Fréttablaðið - 14.05.2005, Qupperneq 58
FÓTBOLTI Það var bjart yfir Guðjóni
Þórðarsyni og Rúnari Arnarssyni,
formanni knattspyrnudeildar
Keflavíkur, þegar þeir skrifuðu
undir samning í byrjun desember.
Það var hugsað stórt og Guðjón
átti að gera Keflavík að stórveldi í
íslenskri knattspyrnu. Samning-
urinn sem Guðjón skrifaði undir
var líka stór enda ákvað hann
frekar að taka tilboði Keflavíkur
en Stockport County. Í dag lítur út
fyrir að hann hafi verið of stór
fyrir Keflavík enda réð félagið
ekki við að greiða Guðjóni þau
laun sem um var samið.
„Fyrsta greiðslan, sem átti að
koma 1. janúar, skilaði sér ekki
fyrr en 75 dögum síðar. Aðrir
gjalddagar féllu líka og Guðjón
fékk aldrei greidd laun á réttum
tíma og hann á eftir að fá laun
sem greiða átti 1. maí,“ sagði
Borgar Þór Einarsson, lögfræð-
ingur Guðjóns við Fréttablaðið í
gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var samningur Guðjóns
við Keflavík óuppsegjanlegur
nema á þröngu tímabili. Þá var
hægt að segja upp samningnum ef
til kæmu bætur sem eru nokkuð
háar. Það var þó hægt að segja
upp samningnum ef til fjárhags-
legra eða faglegra vanefnda
kæmi. Í fréttatilkynningu sem
Guðjón sendi frá sér í gær kemur
fram að ástæða uppsagnarinnar
sé verulegar vanefndir á samn-
ingnum.
Segir Guðjón ljúga
Rúnar Arnarsson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
segir að ástæða sé fyrir því af
hverju greiðslurnar drógust svo
lengi sem raun bar vitni.
„Guðjón lýgur algjörlega.
Þetta er rakalaus lygi og óþverra-
skapur,“ sagði Rúnar þungur á
brún í gærkvöld. „Ástæðan fyrir
þessari seinkun er að hann var
ekki búinn að stofna hlutafélagið
sem átti að vera utan um þennan
rekstur og það var ekki hægt að
greiða. Við margbáðum hann um
að bjarga þessu en Guðjón stofnar
ekki hlutafélagið fyrr en í lok
febrúar,“ sagði Rúnar en af
hverju greiddi hann samt ekki
fyrr en 16. mars? „Það er bara
lygi í honum. Einhverja daga var
dráttur á greiðslum en stærsti
hlutinn af 75 dögunum var honum
sjálfum að kenna.“
Það stendur að mörgu leyti orð
gegn orði í rimmu Guðjóns og
Keflvíkinga en Rúnar segir ekk-
ert óeðlilegt við að hann hafi ekki
greitt Guðjóni þau laun sem hann
átti að fá 1. maí.
„Hann er ekki búinn að senda
reikning fyrir maí. Hans banki á
Akranesi sendir greiðsluseðla en
það er enginn greiðsluseðill kom-
inn enn þrátt fyrir margítrekuð
boð um slíkt. Maðurinn fer bara
með tóma steypu og þetta er allt
rakalaus ósannindi hjá honum,“
sagði Rúnar en hann gaf einnig
lítið fyrir það sem Guðjón sagði í
sjónvarpsviðtali í gær. „Þetta er
bara skrípaleikur. Það sáu allir að
maðurinn laug 90% af því sem
hann sagði. Guðjón var ekki of
stór biti fyrir okkur. Mér sýnist á
öllu að við höfum verið of stór biti
fyrir hann,“ sagði Rúnar, sem
segist sjá mikið eftir því að hafa
ráðið Guðjón til starfa.
„Það eru bara tvær ástæður
fyrir þessari hegðun Guðjóns.
Annað hvort er hann búinn að
finna sér vinnu úti eða hann hrein-
lega sprakk á limminu og treysti
sér ekki í verkefnið,“ sagði Rúnar
Arnarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur.
henry@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Laugardagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
10.35 Bikarmótið í fitness 2005
(Karlar) á Sýn.
11.05 West Ham – Ipswich á Sýn.
13.10 Dallas Mavericks-Phoenix
Suns á Sýn. Endursýndur leikur úr
úrslitakeppninni í NBA-körfu-
boltanum.
