Fréttablaðið - 17.05.2005, Blaðsíða 74
FÓTBOLTI Opnunarleikurinn í
Landsbankadeild karla var ekki
rismikill og bar þess keim að
þetta væri fyrsti leikur þessara
liða í sumar. Fyrirfram var búist
við að FH-ingar myndu klára leik-
inn hér suður með sjó enda fóru
Hafnfirðingar létt með Keflvík-
inga í leik liðanna í Meistara-
keppni KSÍ í síðustu viku.
Gestirnir byrjuðu af krafti en
smám saman tókst heimamönnum
að ná betri tökum á leiknum og
voru heimamenn sterkari aðilinn
fyrsta stundarfjórðung leiksins.
Guðmundur Sævarsson lét reyna
á þolrif Daða Lárussonar í mark-
inu eftir korters leik þegar hann
átti góða aukaspyrnu sem Daða
tókst að slá í horn. Að mörgu leyti
þvert gegn gangi leiksins skoruðu
svo gestirnir fyrsta markið þegar
Tryggvi Guðmundsson fór illa
með Guðjón Antoníusson, lék inn í
vítateiginn og lét skotið ríða af
sem hafnaði í fjærhorninu. Frá-
bært mark hjá Tryggva í sínum
fyrsta leik í langan tíma hér á
landi en hann sýndi í leiknum að
hann verður baneitraður í sumar.
Eftir mark gestanna datt botninn
úr leik heimamanna og þeir náðu
sé engan veginn á strik það sem
eftir lifði hálfleiksins. Þeir
komust lítið áleiðis gegn sterkri
vörn gestanna með þá Auðun
Helgason og Tommy Nilsen í
broddi fylkingar.
Seinni hálfleikurinn var ansi
dapur þegar á heildina var litið og
það gerðist nánast ekkert allan
síðari hálfleikinn. Keflvíkingar
eins og áður segir komust lítið
áleiðis fyrir utan eina tilraun
þegar Hólmar Örn Rúnarsson lék
skemmtilega á Guðmund Sævars-
son en skot hans var slakt og átti
Daði Lárusson í litlum vandræð-
um með það.
Það var lítið sem gerðist eftir
þetta þangað til á lokamínútunum
þegar FH-ingar náðu skæðri
skyndisókn og komust upp hægra
megin þar sem Ólafur Páll
Snorrason renndi boltanum fyrir
markið þar sem Allan Borgvardt
var einn gegn Ómari, Brian
O’Callaghan sýndi þá ágætis til-
raun til að bjarga marki en varð
fyrir því óláni að renna boltanum
í eigið mark. Gestirnir settu svo
strax eftir þetta þriðja markið
þegar Ármann Smári Björnsson
skallaði boltann yfir Ómar sem
fór í glórulaust úthlaup.
Þegar á heildina er litið var
þessi sigur gestanna verðskuldað-
ur en allt of stór miðað við gang
leiksins. Heimamenn náðu sér
ekki á strik í þessum leik og þá
sérstaklega í seinni hálfleik en
þeir byrjuðu leikinn vel en svo
fjaraði undan leik þeirra þegar á
leið. FH-ingar virka óhemju
sterkir og liðið virkar mjög þétt
og erfitt er að finna glufur í vörn
þeirra með þá Tommy Nilsen og
Auðun Helgason í miðri vörninni.
Auðun Helgason var sáttur við
stigin þrjú. „Við getum ekki annað
en verið sáttir við þennan sigur,
erum virkilega þéttir fyrir og gott
að koma hér til Keflavíkur og ná í
þrjú stig.“ Aðspurður sagðist
hann eiga helling inni og eigi eftir
að verða sterkari. „Ég er búinn að
spila 10 ár í bakverðinum og það
tekur vissulega tíma að finna sig í
þessari stöðu en ég á eftir að
verða sterkari þegar á líður,“
sagði Auðun Helgason.
- gjj
22 17. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
BORGVARDT ÖFLUGUR Daninn Allan Borgvardt átti fínan leik fyrir FH gegn Keflavík í gær.
Hér reynir Jónas Guðni Sævarsson að stöðva Danann snjalla. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR BRAGI
Meistararnir byrja titilvörnina vel
LA
N
DS
BA
N
K
AD
EI
LD
IN
HELOSAN
RAKAKREM
fyrir alla fjölskylduna
Mýkjandi og rakagefandi
KEFLAVÍK 4-5-1
Ómar 5
Guðjón 5
O´Callaghan 7
Johanson 6
Gestur 4
Jónas 5
Hólmar 7
Ingvi 6
(89. Gunnar –)
Baldur 6
Hörður 5
Guðmundur 4
(63. Bjarni 5)
FH 4-3-3
Daði 7
Guðmundur 7
Auðun 8
Nielsen 7
Freyr 7
Ásgeir 6
Heimir 6
Davíð 5
(76. Baldur –)
Jón Þorgrímur 6
(74. ÓIafur Páll –)
Borgvardt 7
(90. Ármann –)
Tryggvi 8
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–8 (5–6)
Horn 2–3
Rangstöður 0–8
0-3Keflavík FH
Keflavíkurvöllur 2.357
0-1 Tryggvi Guðmundsson (37.), 0–2
sjálfsmark (88.), 0–3 Ármann Smári
Björnsson (90.).
Ólafur Ragnarsson (6)
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla
VALUR–GRINDAVÍK 3–1
1-0 Sigurbjörn Hreiðarsson, víti (13.) 2–0
Guðmundur Benediktsson (21.), 3–0 Bjarni
Ólafur Eiríksson (34.), 3–1 Magnús
Þorsteinsson (68.).
FRAM–ÍBV 3–0
1-0 Ross McLynn (34.) 2–0 Andri Fannar
Ottósson (47.), 3–0 Viðar Guðjónsson (90.).
ÍA–ÞRÓTTUR 1–0
1–0 Hjörtur Hjartarson (13.).
KEFLAVÍK–FH 0–3
0–1 Tryggvi Guðmundsson (37.), 0–2 Sjálfsmark
(88.), 0–3 Ármann Smári Björnsson (90.).
Íslandsmeistarar FH ger›u gó›a fer› su›ur me› sjó í gær flar sem fleir mættu Keflvíkingum sem hafa
gengi› í gegnum miklar hremmingar sí›ustu daga.