Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 68
36 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Ólafur Ingi Skúlason fyr- irliði U21 landsliðsins verður í sviðsljósinu þegar liðið leikur gegn jafnöldrum sínum frá Ung- verjalandi og Möltu í byrjun júní. Ólafur er að yfirgefa Arsenal og verður fjöldi njósnara að fylgjast með honum í landsleikjunum tveimur. Hann er nýkominn til landsins en á dögunum var hann til reynslu hjá hollenska liðinu Gröningen, liðið er í leit að hægri bakverði en Ólafur hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við félag- ið til að leika þá stöðu. ,,Ég er orðinn það gamall að ég vill fara að leika mína stöðu, sem er á miðri miðjunni. Ég hef ekki áhuga á að ganga til liðs við félag þar sem ég fæ ekki einu sinni tækifæri til að sýna hvað ég kann því ég spila ranga stöðu. Við vor- um því sammála um að ég væri ekki rétti aðilinn í þetta,“ sagði Ólafur í samtali við Fréttablaðið. Í gær var haft samband við umboðsmann Ólafs frá skoska lið- inu Hearts sem vildi vita um kaup og kjör. Ólafur æfði hjá félaginu fyrir skömmu en þjálfari þess var látinn fara og málið því í mikilli óvissu. Nú hefur Hearts hinsveg- ar sagt að maður hjá félaginu verði meðal áhorfenda á leikjun- um gegn Ungverjalandi og Möltu. ,,Hearts er ágætur klúbbur og allar aðstæður eru fínar. Ég hef allar dyr opnar en eftir umhugsun vil ég frekar leika í Champions- hip-deildinni á Englandi (næstefsta deild),“ sagði Ólafur en nokkur lið um miðja deild og í neðri hlutanum hafa áhuga á hon- um. Um tíma var Ólafur spennt- astur fyrir Brentford en þjálfari liðsins lagði áherslu á að fá hann, liðið var í baráttu um að komast upp í deildina en er nú dottið úr umspilinu og það því úr sögunni líklegast. Búast má við njósnurum á landsleikina frá Ítalíu og Noregi auk þeirra frá Bretlandseyjum. ,,Ítalskur umboðsmaður sem ég er í sambandi við hefur tilkynnt mér að það komi menn frá ítölsku lið- unum Perugia, Torino og Verona sem eru öll í Serie-B. Það er möguleiki á að ég fari þangað eft- ir landsleikina. Það er því mikil- vægt fyrir mig að standa mig í þessum landsleikjum.“ - egm Ólafur Ingi mjög vinsæll ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S PR E 28 28 5 5 /2 00 5 ERTU BÚINN AÐ STILLA UPP DRAUMALIÐINU ÞÍNU Á VISIR.IS? Þjálfarar í Landsbankadeildinni eru búnir að vinna heimavinnuna sína. Ný þjónusta fyrir Draumaliðsþjálfara: BOLTAVAKTIN - allt beint af vellinum á visir.is Stigahæstu liðin eftir 6, 12 og 18 umferðir fá veglega vinninga: Ferð fyrir tvo á leik á Englandi. PSP, nýja leikjatölvan frá Playstation. Gjafabréf frá Landsbankanum. Áskrift að Sýn. Framherjinn Didier Drogba: Me› heimflrá FÓTBOLTI Didier Drogba hjá Chel- sea hefur viðurkennt að hafa þurft að kljást við heimþrá í vet- ur, allt frá því að hann gekk til Chelsea frá Marseille í sumar fyr- ir metfé. Drogba segir að hann gæti vel hugsað sér að snúa aftur til Marseille ef liðið væri í meist- arabaráttu í Frakklandi en svo er ekki á þessari leiktíð. „Ég hef fundið fyrir heimþrá og Marseille skipar stóran sess í hjarta mínu. Ég hélt því fram þegar ég fór frá félaginu og það hefur ekkert breyst,“ segir Drogba. „Einn daginn langar mig að verða franskur meistari, og best væri að sjálfsögðu ef það yrði með Marseille. Lífið í Englandi er ekki auðvelt. Það verður að aðlag- ast og það er ekki auðvelt fyrir mig. Þetta er svo allt öðruvísi menning en ég á að venjast.