Fréttablaðið - 17.05.2005, Blaðsíða 19
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 38
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is
4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
26
12
/2
00
4
fasteignir@frettabladid.is
Um 22 milljónir íslenskra
króna hafa borist til endurbóta
á Nesstofu á Seltjarnarnesi frá
danska styrktarsjóðnum
Augustinus Fonden. Styrkurinn
bætist við framlag Seltjarnar-
nesbæjar og stuðning mennta-
málaráðuneytisins. Nesstofa er
langelsta húsið á Seltjarnarnesi
og var reist á árunum 1761-63
yfir nýskipaðan landlækni,
Bjarna Pálsson, sem heimili,
læknastofa, kennsluhúsnæði
og apótek. Danski hirðarkitekt-
inn Jacob Fortling teiknaði það.
Eftir viðgerðirnar verður Nes-
stofa sýnd og notuð á hátíðar-
stundum undir samkomur og
fundarhöld og við undirritun
merkra samninga.
Skuggagarðar, nýir stúdenta-
garðar í miðbænum, munu rísa
við Lindargötu þar sem gamla
Ríkið var til húsa. Húsin verða
þrjú með samtals 98 einstak-
lingsíbúðum og er stefnt að því
að þær fyrstu þeirra verði til-
búnar í ágúst næsta sumar.
Nýtt safnahús er að rísa í
Neðstakaupstað á Ísafirði og er
það fullkomlega í stíl við önnur
hús á svæðinu, sem flest eru
komin til ára sinna. Bygging
þess hófst síðastliðið haust og
vonir standa til að það verði til-
búið á allra næstu vikum. Það
er fyrirtækið Vestfirskir verktak-
ar sem sér um smíðina.
Af vefnum www.bb.is
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 14-15
Akkurat 10-11
Árborgir 30
Ás 38-39
Bifröst 18
Draumahús 23-26
DP Fasteignir 5
Eignalistinn 27
Eignakaup 12
Eignastýring 34
Fasteignamarkaðurinn 19
Fasteignamiðlun 17
Fasteignam. Grafarv. 16
Fasteignam. Hafnarfj. 41
Fyrirtækjasala Íslands 35
Hraunhamar 32-33
Húseign 22
Húsalind 12
Höfði 28
Lundur 6-7
Lyngvík 20-21
Neteign 40
Nethús 13
Nýtt heimili 31
Remax 36-37 & 42
Valhöll 8-9
Viðskiptahúsið 29
Garðurinn er sérlega fallegur við húsið. Þar er að finna fjölmargar trjátegundir, holtagrjót, heitan pott og
matjurtagarð. Aukinheldur eru tvennar góðar svalir á efri hæð hússins. LIGGUR Í LOFTINU
í fasteignum
MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINSER ÞÍN FASTEIGN AUGLÝST HÉR?
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 17. maí,
137. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.06 13.24 22.45
AKUREYRI 3.30 13.09 22.50
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Búslóðinni pakkað í gám BLS. 2
Gamalt hús með sál BLS. 4
Fasteignasalan Þingholt er með ein-
staklega fallegt og vel við haldið ein-
býlishús við Skógarhjalla í Kópavogi
til sölu. Húsið er 275 fermetrar, búið
fimm svefnherbergjum og allt hið
vandaðasta að innan sem utan.
Gengið er inn í húsið á neðri hæð en þar er
rúmgóð flísalögð forstofa með stórum fata-
skápum með hurðum úr kirsuberjaviði.
Gólf í forstofu er hitað. Parkettlagður
gangur tekur við og við hann eru fjögur
herbergi; eitt stórt parkettlagt svefnher-
bergi með útgengi á verönd og í garð, park-
ettlagt vinnuherbergi, flísalagt baðher-
bergi með rúmgóðri sturtu, geymsluher-
bergi með frystikistu og skápum. Allar
hurðir í húsinu eru nýjar, þær eru úr kirsu-
berjaviði og með fallegum húnum.
Hringstigi er upp á aðra hæð hússins.
Þar eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi,
borðstofa, eldhús og þvottahús. Tvennar
stórar yfirbyggðar (opnanlegar) svalir með
létt yfirbragð eru á efri hæðinni. Aðrar
snúa í austur, hinar í vestur. Eldhús er
parkettlagt og með vandaðri innréttingu og
tækjum. Inni af eldhúsi er þvottahús og
þaðan útgengt í garð. Tvö svefnherbergi
eru með parketti og hjónaherbergi er
korklagt með stórum skápum. Baðherbergi
er með góðri innréttingu, sturtuklefa og
baðkari. Í borðstofu er sérstaklega hönnuð
innrétting fyrir hljómtæki, diska, nótur
o.fl.
Garðurinn er mjög fallegur, með holta-
grjóti, heitum potti og skjólgóðri verönd.
Garðurinn er prýddur ýmsum af fallegustu
trjátegundum landsins auk þess sem mat-
jurtagarði hefur verið komið haganlega
fyrir. Réttur til að byggja bílskúr liggur
fyrir en bílaplan er hitalagt. Húsið er ný-
málað að utan og stutt er í alla þjónustu.
Húsið er teiknað af Gunnari Guðmunds-
syni arkitekt, um hönnun garðs sá Gunnar
Gunnarsson landslagsarkitekt og innrétt-
ingar eru hannaðar af Hans Ólafssyni arki-
tekt.
Nánari upplýsingar um húsið eru veittar
á skrifstofu Þingholta í síma 590 9500. ■
Glæsilegt einbýli á
skjólgóðum útsýnisstað