon
dregur úr þessu og finnst umræð-
an hafa verið orðum aukin.
„Tjah... ég er mjög hrifinn af
James Bond sem slíkum. Las bæk-
urnar og hafði gaman af gömlu
myndunum með Sean Connery.
Annars fannst okkur það bara góð
hugmynd að blanda saman Duran
Duran og Bond og kýldum á það
og það virkaði vel.“
Simon segist geta lofað göml-
um aðdáendum sínum að þeir
muni fá að heyra alla helstu slag-
ara Duran Duran í Egilshöll í sum-
ar. „Við verðum með gamalt efni
og nýtt í bland enda erum við ný-
búnir að gefa út góða nýja plötu.
Við munum að sjálfsögðu ekki
svíkja ykkur um Save a Prayer.“
Save a Prayer er sjálfsagt eitt vin-
sælasta „kveikjaralag“ níunda
áratugarins en Simon bendir á að
þeir sem reykja ekki geti bara
kippt farsímunum sínum upp úr
vasanum og kveikt ljósið á þeim
þegar þeir byrja að spila lagið.
Gaman að gera eitthvað nýtt
Þegar Simon er beðinn um að líta
um öxl yfir ferilinn og plöturnar
og nefna einhverja plötu sem er í
sérstöku uppáhaldi hjá sér segir
hann að engin eldri plata sé sér
hjartfólgnari en önnur. „Nýja
platan okkar er mér mjög kær og
okkur finnst hún sérstök þar sem
hún sannar að við höfum hæfi-
leika til þess að lifa af. Hún er ný
og við njótum þess að spila nýtt
efni þannig að þegar við gerum
næstu plötu þá mun okkur þykja
enn vænna um hana,“ segir Simon
Le Bon sem þarf ekki að lifa á
fornri frægð Duran Duran þar
sem bæði hann og félagar hans
fjórir eru enn í toppformi. ■
Forsala aðgöngumiða sem gilda á bæði kvöld Reykjavík
Rocks 2005 hefst laugardaginn 21. maí kl. 11 í verslun-
um 10-11 í Lágmúla, Austurstræti og Akureyri. Miðaverð
er 9.900 krónur og tryggir aðgöngumiði á bæði kvöldin
aðgang að fremra svæði Egilshallar. Almenn sala að-
göngumiða á stakt kvöld Reykjavík Rocks 2005 hefst
sunnudaginn 22. maí kl. 11 í öllum verslunum 10-11 og
á www.reykjavikrocks.is en á þeirri vefslóð má nálgast
allar frekari upplýsingar um tónleikana.
ÞESSI LÖG MUNU LÍKLEGA
HLJÓMA Í EGILSHÖLL:
SUNRISE
HUNGRY LIKE THE WOLF
PLANET EARTH
HOLD BACK THE RAIN
ASTRONAUT
I DON’T WANT YOUR LOVE
COME UNDONE
WHAT HAPPENS TOMORROW
REFLEX
TIGER TIGER
CHAUFFEUR
A VIEW TO A KILL
ORDINARY WORLD
SAVE A PRAYER
BEDROOM TOYS
NOTORIOUS
NICE
CARELESS MEMORIES
WILD BOYS
WHITE LINES
GIRLS ON FILM
RIO
DURAN DURAN Hljómsveitin vakti ekki
síst athygli fyrir metnaðarfull tónlistar-
myndbönd en þeir ferðuðust út um allan
heim til framandi tökustaða. „Af öllum
þeim löndum sem við höfum heimsótt
mun Srí Lanka alltaf eiga veglegan sess í
hjarta mínu. Þar tókum við upp mynd-
böndin við Save a Prayer, Hungry Like the
Wolf og Lonely in Your Nightmare. Þetta
var ótrúleg lífsreynsla að koma á svona
framandi stað og færa heiminum smá
hluta af Srí Lanka. Svona hlutir gerast bara
einu sinni til tvisvar á ævinni.“
Simon Le Bon hefur veri› í forsvari fyrir
hljómsveitinni Duran Duran í rúm 20 ár. Sveitin
mun spila á tónleikum á Íslandi í júní en fleirra
hefur veri› be›i› me› eftirvæntingu sí›an á níunda
áratug sí›ustu aldar. fiórarinn fiórarinsson ræddi vi›
söngvarann um forna fræg› og bjarta framtí›
Duran Duran sem tekur sér langlífi Rolling Stones
til fyrirmyndar.
TÓNLEIKAR DURAN DURAN ERU FYRRI HLUTI REYKJAVÍK
ROCKS 2005 EN SEINNI HLUTI REYKJAVÍK ROCKS 2005
FER FRAM 5. JÚLÍ Í EGILSHÖLL MEÐ TÓNLEIKUM FOO
FIGHTERS OG QUEENS OF THE STONE AGE.
HÁVXINN SÖNGVARI Simon Le Bon, sá í miðjunni, hlær þegar honum er tjáð að aðdá-
endur Duran Duran á Íslandi hafi vitað allt um þá hér á árum áður jafnvel skónúmer
þeirra. Hann vill þó ekki gefa upp skóstærðina sem hann notar í dag, „Eigum við bara
ekki að segja að þeir séu aðeins stærri en þeir voru. Það hljómar best þannig.“