Fréttablaðið - 14.05.2005, Side 70
Örn Elías Guðmundsson, betur
þekktur sem Mugison, er nýkom-
inn heim úr tónleikaferð. Hann
hélt tólf tónleika í jafnmörgum
borgum og kynnti fyrir Evrópu-
búum plötuna sína Mugimama: Is
this Monkey music? „Þetta gekk
allt saman mjög vel og það var
uppselt á alla fimm tónleikana
mína á Bretlandi,“ segir Örn Elías
en hann spilaði meðal annars í
London og Glasgow.
Ólíkt stórum rokkgrúppum,
sem eru yfirleitt með tugi manna
til þess að setja upp svið fyrir sig,
ferðaðist Örn eingöngu með hljóð-
manninum sínum Bigga. „Við vor-
um samt með hundrað kíló hvor
og þegar komið var að afgreiðslu-
borðunum hjá Easy Jet biðu okkar
yfirleitt 50 þúsund krónur í sekt,”
segir hann í léttum dúr. „Við fór-
um samt mestmegnis ferða okkar
með lestum og leigubílum.“
Örn segir ennfremur að stund-
um hafi misgott tímaskyn þeirra
næstum verið búið að koma þeim
í koll. „Við vorum búnir að klára
tónleika í Brussell og það var
klukkutíma bið í lestina sem átti
að flytja okkur til Parísar,” segir
hann og greinilegt að sagan er
ekki öll sögð. „Við ákváðum því að
fá okkur kaffi og svo fannst okkur
súkkulaðið sem boðið var upp á
svo rosalega gott. Áður en við
vissum af vorum við búnir með
þrjá bolla af kaffi, slatta af
súkkulaði og korter í að lestin
færi,“ segir Örn. Þeir hafi þó sem
betur fer náð í leigubíl sem keyrði
þá beint niður á lestarstöð en
tæpara mátti það ekki standa.
„Þegar við ýttum síðustu töskunni
inn lokuðust dyrnar,“ segir hann
og hlær.
Örn spilaði einnig á nokkrum
stöðum í Skandinavíu og hann
segir að stundum hafi stemmning-
in verið svolítið skrýtin. „Þegar
ég var að spila í Lundi sátu 25 Ís-
lendingar og 5 Svíar inni á staðn-
um. Ég neyddist til þess að tala
ensku, þar sem ég var að kynna
plötuna, þrátt fyrir að ég vissi að
meirihluti áhorfenda væru sam-
landar mínir og hvettu mig áfram
á íslensku. Það var svona hálf
kjánalegt.“
Örn er þó hvergi nærri farinn í
frí frá ferðalögum því í næstu
viku heldur hann til Akureyrar og
spilar á Græna Hattinum á mið-
vikudeginum. Á föstudeginum
verður hann svo kominn aftur í
bæinn og spilar á NASA. Hann
verður þó ekki lengi á landinu því
hann flýgur strax eftir tónleikana
til London þar sem hann mun spila
á tónlistarhátíðinni Home Fire.
Þar verður Örn í félagskap með
ekki ómerkari manni en Badly
Drawn Boy.
freyrgigja@frettabladid.is
50 14. maí 2005 LAUGARDAGUR
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Kanadíska tundurspillinum
Skeena frá tímum seinni
heimsstyrjaldar.
Nýjum eiganda liðsins sem
þeir óttast að grafi undan því.
All out of Luck.
MUGISON: TÓLF TÓNLEIKAR Í TÓLF BORGUM
Þurfti að tala ensku við Íslendinga
Gamaldags sundföt. Það er eitthvað stórkostlega tignarlegt aðvera í sundfötum með fallegu gamaldags munstri sem bera
ekki of mikið. Í gamla daga voru sundfötin ekki jafn hrikalega efnis-
lítil og þau eru núna og oft voru þau með fallegum rykkingum hér
og þar, hangandi böndum eða belti um mittið. Hvert fór eiginlega
þessi undursamlega sundfatatíska? Það er enn hægt að ná sér í
svona sundföt, annaðhvort í búðum sem selja notuð föt eða í
geymslunni hjá ömmu eða mömmu.
Augnskuggar í áberandi lit. Núna er ekki verið að meina að alltaugnlokið skuli málað með áberandi lit. Málið er að setja ör-
litla línu undir augað eða ofan á augnlokið. Með þessu verða aug-
un gífurlega áberandi og virka tindrandi. En eins og með flest þá
er algjörlega bannað að ofgera þessu.
