Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 1
Su›urstrandarkort og uppgröftur í eyjum UPPGANGUR Í ÖLLUM SVEITARFÉLÖGUM: ▲ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG SUÐURLAND MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 VIÐSKIPTI Logos lögmannsþjónusta, sem aðstoðar einkavæðingarnefnd við sölu á Símanum, telur að frétta- tilkynning hóps fjárfesta til fjöl- miðla í fyrradag hafi brotið gegn ákvæði í trúnaðarsamningi sem skilyrði var að undirrita til að fá útboðsgögn afhend. Í lið 5.1 kemur fram að viðkomandi megi ekki upplýsa um einstakar ráðstafanir sem tengjast mögulegum kaupum á Símanum. Áform hópsins komu skýrt fram í tilkynningunni. Hópurinn, sem samanstendur af Burðarási, KEA, Ólafi Jóhanni Ólafssyni, Talsímafélaginu og Tryggingamiðstöðinni og nýtur stuðnings Almennings ehf., skil- aði inn tilboði í fyrradag. Lög- fræðingar á hans vegum eru al- gjörlega ósammála þessari túlk- un, segir einn forystumaðurinn. Auk þess hafi verið óskað eftir áliti Logos fyrirfram en það borist of seint. Þau hafi ekki áhyggjur af þessu. Fjórtán óbindandi tilboð bárust í Símann. Að baki þeim standa 37 fjárfestar, innlendir og erlendir. - bg/sjá síðu 28 Fjórtán óbindandi tilboð bárust í Símann: Deilt um trúna›arákvæ›i Meðallestur 75% 53% *Höfuðborgarsvæðið skv. fjölmiðlakönnun Gallup í maí 2005. á tölublað* 25-49 ára konur ÁFRAM SVIPAÐ Víða bjartviðri vestan til en skýjaðra eystra. Hiti 4-12 stig að deginum, mildast suðvestan til. Hætt við næturfrosti. VEÐUR 4 FIMMTUDAGUR Vala Matt í Sirkus Sjónvarpskon- an snjalla er að hætta með Innlit – Útlit á Skjá einum. FÓLK 54 19. maí 2005 - 131. tölublað – 5. árgangur Er ekki flokkaflakkari Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir sín vistaskipti ekki sambærileg við flokkaflakk Gunnars Örlygssonar. UMRÆÐA 26 Heldur upp á gamlar hippagærur GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR: Í MIÐJU BLAÐSINS ● tíska ● ferðir ● heimili VEÐRIÐ Í DAG ▲ SELMA ÆFÐI Í BÚNINGNUM Selma Björnsdóttir og Eurovision-dansararnir æfðu í gær í fyrsta sinn opinberlega í búningunum sem þau klæð- ast í forkeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld. Álitsgjafar gáfu lítið fyrir búning Selmu og sögðu þeir hörðustu að hann gæti kostað Ísland sæti í úrslitakeppninni. Einhverjar breytingar eru fyrirhugaðar fyrir keppnina í kvöld, þó ekki ýkja miklar. Sjá síðu 54 Ekkja Vu Van Phong: Saknar hans sárt LÖGREGLUMÁL Thanh Viet Mac, ekkja Vu Van Phong sem stunginn var til bana í Hlíðarhjalla á sunnu- dagskvöldið segist sakna manns- ins síns sárt. Framtíðin hafi verið björt en nú sé allt breytt og hún á erfitt með að sjá fyrir sér framtíð- ina. Engu að síður tekur hún sorg- inni með æðruleysi. „Ég hef lítið getað hugsað til framtíðar, það er svo skammt um liðið frá því að maðurinn minn dó,“ sagði Viet. Viet á þriggja ára gamla dóttur og ber annað barn undir belti. Erfitt er framundan hjá ekkjunni ungu. Hún og eiginmaður hennar voru tiltölulega nýlega búin að kaupa sér íbúð sem þarf að borga af auk þess sem rekstur heimilisins kostar sitt. Til