14.00 HM í íshokkíi á RÚV. Bein
útsending frá undanúrslitaleik Rússa
og Kanadamanna.
15.10 Inside the US PGA Tour
2005 á Sýn.
16.00 Motorworld á Sýn.
16.30 World Supercross á Sýn.
17.00 Íþróttakvöld á Rúv.
17.20 UEFA Champions League á
Sýn.
17.30 Ofurhugar á reiðhjólum á
Sýn.
17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Sevilla og Real
Madrid.
19.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Levante og
Barcelona.
22.00 Hnefaleikar á Sýn. Meðal
þeirra sem mætast eru JL Castillo
og Diego Corrales.
23.05 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt
verður frá ýmsum bardögum og
þ.á.m. munu Felix Trinidad og
Ricardo Mayorga leiða saman hesta
sína.
00.05 Hnefaleikar á Sýn. Ronald
Wright og Shane Mosley eru meðal
keppenda.
00.55 HM í íshokkíi á Rúv. Bein
útsending frá undanúrslitaleik Svía
og Tékka.
01.00 Hnefaleikar á Sýn. Bein
útsending frá viðureign Felix
Trinidad og Ronald Wright.
Guðjón of stór biti fyrir Keflavík?
38 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
> Við óttumst ...
... að þetta verði afar erfitt
sumar fyrir bikarmeistara
Keflvíkinga. Það er ekki nóg
með að liðið hefur í vetur
misst hvern lykilmanninn á
fætur öðrum heldur nú síðast
yfirgefur þjálfarinn brúnna aðeins
þremur dögum fyrir fyrsta leik.
sport@frettabladid.is
> Við hvetjum alla ...
... til að mæta á fjölskyldudag rallsins í
dag, en í tilefni hans mun fólki gefast
kostur að fylgast með fyrsta keppnisdegi
rallsins í sumar. Keppnin sjálf hefst um
hálf ellefu í við Shell-stöðina við
Gylfaflöt í Grafarvogi og ekið
verður að Geithálsi. Eftir
keppnina verður hægt
að skoða keppnisbíl-
ana og boðið verð-
ur upp á grillaðar
pylsur, gos og ís.
Heyrst hefur...
... að Kristján Guðmundsson verði við
stjórnvölinn hjá Keflavík þegar liðið
tekur á móti Íslandsmeisturum FH á
mánudaginn. Kristján var aðstoðar-
maður Guðjóns Þórðarsonar í vetur.
Líkur eru einnig á því að hann fái
gamla starf Guðjóns og stjórni liðinu
út sumarið.
Breska blaðið Evening Post birti í gær
frétt þess efnis að Guðjón Þórðarson
verði næsti stjóri enska 2. deildarliðsins
Notts County og að tilkynnt verði um
ráðninguna á næstu dögum. Notts
County er elsta félag Englands en það
má muna sinn fífil fegri enda rétt slapp
það við fall úr ensku D-deildinni í vetur.
Það var í raun aðeins þrem stigum frá
því að falla í ensku utandeildina og bíð-
ur því mikið starf tilvonandi þjálfara
þess félags.
Guðjón neitaði því í samtali við Frétta-
blaðið í gær að hafa rætt við forráða-
menn Notts County og vildi sem minnst
gera úr fréttinni. Hann hefði heyrt af
þessum orðrómi en lengra næði það
ekki. Heimildir Fréttablaðsins í Bretlandi
herma aftur á móti að mikið sé til í
þessari frétt og að Guðjón verði ráðinn
stjóri félagsins fyrr frekar en síðar. Guð-
jón fór utan til Englands í einkaerindum
fyrir skömmu og herma heimildir
Fréttablaðsins að hann hafi rætt við for-
svarsmenn Notts County í þeirri ferð.
Fréttablaðið hafði enn fremur samband
við Patrick Nelson, yfirmann knatt-
spyrnumála hjá Notts County, í gær og
hann vildi hvorki játa því né neita að
Notts County hefði rætt við Guðjón
Þórðarson.
Hvað svo sem öllum vangavelt-
um um Notts County líður
er ljóst að Guðjón Þórðar-
son verður ekki í brúnni
hjá Keflavík þegar flaut-
að verður til leiks í
Landsbankadeildinni á mánudag og
það er klárlega
mikill missir
fyrir deildina
að Guðjón
sé farinn frá
bikarmeist-
urunum í
Bítlabæn-
um.
