Fréttablaðið - 19.05.2005, Side 46
Margrét Runólfsdóttir hótelstjóri og Guðmundur Sigurhansson sjá um rekstur hótelsins á Flúðum.
Fjölbreytt afþreying á Flúðum
Sex ár eru síðan Flugleiðir byggðu hótel á Flúðum og verið er að byggja fundarsali við
hótelið. Flúðir eru að verða vinsæll ferðamannastaður enda hægt að finna sér margt til
dundurs á þessum fallega stað.
Rudolf Lamprech frá Sviss hefur mikinn áhuga á náttúruvernd og því fagna íbúar Víkur í
Mýrdal komu hans.
Fögnum komu
Svisslendingsins
Svisslendingurinn Rudolf Lamprech flutti til Íslands
fyrir tveimur árum og keypti tvær jarðir í Heiðardal á
nágrenni Víkur.
„Hingað flutti Svisslendingurinn Rudolf Lamprech og ég held að ástæðan
fyrir áhuga hans á Íslandi sé sú að hann hafi hreinlega fallið fyrir náttúru-
farinu og umhverfinu. Hann keypti tvær jarðir í Heiðardal í nágrenni Vík-
ur, sem voru reyndar komnar í eyði. Síðan hefur hann bætt við og hefur
undanfarin ár keypt land umhverfis Heiðarvatn,“ segir Sveinn Pálsson,
bæjarstjóri í Vík í Mýrdal.
„Lamprech er mikill áhugamaður um náttúru en hefur einnig verið um-
svifamikill í fiskeldi í Evrópu. Hann hefur einbeitt sér að því að sleppa laxi
í Heiðarvatn og árnar sem renna úr því. Heiðarvatn er mjög skemmtilegt
veiðivatn og sömuleiðis árnar sem renna úr því. Vegna þess hve mikill nátt-
úruverndarsinni Svisslendingurinn Lamprech er fögnum við komu hans.“
10 ■■■ { SUÐURLAND }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Fyrirspurnum
FERÐAMANNA fjölgar
Upplýsingamiðstöð Árborgar
fyrir ferðamenn er í húsi Ráð-
hússins á Selfossi. Þessi mið-
stöð er staðbundin og þar eru
veittar upplýsingar um ferða-
þjónustu, afþreyingu, gistingu
og allt það sem viðkemur
ferðalögum á Suðurland.
„Á síðasta ári fengum við um
það bil fjögur þúsund ferða-
menn inn til okkar í Upplýs-
ingamiðstöð Árborgar á Selfossi
og sá fjöldi eykst með hverju ár-
inu. Í Hveragerði er hins vegar
upplýsingamiðstöð Suðurlands,
sem er opin formlega allt árið,
og hún veitir upplýsingar um
allt landið,“ segir Margrét Ás-
geirsdóttir, ferðamálafulltrúi
Árborgar.
„Frá miðjum maí og fram til 5.
september á ári hverju eru
starfsmenn hér sem veita ferða-
mönnum upplýsingar og tala
mörg tungumál. Tekin var
ákvörðun um að upplýsingami-
stöð Árborgar yrði hér á
Selfossi, en hún virkar örugg-
lega hérna og er ágætlega stað-
sett þar sem stutt er til allra átta.
Bókasafn Selfoss er í sama húsi,
en það er orðið hluti af upplýs-
ingamistöðinni. Hér geta ferða-
menn séð alla bæklinga frá
Suðurlandi og áformað er að
setja upp stórt landakort í rúð-
urnar á upplýsingamiðstöðinni
á næstu dögum. Upplýsinga-
miðstöðin er opin sex daga
vikunnar en lokað er á sunnu-
dögum. Í upplýsingamiðstöð
Árborgar eru settar upp sýn-
ingar á mánaðarfresti og reyn-
um við að hafa sýningar sem
höfða til ferðamanna. Af kom-
andi sýningum í sumar má
nefna steinasafn, fuglasafn,
eggjasafn og handritasafn. Ég
verð vör við að mikil bjart-
sýni og skemmtilegur andi
ríkir á öllum þéttbýlisstöðum
hérna í Árborginni. Hvar-
vetna getur að líta uppbygg-
ingu og nýja afþreyingu fyr-
ir ferðamenn,“ segir Margrét.
Margrét Ásgeirsdóttir, ferðamálafulltrúi Árborgar, hefur nóg að gera við að
sinna ferðamönnum.
„Á Flúðum er hægt að fara í
gönguferðir, hestaferðir, sund,
gufubað eða heita potta. Hestaleiga
er í nágrenninu og fjöldi merktra
gönguleiða þar sem hægt er að
njóta sveitasælunnar. Vinsælt er að
fara í skoðunarferðir í fyrirtæki á
staðnum og gróðurhús garðyrkju-
bændanna. Sundlaug er á Flúðum
og skammt frá er skemmtilegur
átján holu golfvöllur sem er mikið
sóttur af fólki af höfuðborgarsvæð-
inu sem vill komast í kyrrðina hér
úti á landi. Á Hótel Flúðum eru 32
nýtískulega innréttuð parkettlögð
herbergi, með tveimur einbreiðum
rúmum eða einu tvíbreiðu,“ segir
Guðmundur Sigurhansson, annar
eigenda rekstrarins að Hótel
Flúðum.
„Hótel Flúðir er með öllum nútíma
þægindum. Hér er til dæmis þráð-
laus nettenging í samræmi við
kröfur nútímans. Nýtingin á hótel-
inu er alltaf að batna en hún bygg-
ist að mestu leyti á hópum. Á
veturna er hér mest um ráðstefnur
og árshátíðir, sem sífellt verða vin-
sælli utan höfuðborgarsvæðisins.
Á Hótel Flúðum er opið allt árið og
aðeins lokað yfir jól og áramót. Við
hjónin, ég og Margrét Runólfsdótt-
ir hótelstjóri, sjáum um rekstur
hótelsins en Flugleiðir sjá um
markaðssetningu og bókanir. Við
erum nú þegar farnir að bóka fyrir
næsta og þarnæsta ár, en algengt
er að bókað sé langt fram í tím-
ann,“ segir Guðmundur.
Svar við eftirspurn íbúðarsvæðis
Verið er að undirbúa nýtt svæði í Þorláks-
höfn með lóðir fyrir 117 íbúðir og verður
hluti af því svæði tilbúinn í haust.
„Nýja íbúðarhverfið í Þorlákshöfn er svokallað Búða-
hverfi sem er fyrir sunnan núverandi byggð í Þorláks-
höfn. Við höfum lagt áherslu á að byggja upp grunn-
þættina og tökum þannig á móti aukinni eftirspurn
eftir íbúðarhúsnæði,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson,
bæjarstjóri í Þorlákshöfn.
„Eftirspurnin hefur verið nokkuð yfir landsmeðaltali
hér í Þorlákshöfn og töluvert um að fólk af höfuðborg-
arsvæðinu kjósi að flytja til okkar og stunda sína vinnu
í Reykjavík. Það er ekki nema um hálftíma keyrsla til
höfuðborgarinnar. Það hefur orðið ákveðin viðhorfs-
breyting varðandi búsetu. Áður völdu menn sér búsetu
með tilliti til vinnu, en nú velja menn sér búsetu með
tilliti til þjónustu. Við teljum okkur veita góða þjón-
ustu, erum meðal annars með heilsdagsskóla með heit-
an mat og frístundaheimili. Í Þorlákshöfn er mjög
barna- og unglingavænt umhverfi.“
Ráðhús Þorlákshafnar.
10-11 suðurland lesið 18.5.2005 15.32 Page 2