Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,72 66,04
120,40 120,98
82,87 83,33
11,13 11,20
10,23 10,29
8,99 9,04
0,61 0,62
97,88 98,46
GENGI GJALDMIÐLA 18.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
114,95 -0,70%
4 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Notkun á réttum öryggisbúnaði fyrir börn í bílum hefur aukist:
Færri börn deyja í umfer›inni en á›ur
UMFERÐARMÁL Dauðsföllum barna í
umferðarslysum hefur fækkað
stórlega á síðustu árum að sögn
Sigurðar Helgasonar, verkefnis-
stjóra hjá Umferðarstofu. Á
blaðamannafundi sem Umferðar-
stofa, Lýðheilsustöð og Slysa-
varnafélagið Landsbjörg héldu í
gær voru kynntar niðurstöður
könnunar um öryggi barna í bíl-
um. Á fundinum kom meðal ann-
ars fram að ekkert barn hefur lát-
ist í umferðarslysi á síðustu
þremur árum.
Í könnuninni kemur fram að á
síðustu tíu árum hafi tólf börn lát-
ist í umferðarslysum þar af níu á
árunum 1995 til 1999. Aðeins eitt
barn af þessum tólf notaði réttan
öryggis- og verndarbúnað.
Tæplega fjörutíu börn sex ára
og yngri slasast árlega sem far-
þegar í bíl. Á fundinum var fullyrt
að mun færri börn myndu slasast
ef foreldrar og forráðamenn
barna notuðu réttan öryggis- og
verndarbúnað. Þá er átt við barna-
stóla og öryggisbelti. Öryggisbelti
ein og sér teljast ófullnægjandi
öryggisbúnaður fyrir börn sex
ára og yngri.
Samkvæmt könnuninni hefur
notkun á réttum búnaði stórauk-
ist. Alls nota 84 prósent foreldra
réttan öryggisbúnað fyrir börn
sín, eitt af hverjum tíu notar óvið-
unandi öryggisbúnað en eitt af
hverjum tuttugu notar engan ör-
yggisbúnað fyrir börnin. - jse
Ég sakna hans svo sárt
fia› ríkir mikil sorg á heimili Than Viet Mac, ungu konunnar sem missti manninn sinn af völdum sára
eftir hnífsstungu um hvítasunnuna. Hún á flriggja ára dóttur og er n‡lega or›in ófrísk aftur. Framtí›in
var björt fyrir atbur›i sí›ustu helgar en er nú í rúst.
LÖGREGLUMÁL „Ég sakna mannsins
míns svo sárt,“ sagði hin unga
ekkja, Thanh Viet Mac, þegar
Fréttablaðið heimsótti hana á
heimili hennar í Breiðholtinu í
gær.
Það er mikill harmur kveðinn
að Viet eftir að eiginmaður henn-
ar Vu Van Phong var stunginn til
bana í Hlíðarhjalla í Kópavogi að
kvöldi hvítasunnudags. Eftir
stendur unga konan, fædd 1978,
ásamt þriggja ára dóttur þeirra.
Viet er nýlega orðin ófrísk aftur
og lífið brosti við ungu hjónun-
um þar til hinn skelfilegi atburð-
ur átti sér stað fyrir fáeinum
dögum. Þau unnu bæði í efna-
lauginni Björg í Mjódd og hafa
verið þar afar vel látin.
Tveir vinir Viet voru staddir
hjá henni í gærmorgun. Kalla
varð til túlk svo blaðamaður
gæti rætt við hana því hvorki
hún né aðrir viðstaddir gátu gert
sig skiljanleg á íslensku. Þau
ræddu saman á móðurmáli sínu
víetnömsku meðan beðið var eft-
ir túlkinum og var greinilegt af
látbragði þeirra að þau voru að
fara í gegnum voðaatburðinn
þegar eiginmaður Viet var
stunginn til bana. Eftirtektar-
vert var hve fólkið var æðru-
laust í sorg sinni. Í stofunni stóð
dúkað borð með mynd af hinum
látna, logandi kerti og reykelsi,
víni og matvæli samkvæmt ví-
etnamskri hefð. Fjöldamargir
blómvendir höfðu borist og stöð-
ugur straumur fólks verið í
heimsókn til hennar til að votta
henni samúð. Sumar fjölskyld-
urnar höfðu komið oftar en einu
sinni. Síðdegis í gær eða í dag
átti að liggja fyrir ákvörðun um
hvenær eiginmaður hennar yrði
jarðaður.