Landsbankadeild karla:
Fyrstu leikir
á mánudag
FÓTBOLTI Landsbankadeild karla í
knattspyrnu fer af stað á
mánudaginn þegar fjórir af fimm
leikjum 1. umferðarinnar fara
fram. Fimmti leikur er síðan á
þriðjudag klukkan 20.00 þegar
KR-ingar heimsækja Fylkismenn
í Árbæinn.
Þrír leikir hefjast klukkan
17.00 á annan
í hvítasunnu,
Valur tekur á
móti Grinda-
vík, Fram fær
ÍBV í heim-
sókn í Laugar-
dalinn og
Þ r ó t t a r a r
mæta ÍA uppi á Akranesi. Fjórði
leikur dagins fer fram í Keflavík
en þar hefja Íslandsmeistarar FH
titilvörn sína gegn heima-
mönnum. Liðin spila mjög þétt í
upphafi móts og því er mikið
undir strax í fyrsta leik.
Svo vir›ist sem knattspyrnudeild Keflavíkur hafi ekki flekkt takmörk sín flegar sami› var vi› Gu›jón
fiór›arson. Lögfræ›ingur Gu›jóns segir a› Keflavík hafi ekki sta›i› vi› grei›slur og fla› eitt og sér nægi
til uppsagnar samnings. Forma›ur knattspyrnudeildar Keflavíkur segir Gu›jón ljúga.
KNATTSPYRNUÞJÁLFARINN GUÐJÓN ÞÓRÐARSON: HVERT FER HANN NÆST?
Sterklega orðaður við Notts County
Lið Róbert Gunnarssonar, Århus, leikur til úrslita um danska meistaratitilinn:
Getum stoli› flessu af Kolding
HANDBOLTI Róbert Gunnarsson og
lið hans, í dönsku úrvalsdeildinni
í handknattleik, Århus, munu
spila til úrslita um danska meist-
aratitilinn gegn Kolding. Liðin
hafa mæst tvívegis í vetur;
heimaleik Århus lyktaði með
jafntefli, 37-37, en útileiknum
lauk með öruggum sigri Kolding,
41-36.
Fyrirkomulagið í úrslitunum
er með þeim hætti að tvo sigur-
leiki þarf til að hampa titlinum en
jafntefli er einnig tekið gott og
gilt. Þar með myndi nægja að
gera eitt jafntefli og einn sigur til
að landa danska titlinum.
„Það er mikið búið að vera að
skrifa um þetta úti og að Kolding
sé sigurstranglegra,“ sagði Ró-
bert í samtali við Fréttablaðið.
„Það er einnig talað um að við
séum óútreiknanlegir. Menn bú-
ast þó alveg við því að við getum
stolið þessu og fyrsti leikurinn,
sem fer fram á sunnudaginn, er
lykilleikur. Ef við náum jafntefli
er nóg fyrir okkur að vinna
heima.“
Róbert sagði að það yrði í
mörg horn að líta fyrir lið sitt.
„Við þurfum að stöðva hraðaupp-
hlaup Kolding en þar eru leik-
menn liðsins gríðarlega sterkir.
Þeir keyra 4-2 og eru með góða
línumenn sem við þurfum að
stoppa.“ Að sögn Róberts gefa
leikmenn Århus andstæðingum
sínum í Kolding lítið sem ekkert
eftir. „Þetta snýst ekki um hvað
við viljum heldur hvort við trú-
um á okkur. Það er farið að síast
inn í hausinn á strákunum að þeir
séu góðir leikmenn en hingað til
hefur of mikil virðing ríkt gagn-
vart stærri nöfnum og liðum.
Menn eru að átta sig á því að þeir
eru jafn góðir og ef við trúum
100% á okkur getum við hampað
titli.“ smari@frettabladid.is
VERÐUR HANN DANSKUR MEISTARI?
Róbert Gunnarsson spilar með Århus í
úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn.
SÍÐASTI LEIKURINN MEÐ KEFLAVÍK Guðjón Þórðarson stýrði Keflavík í síðasta skipti gegn FH í Meistarakeppni KSÍ síðastliðinn mánudag.
Hann sést hér ræða málin við aðstoðarmann sinn, Kristján Guðmundsson, sem mun stýra Keflavíkurliðinu á mánudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI