Fréttablaðið - 14.05.2005, Qupperneq 62
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands
sýnir dönsku gamanmyndina Det
tossede paradis eða Sælueyjan frá
árinu 1962 í leikstjórn Gabriel Axel.
■ ■ TÓNLEIKAR
15.00 Helgi Valur verður með tón-
leika í Smekkleysu Plötubúð.
16.00 Auður Hafsteinsdóttir fiðlu-
leikari og Helgi Kjekshus píanóleik-
ari halda tónleika í Borgarneskirkju á
tónlistarhátíðinni Ísnord.
20.30 Pamela De Sensi flautuleik-
ari og Hannes Þ. Guðrúnarson gít-
arleikari halda tónleika í Borgarnes-
kirkju á tónlistarhátíðinni Ísnord.
23.00 Bandaríska hljómsveitin
Funeral Diner verður með tónleika á
Grand Rokk.
■ ■ OPNANIR
14.00 Jóna Hlíf Halldórsdóttir
opnar útskriftarsýningu sína úr
Myndlistaskólanum á Akureyri í Gall-
ery Jónas Viðar í Listagilinu.
14.00 Hugleikur Dagsson opnar
myndlistarsýningu á Café Karólínu í
Listagilinu á Akureyri.
15.00 Sýning á verkum eftir Dag
Sigurðarson, skáld og myndlistar-
mann, verður opnuð í Populus
tremula í kjallara Listasafnsins á Ak-
ureyri.
15.00 Myndlistaskólinn í Reykjavík
opnar sýningu á bókverkum og ljós-
myndum eftir nemendur í barna- og
unglingadeild skólans í Borgarbóka-
safni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
Bókverkin voru unnin í anda Dieter
Roth í tilefni þess að hann verður í
brennidepli á Listahátíð Reykjavíkur.
15.00 Sýning níu þýskra myndlist-
armanna verður opnuð í Grafíksafni
Íslands, sal Íslenskrar Grafíkur.
15.00 Matthías Mogensen opnar
málverkasýningu í gamla Kaaberhús-
inu, Sætúni 8.
16.00 Katainga opnar myndlista-
sýningu í Gallerí Tukt, Hinu Húsinu
við Pósthússtræti. Sýningin ber
nafnið "Framleiðsla hugrekkisins" og
er tilgangur hennar að vekja áhuga á
okkar mannlegum skrímslum, að
hafa trú á sjálfum sér og að vinna
vel úr sjálfum sér.
■ ■ SKEMMTANIR
14.00 Hljómsveitin Sent spilar í
Íþróttahöllinni á Akureyri.
Hljómsveitin Sent spilar á Sölku á
Húsavík.
Svitabandið skemmtir á Gauknum.
Dj Maggi á eftir hæðinni.
Hljómveitin Bermuda verður í rífandi
stuði í Þjóðleikhúskjallaranum.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
skemmtir í Vélsmiðjunni á Akureyri.
Atli skemmtanalögga og Áki pain á
Pravda.
Á móti sól skemmtir í Hreðavatns-
skála, Borgarfirði.
Addi M leikur ljúfa tónlist á Catalinu
í Kópavogi.
Tveir snafsar skemmta á Celtic
Cross.
Hljómsveit Rúnars Þórs leikur á
Ránni í Keflavík.
Í tengslum við Listahátíð hafa um
350 börn frá níu grunnskólum
Reykjavíkurborgar tekið þátt í
sköpunarsmiðju í Viðey í sam-
vinnu við Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur og Félag íslenskra
myndlistarkennara. Tilgangurinn
er að gefa börnunum tækifæri á
að vinna með og kynnast starfi at-
vinnumyndlistarmanna. Börnin
hafa farið í hópum út í Viðey og
hefur hver hópur unnið sérstakt
verkefni undir leiðsögn eins af
listamönnum myndlistarþáttar
Listahátíðar.
Afrakstur verkefnisins verður
kynntur í dag, sama dag og Lista-
hátíð hefst með opnun fjölmargra
myndlistarsýninga víða um
höfuðborgarsvæðið.
Í kvöld verður síðan haldin
vegleg opnunarhátíð Listahátíðar
í Listasafni Reykjavíkur með fjöl-
breyttri dagskrá þar sem fram
koma meðal annars hljómsveit-
irnar Steintryggur, Rússíbanar og
Trabant ásamt barkasöngvurum
einstæðu frá Tuva.
Þar verður einnig frumfluttur
leikhúsgjörningurinn „Óður til
kindarinnar“ eftir Filippíu Elís-
dóttur og Jóhann Frey Björgvins-
son. Bein útsending verður frá
hátíðinni í Sjónvarpinu og stendur
hún yfir í um eina klukkustund.
Rúsínan í pylsuendanum er
norrænu skáldfákarnir og hand-
hafar bókmenntaverðlauna, Sjón
og Einar Már Guðmundsson, en
þeir koma fram sem „Rótara-
dúettinn“ og flytja frumsaminn
texta, á einhvern hátt tileinkaðan
Dieter Roth.
Á morgun halda síðan opnunar-
gestir Listahátíðar í sérstakt
hringflug um landið til þess að
kíkja á opnanir á myndlistarsýn-
ingum víða um land. Flogið verð-
ur til fjögurra áfangastaða; Ísa-
fjarðar, Akureyrar, Egilsstaða og
Vestmannaeyja. ■
42 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... Listahátíð í Reykjavík
sem verður úti um allt nú um
helgina og næstu vikurnar.
... innsetningu Rúríar, Heill-
aður, í sýningarrými FUGLs í
verslun Indriða á Skólavörðu-
stíg 10. Sýningunni lýkur í dag.
... vortónleikum Mótettukórs
Hallgrímskirkju, sem verða
haldnir í Hallgrímskirkju á ann-
an í hvítasunnu.
Fjórir menn frá lýðveldinu Tuva gefa frá sér
hljóð sem líkjast engu öðru. Þeir nefna sig
„Huun Huur Tu“ og verða með tónleika á
Nasa við Austurvöll á Listahátíð annað kvöld
og mánudagskvöldið.
Nafnið Huun Huur Tu þýðir drifkraftur sólar-
innar og vísar til sólarupprisunnar. Frægðarsól
þeirra hefur risið jafnt og þétt á undanförnum
árum.
Þeir syngja með barkanum og láta sig ekki
muna um að syngja tvo eða jafnvel þrjá tóna í
einu. Sagan segir að barkasöngur sé elsta
form söngs í heiminum og nú gefst Íslending-
um í fyrsta sinn tækifæri til að heyra þennan
merkilega söng á tónleikum.
Í tónlist þeirra býr ómótstæðilegur kraftur sem
fær best notið sín á sviði, enda er sviðsfram-
koma hljómsveitarinnar í senn óvenjuleg og
framandi.
Hljómsveitin var stofnuð árið 1992, árið eftir
fall Sovétríkjanna. Þeir hafa jafnan verið
óhræddir við að blanda söng sínum og hljóð-
færaleik saman við nýjar stefnur og strauma í
tónlist.
Tónleikar fjórmenninganna á Nasa hefjast
klukkan 21 bæði kvöldin.
Kl. 16.00
Danska bíómyndin Sælueyjan eða Det
tossede paradis, sem Gabriel Axel gerði
árið 1962, verður sýnd í Kvikmyndasafni
Íslands, Bæjarbíói í Hafnarfirði.
menning@frettabladid.is
Djúpt ofan úr barka
Líf og fjör í Viðey
!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16
Laugardagur
MAÍ
Sólheimaleikhúsið
(Sólheimum Grímsnesi) sýnir
Ævintýri Þumalínu
e. H.C.Andersen
Mán.(annar í Hvítasunnu) 16.maí
kl:15
Sun. 22. maí kl:15
Laug. 28 maí kl:15
Miðaverð 1.000 kr fullorðnir
500 kr 12 ára og yngri
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
- Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 28/5 kl 20
- Síðasta sýning
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14 - UPPS.
Su 22/5 kl 14 - UPPS., Lau 4/6 kl 14 UPPS.
Su 5/6 kl 14 - UPPS., Su 12/6 kl 14,
Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14,
Su 26/6 kl 14
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
AUTOBAHN Á LISTAHÁTÍÐ
Leiklestur nýrra þýskra verka Falk Richter og
Theresia Walser
Þri 17/5 kl 17
Marius von Mayenburg og Ingrid Lausund
Mið 18/5 kl 17
Umræður við höfunda á eftir
Ókeypis aðgangur.
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fö 20/5 kl 20
Síðustu sýningar
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPS., Fi 19/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20 UPPS., Lau 21/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPS.,
Fö 27/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Í kvöld kl 20
- Síðasta sýning
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
FRÁ SKÖPUNARSMIÐJUNNI Í VIÐEY Í dag verður kynntur afraksturinn af sköpunar-
smiðju barna í Viðey, sem haldin hefur verið í tengslum við Listahátíð.