Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 62
„Hér hefur gengið afskaplega vel
þessi 15 ár og hefur heimsókna-
fjöldinn þrefaldast síðan garðurinn
var opnaður,“ segir Tómas Óskar
Guðjónsson, forstöðumaður Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins. Tómas
hefur starfað við garðinn síðan
hann hóf göngu sína 19. maí 1990.
Í upphafi hét garðurinn Hús-
dýragarðurinn og var starfræktur
undir því nafni í þrjú ár. Síðan
varð til stærri garður sem heitir
nú Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn í Laugardal.
Í garðinum hefur fræðslumál-
um ávallt verið sinnt vel og reynt
að hafa starfsemina fræðandi.
„Garðurinn hefur alla tíð verið
settur þannig upp að gestirnir læri
af því að heimsækja hann, og hafi
um leið gaman af því að dvelja
þar.“
Á næstunni mun garðurinn
stækka til suðurs, þar sem vonandi
verður hægt að setja upp löngu
tímabæra fræðsluaðstöðu með
þremur kennslustofum og fyrir-
lestrasal. „Það helsta sem hefur
vantað hér er almennileg fræðslu-
aðstaða þar sem hægt er að taka á
móti hópum sem hingað koma í
þeim tilgangi að fræðast,“ segir
Tómas.
Tómas leggur þó áherslu á að
garðinum hafi fylgt jákvæð um-
ræða sem hafi hjálpað mikið til við
að festa hann í sessi. „Við höfum
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
stjórnvöld hafa sýnt starfseminni
hér áhuga og skilning. Það skilar
sér síðan í skemmtilegri starfsemi
sem gestir garðsins njóta góðs af,“
segir Tómas og lítur björtum dög-
um til framtíðar.
Garðurinn var opnaður í sumar-
búningi 15. maí og mun þar vera
blómleg starfsemi í allt sumar.
Nokkur ný leiktæki verða tekin í
gagnið og má þar nefna stórt parís-
arhjól sem á örugglega eftir að
vera vinsælt. ■
30 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
JACQUELINE KENNEDY ONASSIS
(1961-1994) lést þennan dag.
Sælureitur fjölskyldunnar
TÍMAMÓT: FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN 15 ÁRA
„Kynlíf er slæmt því það krumpar fötin.“
Jacqueline Kennedy var eiginkona John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta. Hún þótti með myndarlegri
konum og vakti athygli hvar sem hún fór.
timamot@frettabladid.is
JAR‹ARFARIR
13.00 Guðgeir Ágústsson, Þverási 16,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
15.00 Rafn Franklín Olgeirsson, Austur-
bergi 38, áður Þórsgötu 5, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu.
AFMÆLI
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er
69 ára.
Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri er 64 ára.
Ásgeir Hannes
Eiríksson, fyrrverandi
pylsusali, er 58 ára.
Dagný Kristjáns-
dóttir bókmennta-
fræðingur er 56 ára.
Guðjón
Sigmundsson
(Gaui litli) er 48 ára.
Kolbrún Erna Pétursdóttir leikkona er
44 ára.
Marteinn Marteinsson leikari er
fertugur.
Gísli Már Jóhannsson kántrí-
tónlistarmaður er 38 ára.
Sólveig Guðmundsdóttir leik-
kona er 28 ára.
ANDLÁT
Torfi Ásgeirsson, Dalbraut 14, er látinn.
Jóhann Sörensson, Palm Springs, Kali-
forníu, er látinn. Útförin hefur farið fram.
Svavar Tryggvason, Burnaby, Kanada,
lést laugardaginn 7. maí.
Jóhanna Guðmundsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 10. maí.
Sigurþór Halldórsson, fyrrverandi skóla-
stjóri í Borgarnesi, Gullsmára 5, Kópa-
vogi, lést fimmtudaginn 12. maí.
Halldóra Árnadóttir, Kvistagerði 2,
Akureyri, lést laugardaginn 14. maí.
Kristinn Ingvar Ásmundsson, pípulagn-
ingamaður, Heiðarbæ 7, Reykjavík, lést
laugardaginn 14. maí.
Sigurjón Jónsson, fyrrverandi járnsmið-
ur, Furugerði 1, Reykjavík, lést sunnu-
daginn 15. maí.
LEIÐRÉTTING
Í afmælistilkynningu
í blaðinu í gær vant-
aði mynd af Sigurði
Hjartarsyni. Beðist
er velvirðingar á því.
TÓMAS ÓSKAR GUÐJÓNSSON Tómas hefur starfað hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá upphafi og segir garðinn sinna mikilvægu
hlutverki fyrir alla Íslendinga.
Hinni níu ára gömlu Cynthiu Ann Parker
var rænt af indjánum í árás innfæddra á
Fort Parker í Texas þennan dag árið
1836, en foreldrar hennar létu lífið í
árásinni.
Cynthia lifði meðal Comanche-ættbálks-
ins næstu 25 árin. Hún aðlagaðist lífi
indjánanna, giftist mikilsmetnum stríðs-
manni, Peta Nocona, og átti með honum
þrjú börn.
