Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 65
LAUGARDAGUR 5. mars 2005 45
...skemmtir þér ; )
ÁRITUN
Allar nýjar íslenskar og erlendar
geislaplötur á sumartilboði
aðeins 1.999 kr.
Skífan Laugavegi 26 - opið til 22:00 öll kvöld • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni
Hildur Vala
Hildur Vala áritar plötu sína
í Skífunni í Kringlunni í dag kl. 13:00.
1.999kr
Sumartilboð
Bleik ilmvatns-
paradís
Tískuvillingurinn París Hilton kynnti sitt
fyrsta ilmvatn á veitingastað í París á
þriðjudagskvöldið. Staðurinn var
skreyttur frá a-ö með bleikum skreyt-
ingum en það er í stíl við umbúðir
ilmsins. Það var meira að segja bleikur
dregill við innganginn og búið var að
skipta um hurð á veitingastaðnum.
Nýja hurðin var bleik í stíl við skreyt-
ingarnar. Um þessar mundir er París
Hilton andlit Guess en fyrirtækið er í
eigu Parlux sem framleiðir ilmvatnið
hennar. Meðan á kynningarmyndatök-
unum fyrir Guess stóð heillaði París
starfsfólkið svo upp úr skónum með
skemmtilegheitum sínum að forráða-
mönnum fyrirtækisins fannst ekki ann-
að hægt en að vinna meira með
henni. Hún var ekki lengi að hugsa sig
um þegar þeir buðu henni að setja
sinn eigin ilm á markað. Hún vissi ná-
kvæmlega hvernig hún vildi hafa sitt
ilmvatn og fór ferlið strax í gang. Ilm-
urinn er léttur og afar góður og mun
líklega henta sem flestum. Íslenskar
konur þurfa ekki að bíða lengi því ilm-
urinn er væntanlegur til landsins í júní.
Augnhár í
anda Aniston
Augnhárin skipta
öllu máli þegar
förðun er annars
vegar og engin
kona ætti að fara
út úr húsi án
maskara. Það er
þó alls ekki sama
hvernig maskar-
inn er og nú er
málið að hafa
augnhárin sem
veglegust. Það
er þó ekki
hlaupið að því
að ganga með gerviaugnhár og því
verður maskarinn að vera almennileg-
ur. Einn besti maskarinn á markaðn-
um núna er cils Á cils frá Chanel.
Hann er frábær til að byggja upp
augnhárin en hann hefur þá eiginleika
að fylla vel upp í svo augnhárin virðist
þéttari og svo lengir hann augnhárin.
Einnig er hann mjög nærandi.
Leikkonan Jennifer Aniston legg-
ur mikið upp úr því að
líta vel út og leggur hún
sérstaka áherslu á aug-
un og sér í lagi augnhár-
in. Með cils Á chils
maskaranum má auð-
veldlega fá þessa fallegu
áferð sem Jennifer Ani-
ston sækist eftir.
CILS Á CILS maskarinn
frá Chanel þykkir og lengir
augnhárin.
JENNIFER ANISTON
leggur mikið upp úr
því að vera vel förðuð
um augun.
Ellen er þekkt fyrir að vera önnur af
plötusnúðadúettnum Ellen og Erla. Á
daginn starfar hún hjá Nikita þar sem
hún sinnir hinum og þessum störfum.
Sumarið leggst vel í Ellen en hún er á
leið til Lundúna með vinkonu sinni og
síðar í sumar liggur leið hennar til
Barcelona með kærastanum.
Fylgist þú vel með tískunni? Já, ég les
mikið af blöðum og tímaritum og svo
skoða ég tískuna líka á netinu.
Uppáhaldshönnuður? Heiða í Nikita.
Fallegustu litirnir? Er ekki í mikilli til-
raunastarfsemi þegar kemur að því að
velja liti. Ég er mikið í svörtu og svo
hefur rauður alltaf verið í uppáhaldi.
Hverju ertu mest svag fyrir? Ég hef
alltaf verið algjört skófrík og dýrka að
eiga flotta skó.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég
pantaði mér tvær flottar púffermapeys-
ur úr velúr á ebay. Mér finnst mjög
gaman að sörfa um á ebay því maður
finnur alltaf eitthvað skemmtilegt þar.
Hvað finnst þér mest sjarmerandi í
vor- og sumartískunni? Mér finnst
sumartískan í ár mjög þægileg og
skemmtileg og mér finnst skartgripa-
tískan standa upp úr og gera tilveruna
skemmtilegri.
Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir vor-
ið? Einhverja kúl strigaskó, þessa stund-
ina dreymir mig um silfurlitaða Reebook
skó.
Uppáhaldsverslun? Ég verð að segja
Spútník og Smash og svo dýrka ég að
versla í H&M þegar tækifæri gefst. Þar
getur maður keypt mikið af flottum en
ódýrum fötum.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði? Ö, miklu meira en ég hef
efni á.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Ætli ég verð ekki að segja svörtu leður-
stígvélin mín sem ég keypti í Spútnik um
daginn. Þau passa við allt. Svo er alltaf
jafn þægilegt að koma heim í náttbux-
unar.
Uppáhaldsflík? Nikita-jakkinn minn
sem er svartur og gylltur úr satínefni og
rauðir og hvítu Nike dunk-strigaskórnir
mínir. Þeir eru alltaf klassískir.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Sá listi er ótæmandi! Ég er
reyndar á leiðinni til London í verslun-
arferð með vinkonu minni svo ætli ég
verði ekki að nefna þá borg. Svo er
stefnan sett á New York þegar buddan
leyfir.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér?
Vá, það er ábyggilega margt sem mað-
ur keypti sér þegar maður var yngri og
vitlausari en ætli Buffalo-skórnir séu
ekki efstir á listanum. Ég gekk í þeim í
grunnskóla og að mínu mati eru þessir
skór tískuslys 20 aldarinnar.
SMEKKURINN ELLEN LOFTSDÓTTIR PLÖTUSNÚÐUR OG STARFSMAÐUR NIKITA
Ey›i allt of miklum peningum í föt