Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 6
6 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR Íraskur undirhershöfðingi drepinn: Al-Zarqawi kyndir undir ófri›arbálinu BAGDAD, AP Uppreisnarmenn skutu undirhershöfðingja í íraska inn- anríkisráðuneytinu til bana í gær. Hátt settir bandarískir erindrek- ar í landinu segja að ofbeldisalda undanfarinna vikna sé hryðju- verkamanninum Abu Musab al- Zarqawi að kenna. Rósturnar í Írak héldu áfram í gær sem aldrei fyrr. Setið var fyr- ir bifreið Ibrahim Khamas undir- hershöfðingja í Bagdad í gær og hann skotinn til bana. Í síðustu viku voru tveir starfsmenn innan- ríkisráðuneytisins drepnir en það fer með öryggis- og lögreglumál. Samtök Jórdanans al-Zarqawi, forsprakka al-Kaída í Írak, viður- kenntu fljótlega að hafa staðið á bak við tilræðið. Bandarískur embættismaður í Írak greindi frá því í gær að al- Zarqawi hefði boðað fylgismenn sína til fundar í Sýrlandi í síðasta mánuði til að hvetja þá til dáða í baráttunni gegn hernámsliðinu og íröskum bandamönnum þess. Á hann að hafa hvatt til að bíl- sprengjur yrðu notaðar í ríkari mæli. Í síðasta mánuði var 21 bíl- sprengjuárás gerð í Bagdad, sam- anborið við 25 allt síðasta ár. Lík sjö manna fundust í gær í bænum Amiriyah vestur af Bagdad. Var greinilegt að menn- irnir höfðu verið teknir af lífi. ■ Bandaríkjamenn góma grunaðan hryðjuverkamann: Brug›ist vi› ákalli Fidel Castro HAVANA, AP Eftir áeggjan Kúbverja hafa Bandaríkjamenn handtekið kúbverskan mann sem grunaður er um að hafa framið hryðjuverk fyrir tæpum þrjátíu árum síðan. Tugþúsundir Kúbverja hlýddu ákalli leiðtoga síns, Fidel Castro, og fóru í kröfugöngu að bandarísku sendi- skrifstofunni í Havana á mánu- daginn. Með göngunni vildu yfir- völd á Kúbu knýja Bandaríkja- menn til að handtaka Luis Posada Carriles, 77 ára Kúbverja sem sagður er hafa grandað kúbverski farþegaflugvél með 73 manns innanborð árið 1976. Castro styður kröfur Venesú- elamanna um að fá Carriles framseldan en hann var áður á mála hjá CIA og venesúelsku leyniþjónustunni. Hann hefur sótt um pólitískt hæli í Banda- ríkjunum. Castro var í fylkingarbrjósti göngumanna og hrópaði slagorð gegn hryðjuverkum og „kenning- um og aðferðum nasista“. Hann sagði það ótrúlega hræsni af hálfu Bandaríkjamanna ef þeir myndu láta undir höfuð leggjast að handtaka menn sem hefðu framið hryðjuverk gegn Kúbverjum á meðan þeir heyja stríð gegn hryðjuverkum annars staðar í heiminum. Á þriðjudaginn brugðust Bandaríkjamenn við áskoruninni og handtóku Carriles í Miami í Flórída. Ekki er þó víst að hann verði framseldur. ■ LUIS POSADA CARRILES Hann er sagður hafa grandað kúbverski farþegaflugvél með 73 manns innanborðs árið 1976. HVALVEIÐAR Valdahlutföllin í Al- þjóðahvalveiðiráðinu eru að breytast hvalveiðiþjóðunum í vil. Japanar hugsa sér gott til glóðar- innar á ársfundi ráðsins sem hefst í næstu viku en íslenska sendi- nefndin varar þó við of mikilli bjartsýni. Ársfundur Alþjóðahvalveiði- ráðsins fer fram í Ulsan í Suður- Kóreu 27. maí – 24. júní næst- komandi og sem fyrr skipt- ast aðildarríkin mjög í tvö horn í afstöðu sinni til veiðanna. Síðustu ár hafa hvalveiðiþjóðir á borð við Ís- lendinga og Japana ekki riðið feitum hesti frá þessum samkomum en svo virðist sem valdahlutföllin séu að breyt- ast í ráðinu. Joji Morishita, fulltrúi í japönsku sendinefndinni á fundin- um, telur að forskot ríkjanna sem aðhyllast veiðibann sé aðeins eitt eða tvö atkvæði og því er af sem áður var. „Vatnaskil gætu orðið á þessum fundi.