Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 61
LAUGARDAGUR 14. maí 2005
Út a› bor›a me›
fjölskylduna um
Hvítasunnuna
Fjölskyldutilbo›
Tvær mi›stær›ar pizzur
me› tveimur áleggjum á kr. 2200
Gildir einungis í veitingasal. Gildir til 17. maí 2005
www.pizzahut.is • 533 2000
Nordica • Sprengisandi • SmáralindLáttu sjá flig
2 á 2200
Útvarpsþátturinn Rakarinn og
spákonan hóf göngu sína á Út-
varpi Sögu síðastliðinn laugar-
dag. Í þættinum, sem er á dag-
skrá á milli 14.00 og 16.00, sam-
eina rakarinn Torfi Geirmunds-
son og spákonan Sigga spá
krafta sína og ræða við hlust-
endur.
Torfi gefur góð ráð þegar það
á við og síðan spáir Sigga í spil-
in og gefur ráðleggingar um
draumaprinsinn, eiginmanninn
eða eiginkonuna, kynlíf og svo
ekki sé minnst á hvaða tölur fólk
eigi að velja í lottóinu.
„Þetta gekk vonum framar.
Við urðum að framlengja þátt-
inn í tvo klukkutíma því það var
svo mikið hringt og Sigga beðin
um að spá í tölur. Fólk vill vita
tölurnar fyrir lottóið,“ segir
Torfi um fyrsta þáttinn. „Hún
fellur næstum í trans þegar hún
er að spá. Þetta virðist hitta í
mark þó að ég trúi ekki á þetta.“
Torfi, sem starfar sem rakari
á Hlemmi, kynntist Siggu spá
þegar hann var að kenna henni
hárgreiðslu í Iðnskólanum. „Það
lá beinast við að ég fengi hana í
þáttinn hjá mér,“ segir hann.
„Ég var búinn að vera með átta
þætti bara um hárgreiðslu og þá
ákvað ég að herma eftir Eiríki
Jónssyni og taka spákonu inn.
Það var tími til kominn á ein-
hverja breytingu.“
Að sögn Torfa er mikilvægt
að bæði rakarar og útvarps-
menn geti hlustað á fólk. „Það er
aðalatriðið að maður sé ekki
talandi sjálfur í tíma og ótíma.
Um 80% þeirra sem hringja inn
eru karlmenn. Það kom okkur
mest á óvart,“ segir hann.
Rakari og spákona sameina krafta sína
TORFI Rakarinn Torfi Geirmundsson
stjórnar útvarpsþættinum Rakarinn
og spákonan á Útvarpi sögu. Að
sjálfsögðu býður Torfi upp á DV á
stofunni sinni enda er sonur hans
enginn annar en Mikael Torfason, rit-
stjóri blaðsins.