Margir reyndu að ná Cynthiu frá ætt-
bálknum, bæði með því að bjóða lausn-
argjald og með björgunaraðgerðum. Það
strandaði þó á því að hún sagðist vera
ánægð með hlutskipti sitt, hún væri
hamingjusamlega gift og hefði engan
áhuga á að yfirgefa ættbálkinn sem hún
taldi sinn eigin.
Árið 1860 særðist eiginmaður
Cynthiu helsári í bardaga við
bandaríska þjóðvarðliðið sem
réðist á þorp þeirra. Cynthia, þá
34 ára, var flutt ásamt dóttur
sinni til frænda síns í Texas.
Hún gat ekki snúið heim þar
sem maður hennar var látinn
og ættflokkur hennar átti í fyrir-
fram töpuðu stríði. Cynthia var
ekki ánægð með hlutskipti sitt
enda skildi hún lítið í siðum og
venjum ættingja sinna. Dóttir
hennar dó úr inflúensu þremur
árum síðar og sjálf lést hún úr
sömu veiki árið 1870 enda
mjög lasburða eftir að hafa
svelt sig lengi.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1897 Rithöfundinum Oscar
Wilde er sleppt úr fangelsi
eftir að hafa setið inni í tvö
ár fyrir kynvillu.
1932 Glæpamyndin Scarface:
The Shame of a Nation er
frumsýnd í Los Angeles.
Myndin var endurgerð árið
1983 með Al Pacino í aðal-
hlutverki.
1933 Æstur múgur sækir fanga
inn í fangelsið í Vest-
mannaeyjum. Þremur
árum síðar hljóta tíu
manns dóm fyrir gjörning-
inn.
1950 Farþegaskipið Gullfoss
kemur til landsins. Þúsund-
ir Reykvíkinga taka á móti
því við hafnarbakkann.
1969 Kjarasamningur milli verka-
lýðsfélaga og atvinnurek-
anda undirritaður. Mikils-
vert samkomulag um líf-
eyrissjóð náðist.
Indjánar ræna Cynthiu Ann Parker
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurþór Halldórsson
fyrrverandi skólastjóri í Borgarnesi,
Gullsmára 5, Kópavogi,
sem lést á Landspítala í Fosssvogi 12. maí sl., verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju föstudaginn 20. maí kl. 11.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Rauða
Kross Íslands.
Kristín Guðmundsdóttir
Guðmundur Sigurþórsson Julia Sigurthorsson
Halldór Ellert Sigurþórsson Sesselja Sigurðardóttir
Gísli Þór Sigurþórsson Kolbrún Einarsdóttir
Ása Katrín Sigurþórsdóttir Hans Engen
Sóley Björk Sigurþórsdóttir Einar Óskarsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
Erla Kristjánsdóttir
ástkær móðir og uppeldismóðir okkar, til heimilis
að Bakkastöðum 5a, áður að Hjallalandi 22,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi á hvítasunnudag
15. maí síðastliðinn.
Hafsteinn Erlendsson,
Eyrún Björg Hafsteinsdóttir,
Þórður Hafsteinsson,
Jón Grétar Hafsteinsson,
Sigrún Hafsteinsdóttir,
Ásta Einarsdóttir,
tengdabörn, ömmubörn og langömmubarn.
Íbúar Keflavíkurflugvallar taka á
móti hundruðum Íslendinga á ár-
legri vorhátíð varnarliðsins sem
haldin verður með pompi og prakt
laugardaginn 21. maí.
Tvisvar á ári, að vori og hausti,
fá Íslendingar tækifæri til að
skemmta sér með og kynnast íbú-
um Keflavíkurflugvallar auk þess
sem þeir geta kynnt sér hvernig
þeir lifa og starfa. Boðið er upp á
heilmikla skemmtun með leik-
tækjum og þrautum en einnig fá
gestirnir að gæða sér á bandarísk-
um veigum, pylsum og sælgæti.
Spiluð er bandarísk tónlist en auk
þess geta tækjaóðir skemmt sér
við að skoða þotur, þyrlur og ann-
an búnað varnarliðsins sem verð-
ur til sýnis á svæðinu.
Sigríður Svansdóttir hjá upp-
lýsingaskrifstofu varnarliðsins
segir þessa hátíð vera mjög vin-
sæla bæði meðal Íslendinga og
íbúa vallarins en þessar vor- og
hausthatíðir hafa verið haldnar í
fjöldamörg ár.
Hátíðin verður með karni-
valsniði í stóru flugskýli frá tíu að
morgni til fjögur síðdegis. Allir
eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis. ■
FÆDDUST fiENNAN DAG
1890 Ho Chi Minh,
kommúnistaleiðtogi í
Víetnam.
1925 Pol Pot, harðstjóri
í Kambódíu.
1925 Malcolm X,
baráttumaður fyrir réttindum
svartra.
1945 Pete Townshend,
gítarleikari The Who.
19. MAÍ 1836 Cynthia Ann
Parker bláeyg indjánastúlka.
KANDÍFLOSS Boðið verður upp á ýmis-
legt sem þykir dæmigert fyrir Bandaríkin á
vorhátíð varnarliðsins.
Varnarli›skarnival
62-63 (30-31) Tímamot 18.5.2005 15.48 Page 2