“ - vg DIDIER DROGBA Segir það ólýsanlega til- finningu að hafa fengið að handleika enska meistarabikarinn. Fyrirli›i íslenska U-21 árs landsli›sins, Ólafur Ingi Skúlason, ætti ekki a› vera í vandræ›um me› a› finna sér félag enda hefur fjöldi félaga bori› víurnar í hann. Ítölsk li› ætla a› njósna um Ólaf Inga me› unglingalandsli›inu í sumar. VINSÆLL LANDSLIÐSMAÐUR Það verður pressa á Ólafi Inga Skúlasyni með unglingalands- liðinu í sumar enda mun fjöldi njósnara fylgjast með. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Hollenski landsliðsmaðurinn Mark van Bommel: Genginn í ra›ir Barcelona FÓTBOLTI Hollenski landsliðsmað- urinn Mark van Bommel hefur bundið enda á margra mánaða vangaveltur um framtíð sína með því að skrifa undir þriggja ára samning við nýkrýndu Spánar- meistarana í Barcelona. Hinn 28 ára gamli miðjumaður hafði fyrir löngu lýst því yfir að hann myndi yfirgefa herbúðir PSV þegar samningur hans rynni út í lok þessa tímabils og hafði hann verðið orðaður við fjölmörg lið í Evrópu, m.a. Tottenham og Liverpool. Gera má ráð fyrir því að hollensku tengslin hjá Barcelona hafi vegið þungt í ákvörðun van Bommels en þjálf- ari liðsins er sem kunnugt er hinn hollenski Frank Rijkaard og með liðinu leikur einnig Giovanni van Bronckhorst. Van Bommel hefur verið hjá PSV frá árinu 1999 og leitt liðið til fjögurra meistaratitla í Hollandi. Hann lék 169 deildarleiki með lið- inu og skoraði í þeim 46 mörk. - vg MARK VAN BOMMEL Sést hér á góðri stundu með PSV í Meistaradeildinni fyrr í vetur. Það er farið að draga til tíðinda í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta: Meistararnir a› finna taktinn KÖRFUBOLTI Eftir að hafa lent mjög óvænt undir 2-1 í rimmu sinni við meiðslum hrjáð lið Indiana Pacers hafa meistarar Detroit Pistons nú sett í fluggírinn og eru nú í lykil- stöðu til að klára einvígi liðanna. Fimmti leikur liðanna var háður í Detroit í fyrrinótt en þar sýndu heimamenn gamla takta í varnar- leiknum og eru komnir í 3-2 í ein- víginu. Detroit sigraði örugglega, 86- 67, og gestirnir frá Indiana áttu aldrei möguleika í leiknum. Ben Wallace var upp á sitt allra besta í fyrrinótt og auk þess að hirða urmul frákasta eins og hans er von og vísa var hann stigahæstur í liði sínu með 19 stig. Fátt virðist nú benda til annars en að ösku- buskuævintýrinu í Indiana sé að ljúka, en liðið hefur náð ótrúleg- um árangri í úrslitakeppninni þrátt fyrir mikil meiðsli lykil- manna. Næsti leikur liðanna verð- ur í Indiana í kvöld og mikið má vera ef það verður ekki síðasti leikur Reggie Miller á löngum og glæstum ferli í deildinni. Í vesturdeildinni er San Anton- io Spurs komið í góða stöðu gegn Seattle Supersonics eftir góðan sigur á heimavelli í fimmta leik liðanna, 103-90. Það var argent- ínski stormsveipurinn Manu Gin- obili sem var maðurinn á bak við sigur Spurs í leiknum, en hann hefur verið liði sínu ákaflega mik- ilvægur í vetur. Ginobili var sett- ur aftur í byrjunarliðið fyrir leik- inn og svaraði með 39 stigum og hitti mjög vel. Spurs á fyrir höndum erfiðan sjötta leik í Seattle, en meiðsli lyk- ilmanna og hörkuvörn Bruce Bowen á aðalskorara Spurs, Ray Allen, gætu reynst liðinu þungur biti í framhaldinu. - bb STORMSVEIPUR Argentínumaðurinn Manu Ginobili hefur verið Spurs afar mikilvægur með áræðni sinni í sóknar- leiknum. 68-69 (36-37) SPORT 18.5.2005 20:22 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.