Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 12
TALIBANI Á ÞING Wakil Ahmed Muttawakil, fyrrverandi utanríkisráðherra talibanastjórnarinnar í Afganistan, lýsti í gær yfir framboði sínu í þingkosningunum í landinu í september. 12 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR Íbúaþróun á Austurlandi: Erlendum körlum fjölgar miki› FÓLKSFJÖLGUN Íbúum Austurlands fjölgaði um 4,6 prósent í fyrra og er það meiri fjölgun en í nokkrum öðrum landshluta, samkvæmt töl- um Hagstofu Íslands. Næst mest fjölgaði fólki á höfuðborgarsvæð- inu eða um 1,3 af hundraði. Aðflutningur fólks til Austur- lands vegna virkjana- og stóriðju- framkvæmda hefur snúið fólks- fjöldaþróun á svæðinu við síðustu ár en áratugina þar á undan fækk- aði fólki þar líkt og annars staðar á landsbyggðinni. Samsetning íbúa á Austurlandi hefur breyst verulega síðustu ár og hlutfallslega mun fleiri íbúar eru þar af erlendum uppruna en í öðrum landshlutum. Þannig eru ríflega ellefu prósent karla með erlent ríkisfang og liðlega fjögur prósent kvenna, en landsmeðal- talið er í kringum þrjú og hálft prósent. Miklir búferlaflutningar karla til Austurlands síðustu ár hafa líka skekkt kynjaskiptinguna á svæðinu og eru þar nú tæplega tólf hundruð karlar á hverjar eitt þúsund konur. - ssal FYRIR BÖRN 2 - 12 ÁRA Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600 *A›ra lei› me› sköttum. Börn flurfa a› vera í fylgd me› fullor›num. 5.995 KR. Fullor›insver› frá 7.995 kr. A›ra lei› me› sköttum www.icelandexpress.is * Húsvíkingar von- gó›ir um álver Kristján Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir samstö›u um sta›arval álvers á Nor›urlandi nau›synlega svo a› verkefni› geti gengi› vel. Sveitastjórinn í Skagafir›i bi›ur menn um a› fl‡ta sér ekki um of í flessum efnum. STÓRIÐJA Húsvíkingar eru bjart- sýnir á að fá álver á svæðið eftir að hafa fundað með mönnum frá Alcoa. „Við höfum alltaf trúað því að það verði á endanum ákveðið að reisa álver hér á Húsavík, þar sem allar aðstæður hér eru fyrir hendi. Í þokkabót virðist vera að skapast um þetta sátt á Norður- landi öllu, sem er okkur hér á Húsavík mikið ánægjuefni,“ segir Reinard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, hefur lagt til að litið verði til Húsavíkur sem fyrsta kosts fyrir álver. Reinhard er ánægður með þetta. „Ég fagna þessari afstöðu Kristjáns, sem er til þess að fallin að efla samstöðu um þetta verkefni,“ Kristján Þór segir afstöðu sína vera eins konar sáttatillögu. „Staðarval álvers hefur verið deilumál hér á Norðurlandi og því tel ég nauðsynlegt að við Norð- lendingar séum einhuga um að vinna sem best að þessu verkefni. Þetta sjónarmið hjá mér, að nefna Húsavík sem fyrsta kost, er liður í því að reyna að skapa samtaka- mátt um stóriðju hér á Norður- landi, sem er algjör forsenda fyr- ir því að svona stórt verkefni geti gengið vel,“ segir Kristján. Ársæll Guðmundsson, sveitar- stjóri í Skagafirði, telur ótíma- bært að ræða um staðarvalið með þeim hætti sem Kristján hefur gert. „Það eru ennþá skiptar skoðanir um hvernig iðnað við viljum byggja upp á Norðurlandi og því tel ég óeðlilegt að strax sé farið að raða stöðunum niður eft- ir röð. Það þarf að ræða þetta mál nánar og betur til þess að sáttin um málið geti á endanum verið víðtæk og marktæk,“ segir Ár- sæll og leggur áherslu á að óvissuþættirnir séu ennþá marg- ir í þessu máli. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir það ekki koma á óvart að Alcoa sé að undir- búa uppsetningu álvers á Norður- landi. „Iðnaðarráðherra hefur alltaf talað fyrir uppbyggingu ál- vers á Norðurlandi og því kemur mér ekki á óvart að samstaða um þá uppbyggingu sé að aukast,“ segir Árni. magnus.halldorsson@frettabladid.is FÓLKI FJÖLGAR MEST Á AUSTUR- LANDI Stóriðjuframkvæmdir fyrir austan hafa gjörbreytt íbúaþróun og kynjaskiptingu á svæðinu ÁLVER VINSÆL Norðlendingar reyna nú að skapa samstöðu um staðarval álvers í lands- hlutanum. Áliðnaðurinn er greinilega helsti valkosturinn til uppbyggingar atvinnulífi í aug- um bæjarstjóra á svæðinu, þótt sumir telji helst til of geyst farið. ÁRNI SIGFÚSSON ÁRSÆLL KRISTJÁN ÞÓR REINHARD 12-13 18.5.2005 21.18 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.