Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 10

Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 10
19. maí 2005 FIMMTUDAGUR Forseti Póllands: fiingkosningar bo›a›ar í haust PÓLLAND, AP Aleksander Kwasni- ewski, forseti Póllands, tilkynnti í gær að þingkosningar færu fram í landinu hinn 25. september næst- komandi. Forsetinn tilkynnti um þetta á sameiginlegum blaðamannafundi með Wlodzimierz Cimoszewicz, forseta pólska þingsins, í Varsjá. Kwasniewski greindi einnig frá því að tveimur vikum síðar, hinn 9. október, yrðu haldnar forseta- kosningar. Öðru fimm ára kjör- tímabili Kwasniewskis lýkur í desember og samkvæmt stjórnar- skrá er honum ekki heimilt að bjóða sig fram í þriðja sinn. Marek Belka, sem farið hefur fyrir minnihlutastjórn Lýðræðis- lega vinstribandalagsins, arftaka- flokks pólska kommúnistaflokks- ins, frá því í maí í fyrra, vildi að þing yrði strax rofið og þingkosn- ingum flýtt. Sú tillaga hans var hins vegar felld og forsetinn gerði honum að sitja áfram uns kosn- ingar færu fram. Belka hefur sjálfur boðað að hann muni ganga til liðs við annan flokk um leið og hann losni undan embættisskyld- um sem forsætisráðherra. Tveir flokkar hægra megin við miðju njóta mests fylgis í Póllandi um þessar mundir, ef marka má skoð- anakannanir, með um 20 prósent hvor. ■ Sjálfstæði Norðmanna 1905: Svíar íhugu›u innrás í Noreg SVÍÞJÓÐ Litlu munaði að Svíar réð- ust á Norðmenn með hernaði árið 1905 þegar Norðmenn sögðu sig einhliða úr ríkjasambandinu við Svíþjóð. Þetta kemur fram í grein í sænska dagblaðinu Dagens Ny- heter, sem komist hefur yfir áður óbirtar minnisbækur manna sem voru í eldlínu sænskra stjórnmála á þessum tíma. Í þeim kemur meðal annars fram að Axel Rappe yfirhershöfðingi og fjölmargir áhrifamenn á sænska þinginu vildu svara sjálfstæðisyfirlýsingu Norðmanna með innrás. Helstu rök þeirra byggðu á því að Svíum stafaði ógn af sjálfstæði Norðmanna og að þeim gæti reynst erfitt að verjast bæði Rússum og Norðmönnum samtím- is kæmi til stríðs. Ekki reyndist meirihluti fyrir þessum skoðunum á sænska þing- inu og um síðir tóks forsætisráð- herrum landanna að komast að samkomulagi um sambandsslitin án þess að til átaka kæmi. ■ Ræddi mannréttindi vi› stúdenta í Peking Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hélt ræ›u á stórum fundi me› stúd- entum vi› Háskólann í Peking og ger›i flar mannréttindamál a› a›alumfjöll- unarefni sínu. Mikilvægir vi›skiptasamningar voru undirrita›ir í Kína í gær. MANNRÉTTINDAMÁL „Það var auð- vitað ekki tilviljun að ég skyldi velja Háskólann í Peking til þess að flytja þennan boðskap og til þess að vísa til reynslu okkar á vettvangi lýðræðis og vísa í lýð- ræðisþróun í Evrópu, þróun mannréttinda og þær hugmyndir sem þessu eru tengdar. Þessi há- skóli hefur verið í fararbroddi á sögulegum tímamótum þegar lýðræðisbylgjan var að reyna að brjótast fram í Kína,“ sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson forseti þeg- ar hann var spurður að því hvers vegna hann ákvað að ræða mann- réttindamál í ræðu sem hann hélt við háskólann. „Það kveður við allt annan tón á fundum mínum núna mið- að við aðra fundi sem ég hef áður átt við ráðamenn í Kína þegar mannréttindamál ber á góma, það er ekki þessi sama spenna,“ sagði Ólafur Ragnar. Ólafur Ragnar hélt einnig ræðu á ráðstefnu íslensku við- skiptasendinefndarinnar þar sem hann lagði áherslu á að hlutverk Íslendinga væri að vera hlekkur og hvati í viðskipt- um Kínverja við Evrópu og Bandaríkin. FL-Group undirritaði samn- ing við Air China um leigu á fimm Boeing-þotum en samn- ingurinn er gerður í framhaldi af kaupum FL-Group á 15 nýj- um flugvélum af gerðinni Boeing 737-800 fyrr á þessu ári, sem var stærsti flugvélakaupa- samningur í sögu félagsins. Vélarnar verða afhentar í júlí á næsta ári. Fulltrúar kínversku borgar- innar Xianyang, Íslandsbanki og Enex, sem er samstarfsfyrir- tæki Orkuveitu Reykjavíkur um útflutning á hitaveituþekkingu, undirrituðu samkomulag um uppbyggingu hitaveitumála í þessari kínversku stórborg. „Það er greinilegt að kínversk stjórnvöld hafa gríðarlegan áhuga á því að nýta jarðvarm- ann sem er víða í Kína,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, stjórnar- formaður Orkuveitunnar, eftir undirritun samkomulagsins í samtali við Talstöðina. Alfreð bætti svo við: „Það er greinilegt að Kínverjar hafa mikinn áhuga á jarðvarma og vilja hafa sam- starf við okkur Íslendinga sem erum kannski mestu sérfræð- ingar í heimi á þessu sviði.“ hallgrimur@talstodin.is oddur@frettabladid.is NORSKIR HERMENN Herir Svía og Norðmanna voru við öllu búnir eftir að Norðmenn lýstu einhliða yfir sambandsslitum 1905. Í FORBOÐNU BORGINNI Sigríður Anna Þórðardóttir, Dorrit Moussaief og Ólafur Ragnar Grímsson. Forboðna borgin er við norðurenda Torgs hins himneska friðar og er hún umlukin gríðarstórum hallargarði þar sem fimm brýr tákna dyggðir Konfúsíusar. Forboðna borgin var höll keisara Ming- og Qing- veldanna með 9.999 byggingum á 74 hektara svæði. Byggingaframkvæmdir hófust árið 1407 og tók það milljón verkamenn og 100 þúsund listamenn 13 ár að ljúka verkinu. M YN D /H AL LG RÍ M U R TH O R ST EI N SS O N BELKA OG KWASNIEWSKI Forsætisráð- herra og forseti Póllands á tali saman. 10-11 18.5.2005 21:55 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.