Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 29
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 10
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 19. maí,
139. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.00 13.24 22.51
AKUREYRI 3.23 13.09 22.58
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaleik-
stjóri er nýkomin úr ferð um Snæfells-
nes þar sem hún klæddist „mosfellska
lúkkinu“ og var púkalegri en innfædd-
ir. Hún er samt mikið fyrir falleg föt.
„Ég eltist við tísku og hef alltaf gert,
kannski af því að pabbi var svo sniðugur að
kaupa föt á okkur Siggu systur í útlöndum.
Hann var fatafrík og mamma áskrifandi að
Vogue svo við höfðum alltaf flott föt fyrir
augunum,“ segir Guðný.
„Dags daglega er ég samt ferlega púkó
en jafn gasalega smart þegar ég fer eitt-
hvað. Hér í sveitinni er ég mest á klossum,
gallabuxum og bol, svo fer maður í úlpu og
setur húfu á hausinn og hettu þar utan yfir.
Þetta er hið dæmigerða „mosfellska lúkk“.
En jú, jú, það er auðvitað alltaf ein og ein
fín dama hér innan um.“
Þessa dagana heldur Guðný mest upp á
peysur sem hún keypti sér hjá GR, sem er
að hennar mati langflottasta búðin í bæn-
um. „Þetta eru tvær peysur með rennilás,
önnur rauð og hin svört. Svo má ég ekki
gleyma skónum sem ég keypti hjá Hobbs í
London í vor. Þeir eru með fylltum hæl og
svona dj... smart og þægilegir, þannig að ég
get þanist á þeim um allar jarðir. Af hverju
er ekki Hobs-verslun á Íslandi? Það eru all-
ar skóbúðir á Íslandi að selja sömu skóna.“
Á unglingsárunum átti Guðný ótal uppá-
haldsflíkur og sumar á hún enn. „Þetta eru
gamlar hippagærur og Afganinn, hann er
æðislegur og ég tími ekki að henda honum
þó heil músafjölskylda hafi hreiðrað um sig
í honum úti í skúr.“
Guðný er að leita að stað fyrir upptökur
á nýrri kvikmynd og var á Snæfellsnesinu
um Hvítasunnuna. „Þetta verður eins konar
spennumynd sem fjallar um grafalvarleg
málefni. Hún á að gerast fyrir 30 árum og
fjallar meðal annars um sifjaspell. Það er
nokkuð sem grasserar í þjóðfélaginu og
verður að uppræta og ég ætla að taka þátt í
því átaki fyrir mitt leyti og dætra minna.“
edda@frettabladid.is
Músafjölskylda hreiðraði
um sig í Afgananum
ferdir@frettabladid.is
Söguganga á slóðum Sturl-
ungu verður farin á vegum
Ferðafélags Íslands helgina, 27.-
29. maí. Farið verður á einka-
bílum og gist í svefnpokum
að Laugum í Sælingsdal. Far-
arstjóri er Magnús Jónsson.
Burt úr bænum er þjónusta
sem Flugfélag Íslands veitir
starfsmannafélögum og hópum
af öllum stærðum. Hægt er að
panta ferðir til allra áfanga-
staða félagsins innanlands og
einnig til Færeyja til að njóta
þeirrar fjölbreyttu afþreyingar
sem í boði er.
Árleg hjólaferð í Bása verður
farin á vegum Útivistar nú á
laugardag, 21. maí. Farið verður
á eigin bílum að Stóru-Mörk en
þaðan verður hjólað, um 25
kílómetra leið. Ferðalangar
þurfa bara að muna eftir nesti
og viðgerðasettinu.
Gljúfurá á mótum Vestur-og
Austur-Húnavatnssýslu er ein af
þeim laxveiðiám sem er í út-
boði fyrir
klúbba eða
félög. Þar er
gert ráð fyrir
tveimur
stöngum í
senn. Upplýsingar eru veittar í
síma 452 4473 hjá Birni. Sum-
arið er komið og sumrinu fylgir
veiði.
Gönguferðir á Íslendingaslóð-
ir í Kaupmannahöfn með sögu-
manninum Guðlaugi Arasyni
eru farnar frá Ráðhústorginu kl.
13 að staðartíma á sunnudög-
um, þriðjudögum og miðviku-
dögum í sumar. Þær taka um
það bil tvo tíma. Það er Islands
Center sem stendur fyrir þeim.
Verðið er 100 dkr. á mann en
börn 12 ára og yngri fljóta frítt
með.
Guðný í uppáhaldspeysunni og með skóna sem hún klæðist við öll tækifæri.
LIGGUR Í LOFTINU
í ferðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA BRÚÐKAUP
FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Við fórum í sæ-
dýrasafnið sem er
alveg eins og
dýragarður nema
það eru bara fisk-
ar af því að öll hin
dýrin drukknuðu.
Litríkir leðurjakkar áberandi
BLS. 6
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
SMÁAUGLÝSINGAR
Á 995 KR.
ÞÚ GETUR PANTAÐ
ÞÆR Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
29 (01) Allt-Forsiða 18.5.2005 15.19 Page 1