„Ég hef lítið getað hugsað til
framtíðar, það er svo skammt um
liðið frá því að maðurinn minn
dó,“ sagði Viet. „Ég veit samt að
það á eftir að reynast mér mjög
erfitt að sjá mér og fjölskyldu
minni farborða. Við keyptum
íbúðina okkar 2002 og fengum 90
prósent lán til að fjármagna
kaupin. Af þessu þarf vitanlega
að borga og reka heimilið. Ég
veit ekki hvernig ég mun leysa
það.“
Viet kvaðst ekki vera með há
laun. Hún hefði ekki bílpróf, en
þyrfti að koma dóttur sinni í leik-
skóla og komast sjálf í vinnuna í
Mjóddinni.
„Ég verð bara að reyna nú að
taka eitt í einu,“ sagði þessi unga
kona, aðdáanlega sterk í sorg
sinni. DV hefur hrundið af stokk-
unum fjársöfnun í samvinnu við
Rauða kross Íslands sem sér um
vörslu þess fjár sem safnast.
Þeir sem vilja styrkja ungu ekkj-
una, dóttur hennar og ófædda
barnið geta lagt inn á reikning
nr: 301 – 26 – 350. Kennitala RKÍ
er 530269 – 1839. jss@frettabladid.is
Spánn:
Ákæra birt
alKaídali›um
MADRID, AP Spænskur dómari hefur
ákært 13 múslima fyrir að tengjast
hryðjuverkasamtökunum al-Kaída
en auk þess er sumum þeirra gefið
að sök að eiga aðild að sprengjutil-
ræðunum í Madríd í mars í fyrra
sem kostuðu 191 mannslíf.
Í ákærunni kemur fram að hinir
grunuðu, sem eru flestir Marokkó-
menn, hafi árið 2002 sett á fót
hryðjuverkasellur í Madríd og
Marokkó. Þeir eiga að hafa talið að
Spánn „væri óvinur íslam og því
væri nauðsynlegt að ráðast gegn
landi og þjóð“.
Mennirnir voru handteknir í
nokkrum lögreglurassíum í vetur og
segja yfirvöld að þar með hafi frek-
ari hryðjuverkum verið afstýrt. ■
VEÐRIÐ Í DAG
SORG Thanh Viet Mac, unga ekkjan við eins konar altari sem sett hefur verið upp samkvæmt víetnamskri hefð. Á því er mynd af mannin-
um hennar heitnum, svo og ávextir, reykelsi, kertaljós, blóm, matvæli og vín.
Fasteignaverð:
Spá enn meiri
hækkun
FASTEIGNAMARKAÐUR Íslandsbanki
spáir því að íbúðaverð hækki um
fimmtán prósent fram á næsta ár
og meðalverð á fermetra fari yfir
200 þúsund á höfuðborgarsvæð-
inu. Bankinn telur að nú sé ágætis
tími til að kaupa þrátt fyrir að verð
sé hátt. Þó mun draga úr hækkun
fasteignaverðs á næstunni og verð
á eftir að staðna árið 2007.
Þetta kom fram í máli Ingólfs
Benders, forstöðumanns grein-
ingar Íslandsbanka, á fundi um
íbúðamarkaðinn í gær. Ingólfur
telur að forsendur bankans séu
frekar hóflegar og aðstæður á
markaði tiltölulega bjartar. - eþa
NOTKUN Á RÉTTUM ÖRYGGIS-
BÚNAÐI FYRIR BÖRN Í BÍL
EFTIR BÚSETU
Neskaupstaður 100%
Selfoss 96%
Reykjavík 86%
Kópavogur 85%
Akureyri 85%
Ísafjörður 84%
Meðaltal landið allt 84%
Bíldudalur 55%
Heimild: Könnun gerð á vegum
Slysavarnarfélagsins Landsbjörg,
Lýðheilsustöð og Umferðarstofu.
LAÐAMANNAFUNDUR Í FURUBORG Einar
Magnús Magnússon, upplýsingarfulltrúi
Umferðarstofu, kynnir niðurstöður könn-
unar um öryggi barna í umferðinni.
MÆLT MEÐ KAUPUM Íslandsbanki spáir að
fasteignaverð hækki um fimmtán prósent.
04-05 18.5.2005 22:37 Page 2