“ sagði hann í sam- tali við AP-fréttastofuna í gær. Undir þetta tekur Ásta Ein- arsdóttir, varaformaður íslensku sendinefndarinnar sem bendir á að tvö ný ríki séu að koma inn í ráðið sem séu hlynnt hvalveið- um: Malí og Kíribatí. Þar við bætist að ákveðinn miðjuhópur hefur verið að myndast innan ráðsins en í honum eru ríki á borð við Bandaríkin, Holland og Svíþjóð. Þau hafa tekið virkan þátt í stefnumótun um að komið verði á stjórnkerfi á hvalveiðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins, svonefnt RMS-kerfi. Ásta segir að talsverðar um- ræður hafi farið fram um RMS- kerfið undanfarna mánuði en þær hafi þó ekki skilað eins miklu og vonast hafi verið til. „Ef þetta verður hins vegar samþykkt þá mun það hafa mjög mikla þýðingu fyrir okkur Íslendinga því það þýddi einfaldlega að atvinnuveið- ar yrðu leyfðar með ákveðnum skilyrðum. Við reynum eins og við getum að koma þessu í höfn á fundinum en því miður eru ekki alltof miklar líkur á því, maður má ekki vera of bjartsýnn.“ sveinng@frettabladid.is Dæmdur til sektar: Fullur á traktor DÓMSTÓLAR Maður var dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra til greiðslu 130 þúsund króna sektar fyrir að aka dráttarvél ölv- aður um miðjan desember þannig að hún endaði utan vegar í Víkur- skarði. Þá var hann sviptur öku- leyfi í tvö ár, en dómurinn var upp kveðinn síðasta föstudag. Maðurinn neitaði sök og kvaðst hafa hafið drykkju eftir að akstri lauk og hann kominn út af vegna hálku í skarðinu. Þá sagði hann rangt eftir sér haft í lögreglu- skýrslu og kvaðst hafa verið drukkinn við skýrslutökuna. Vitni báru um undarlegt akst- urslag mannsins og hvernig sjá mátti för eftir dráttarvélina veg- kanta á milli í nýföllnum snjó. - óká Dönsk börn: Hreyfa sig allt of líti› DANMÖRK Dönsk börn hreyfa sig allt of lítið samkvæmt nýrri rann- sókn. Í stað þess að hreyfa sig sitja þau meira en þrjár klukkutíma á dag við sjónvarp eða tölvu. Rannsóknin náði til 15 ára gam- alla barna og leiðir í ljós að helm- ingur þeirra sest umsvifalaust fyr- ir framan sjónvarpið eða tölvuna þegar skóla lýkur. Vegna þessa meðal annars fá þau ekki tilhlýði- lega hreyfingu sem er talin vera ein klukkustund á dag. Dönsk heilbrigðisyfirvöld segja þetta ávísun á margs konar sjúk- dóma í framtíðinni. ■ MIKIL FJÖLGUN EFTIRLAUNA- ÞEGA Búist er við að eftirlauna- þegum í Svíþjóð fjölgi um 21 af hundraði á næsta áratug. Gert er ráð fyrir að Svíar eldri en 65 ára verði tvær og hálf milljón árið 2050 en þeir eru um ein og hálf milljón nú. MEIRU LANDAÐ EN Í FYRRA Íslensk fiski- skip hafa komið með hundrað tonnum meiri afla að landi það sem af er þessu fiskveiðiári en þau gerðu á því síðasta. Fiskistofa: Meira veitt nú en í fyrra SJÁVARÚTVEGUR Umtalsvert meira hefur veiðst af ýsu, ufsa, karfa og steinbít á fyrstu mánuðum þessa árs en sömu mánuði í fyrra. Nem- ur aukningin um og yfir 20 pró- sentum á þessum fjórum tegund- um. Þá hefur veiði á kolmunna auk- ist um heil 92 prósent milli ára, úr 33 þúsund tonnum í 64 þúsund tonn, og humarveiðin er 60 pró- sentum meiri en í fyrra. Á móti hefur þorskveiði dregist saman um fjögur prósent og síld- og rækjuveiði um heil 80 prósent. Heildarafli íslenskra skipa á fyrstu átta mánuðum fiskveiði- ársins er þannig orðinn tæp 1.300 þúsund tonn, sem er tæplega hundrað þúsund tonnum meira en á síðasta fiskveiðiári. - aöe SVÍÞJÓÐ NÝTT 7UP FREE Laust við allt sem þú vilt ekki! Ekki kaloríur Ekki sykur Ekki koffein Ekki kolvetni Ekki litarefni PRÓFAÐU NÝTT SYKUR LAUST 7UP FREE LAGÐUR Í KISTU Ættingjar Ibrahim Khamas undirhershöfðingja, sem banað var í gær- morgun, höfðu hröð handtök við að leggja hann í kistu og bera til mosku. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P ÁSTA EINARSDÓTTIR Kemst Ísland í úrslitakeppni Eurovision? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á a› reisa fleiri álver hérlendis? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 14,1% 85,9% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Hvalvei›ifljó›irnar styrkja stö›u sína Ársfundur Alfljó›ahvalvei›irá›sins hefst í næstu viku. Ríki sem hlynnt eru hvalvei›um hafa sótt í sig ve›ri› á undanförnum misserum og ætla sér stóra hluti á fundinum. Íslenska sendinefndin varar fló vi› of mikilli bjarts‡ni. VEIÐAR Í ATVINNUSKYNI HEIMILAÐAR? Margt bendir til að hvalveiðiþjóðunum sé að vaxa fiskur um hrygg í Alþjóðahvalveiðiráðinu. 06-07 18.5.2005 21:13 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.