Sandalar. Já, sandalatíminn er kominn! Þó svo að örlítil gola sé ennþá aðkæla okkur niður og ná okkur niður á jörðina þá er allt í lagi
líka að vera í fallegum sokkum undir sandölunum. Veðrið er þó
allavega það hlýtt að manni verður ekki kalt á tásunum ef mað-
ur er í þunnum og sætum sokkum. Svo þegar sólin kíkir út þá
þarf bara að smella sér úr sokkunum og sumarskapið fer á fullt.
Star Trek. Æji er það? Hvað er skemmtilegt við Star Trek? Þaðer ekki eins og Star Wars sé eitthvað svakalega svalt en Star
Trek?? Star Wars er þó ævintýri en Star Trek er bara eitthvert fólk
sem er mjög líklega geðveikt. Með krumpur á nefinu, álfaeyru og
klædd í einhvers konar kafarabúning. Það er algjörlega ekkert
töff við að vera Star Trek-nörd.
Of hátt skorin sundföt. Hver man ekki eftir Baywatch-þáttunum og sund-bolunum sem voru hræðilega hátt skornir sennilega í tilraun til að láta
leggina virðast lengri? Þetta lúkk er frekar subbulegt og minnir helst á súlu-
dansara. Þetta er engan veginn málið í dag og það er einmitt andstæðan
sem er í tísku núna. Bikiní-buxurnar og skálmarnar á sundbolnum eiga að
vera frekar í lægri kantinum og minna örlítið á boxer-snið.
Stuttar rifnar gallabuxur. Ekki einu sinni láta ykkur dettaþað í hug að þetta sé sniðugt. Að klippa skálmarnar af
gömlum gallabuxum og redda stuttbuxnaþörfinni þannig!
Fuss og svei. Þetta er alls ekki flott og sérstaklega ekki ef
buxurnar eru klipptar svo stuttar að rasskinnarnar kíkja
næstum því út. Það er vel hægt að finna fínar stuttbuxur á
ágætisverði en þetta er ekki leiðin.
INNI ÚTI
...fær Selma Björnsdóttir fyrir að
hafa heillað blaðamennina í
Kænugarði upp úr skónum en
margir þeirra voru miklir aðdá-
endur og fékkst hún meðal ann-
ars til að syngja bút úr laginu All
out of luck fyrir þá.
HRÓSIÐ
Það var fremur rólegur dagur hjá íslensku
sendinefndinni sem nú undirbýr sig fyrir
undanúrslit Eurovision-keppninnar sem
haldin verður á fimmtudag í Kænugarði í
Úkraínu. Hópurinn sótti í fyrrakvöld opn-
un á opinberum Evrópuklúbbi, en í gær
var engin skipulögð dagskrá hjá hópnum.
Selma sat þó ekki auðum höndum, því
hvorki hún né þeir sænsku aðilar sem sjá
um upptökur voru ánægðir með hljóðið í
hljóðnema söngkonunnar. Hún eyddi því
deginum í að finna leiðir til að breyta at-
riðinu þannig að hún væri með hljóð-
nema sem hún getur haldið á í stað
hljóðnema sem festur er um höfuð
hennar. Þetta breytir töluverðu í annars
vel æfðu dansatriði þar sem handahreyf-
ingar Selmu leika þar stórt hlutverk og
vann hún ásamt dönsurum og danshöf-
undum að því að finna lausn á þessu í
gær.
Í dag er ráðgerð skoðunarferð um Kiev
hjá íslenska hópnum, en seinni partinn í
dag verður önnur æfingin hjá Selmu þar
sem væntanlegar breytingar verða prófað-
ar. Þá er ráðgert að lýsingin á sviðinu
verði tilbúin, auk þess sem líklegt er að
dansararnir verði í þeim búningum sem
þær munu verða í á undanúrslitakvöldinu.
Kænugarður er óðum að taka á sig
Eurovision-búning og um helgina mun
keppendum og blaðamönnum fjölga
mikið, enda koma þá til landsins þeir
sem ekki þurfa að taka þátt í und-
ankeppninni á fimmtudag.
PJETUR SIGURÐSSON SKRIFAR FRÁ KÆNUGARÐI
Selma breytir dansinum
BREYTTUR DANS Selma Björnsdóttir er hætt við að nota handfrjálsan míkrafón og þarf
því að breyta dansinum.
MUGISON Á FERÐ OG FLUGI Örn Elías,
betur þekktur sem Mugison, er önnum
kafinn við tónleikahald þessa dagana og er
meðal annars nýkominn heim úr tónleika-
ferð um Evrópu