að koma til móts við þetta hefur hef- ur verið hrundið af stað söfnun til styrktar henni. Nánar á bls. 4 Talin of flung til a› ættlei›a Kona hefur höf›a› mál á hendur íslenska ríkinu vegna fless a› dómsmálará›uneyti› synja›i henni um a› ættlei›a barn frá Kína. Synjunin bygg›i me›al annars á flví a› konan væri of flung. Í stefnunni er rá›uneyti› saka› um ge›flóttaákvar›anir og fordóma. DÓMSMÁL Kona hefur stefnt ís- lenska ríkinu vegna synjunar dómsmálaráðherra á umsókn hennar til að ættleiða barn frá Kína. Synjunin er byggð á því að konan sé yfir kjörþyngd, auk þess sem aldur hennar er tiltekinn. Þetta er fyrsta dómsmál sinnar tegundar hérlendis og hefst mál- flutningur í Héraðsdómi Reykja- víkur í dag. Konan er nú 47 ára, einhleyp og barnlaus. Hún lagði fram um- sókn um svokallað forsamþykki til ættleiðingar á síðari hluta árs 2003. Taldi hún það fyllilega raun- hæft eftir að einhleypu fólki var gert auðveldara en áður að ætt- leiða barn með lagabreytingu 1999. Konan er alin upp í stórum systkinahóp og á bróður sem er þroskaheftur. Tók hún mikinn þátt í umönnun hans og ber enn fulla ábyrgð á bróður sínum. Kon- an hefur lokið kennara- og sér- kennaranámi frá Kennaraháskóla Íslands sem og stjórnunarnámi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands. Hún hefur starfað sem kennari og deildarstjóri hjá Fjölmennt. Hún býr í eigin íbúð við góðan og stöðugan fjárhag og hefur að- stæður til að vinna mikið heima við. Með öðrum umsóknargögnum hafði hún skilað til ráðuneytisins heilbrigðisvottorði frá hjarta- lækni þar sem hann hafði metið áhættu af hjarta- og æðasjúkdóm- um vegna yfirþyngdarvanda hennar. Læknirinn fann engin merki um slíkt. Í desember 2003 fól dómsmála- ráðuneytið barnaverndarnefnd í héraði að kanna hagi konunnar. Benti ráðuneytið nefndinni „á meint yfirþyngdarvandamál stefnanda...“ að því er segir í stefnu. Eftir að hafa skoðað málið mælti barnaverndarnefndin með því að konan fengi að ættleiða. Í mars 2004 leitaði ráðuneytið álits ættleiðingarnefndar og benti það nefndinni einnig sérstaklega á að konan væri yfir kjörþyngd. Öfugt við barnaverndarnefndina mælti ættleiðingarnefndin gegn því að konan fengi að ætleiða. Í júlí 2004 hafnaði ráðuneytið svo umsókn konunnar. Konan gerir þá kröfu fyrir dómi, að úrskurður ráðuneytisins verði felldur úr gildi. Einnig að viðurkennt verði með dómi að hún uppfylli öll skilyrði til að fá að ættleiða barn frá útlöndum. „Byggir stefnandi á því að stjórnvaldsákvörðun ráðuneytis- ins sé þannig byggð á geðþótta- ákvörðunum og fordómum og standist hvorki lög né rök,“ segir í stefnunni. -jss/ Sjá síðu 2 M YN D /G ET TY I M AG ES Misstu af titlinum Róberti Gunnarssyni, Sturlu Ásgeirssyni og félögum í Århus GF mistókst að tryggja sér danska meistaratitilinn í handbolta á heimavelli í gær. ÍÞRÓTTIR 34 AGNES BRAGADÓTTIR OG ORRI VIGFÚSSON Lögmennirnir sem aðstoða einkavæðingar- nefnd telja fjárfestahópinn sem forsvars- menn Almennings ehf. styðja hafa brotið trúnað. 01 Forsíða fimmtudagur 18.5.2005 22:06 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.