Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 40
4 ■■■ { SUÐURLAND }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Breyta nafni á LANDAKORTI Ferðamálasamtök á Suðurlandi, Suðurstrandar- hópurinn, vinna nú að endurgerð korts sem kallað var Lágsveitarkort. Nafn kortsins er talið fremur hallærislegt og nýja landa- kortið gengur undir nýju nafni, Suðurstrandarkort, þó að það sé af sama svæði. „Varla er hægt að segja að mikið hafi verið gert fyrir ferðamenn í Þorlákshöfn. Að vísu er tjald- svæðið hérna mjög huggulegt og góð aðstaða fyrir ferðamenn en í sumar verður aðstaðan bætt enn frekar. Einnig má geta þeirrar vinnu sem ferðamálasamtök á Suðurlandi leggja í endurgerð landakorts sem fær nýtt nafn,“ segir Barbara Guðnadóttir, menningarfulltrúi Ölfuss. „Á Suðurstrandarkortinu hafa stígar verið merktir og göngu- stígakort er í bígerð. Það er margar fínar gönguleiðir að finna hérna í Ölfusinu. Við setj- um upp sýningu í Ráðhúsi stað- arins með uppstoppuðum fisk- um á næstu dögum og þar get- ur m.a. að líta tunglfiskinn sem veiddist hérna í höfninni í haust. Hann er tveggja metra langur og hár og verður til sýn- is í sérstöku glerhýsi. Einnig má geta þess að við erum mjög stolt af golfvellinum okkar, sem er 18 holu. Hann er byggður á sandi, þ.e.a.s. grasið á golfvellinum er sáð á sand sem gerir hann mjúkan og vinsælan meðal golfiðkenda. Golfvöllurinn er á hægri hönd rétt áður en komið er inn í bæinn. Geta má þess að í Þorlákshöfn eru jafnan haldnir Hafnardagar á sumri hverju og í ár verða Hafnardagarnir helgina eftir verslunarmannahelgina. Sjó- mannadagurinn verður einnig stór viðburður hjá okkur þegar að honum kemur.“ „Hér er eitt mesta uppgangssvæðið á landsbyggðinni. Í síðasta mánuði var 50 lóðum úthlutað á Selfossi og voru umsóknir um 5.000 talsins,“ segir Grímur Hergeirsson, verkefn- isstjóri Árborgar með staðsetningu á Selfossi. „Fólk sem flytur hingað kemur að stórum hluta af höfuðborgar- svæðinu og vilja margir meina að hér sé afslappaðra andrúmsloft og barnvænna umhverfi. Lengi vel voru ekki neinir biðlistar á leik- skóla hér, en þessi öra fjölgun undanfarið hefur gert það að verk- um að einhverjir biðlistar hafa myndast. Það er mikil vinna að halda í við fjölgunina. Við hérna í Árborg, á Selfossi og í Hveragerði, lítum hálf- partinn á okkur sem höfuðborgar- búa eða sem jaðaríbúa höfuðborg- arinnar. Það er ekki nema hálftíma keyrsla til höfuðborgarinnar, enda er alltaf að færast í vöxt að fólk sem sækir vinnu í höfuðborginni kjósi að búa á einhverjum þéttbýl- isstaða Árborgar. Þeir sem keyra þarna á milli á hverjum degi skipta orðið hundruðum. Það er því að vonum mikið hagsmunamál fyrir okkur að umferðarmálin séu í góð- um farvegi.“ Grímur segir að á Selfossi sé blómlegt mannlíf og íbúar bæjarins njóti óneitanlega nálægðarinnar við höfuðborgina. „Þó er hægt að sækja hingað mestalla þjónustu. Íbúar á Selfossi þurfa til dæmis ekki lengur að fara í bíó í höfuðborg- inni, því bíó var opnað hér í nýrri viðbyggingu hótelsins fyrir sköm- mu. Segja má að Árborgin sé mjög miðsvæðis, hér eru um 5.000 sum- arbústaðir í næsta nágrenni. Fólk er alltaf að lengja íveru sína í þeim og dvelur í mörgum tilfellum flestar helgar ársins. Það er því dulin bú- seta hér allt í kring og mikil þjón- usta við sumarbústaðina. Gestir sumarbústaðanna sækja hingað í verslanir, sund og alls konar afþr- eyingu. Gullni hringurinn er hér í næsta nágrenni við okkur og við njótum þess óneitanlega í allri þjónustu. Síðan er straumur ferða- manna alltaf að aukast hér í lágsveitir Árnessýslu og þegar margumtalaður Suðurstrandarveg- ur kemur á þjónusta okkar eflaust enn eftir að aukast,“ segir Grímur. „Við erum að rækta rétt undir eina milljón plantna fyrir Vestlendinga, Sunnlendinga og fleiri. Hér eru skógarplöntur áberandi, einar fimm tegundir af greni, 3-4 tegundir af furu, birki, lerki, víðir og reynir,“ segir Hólmfríður Geirsdóttir, annar eigenda á Garðyrkjustöðinni Kvist- um í Aratungu. „Ræktun okkar er í landshluta- bundnu verkefni skógarbænda. Við fluttum hingað árið 2000 en byrj- uðum ræktina 1999. Frá því að við byrjuðum hafa farið að meðaltali 6-700 þúsund plöntur á ári og því hafa farið héðan um það bil 3,5 milljónir plantna.“ Grímur Hergeirsson, verkefnisstjóri Árborgar, hefur tekið eftir því að íbúar höfuðborgarinnar sækja í auknum mæli í lóðir á Selfossi. Mikill uppgangur er á Selfossi. Nýtur nálægðarinnar við höfuðborgina Í Árborg er mikil fólksfjölgun, uppbygging og eftirspurn eftir lóðum. Lóðaverð hefur hækkað, þó að lóðir séu ekki jafn dýrar og á höfuðborgarsvæðinu. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA BL AÐ IÐ /S TE FÁ N Hólmfríður Geirsdóttir og Steinar Jensen hafa verið afkastamikil í ræktun plantna fyrir Vestlendinga og Sunnlendinga. Framleiðsla plantna á fjórðu milljón Barbra Guðnadóttir, menningarfulltrúi Ölfuss á Þorlákshöfn, er hér með veg- legan krabba sem verður meðal sýningargripa í ráðhúsi staðarins. • Hveragerði • Þorlákshöfn • Selfoss • Laugarás • Hella • Hvolsvöllur • Vík • Kirkjubæjarklaustur Heilbrigðisstofnun Suðurlands Öflug undir einu merki 04-05 suðurland OK lesið 18.5.2005 17.02 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.