Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 64
32 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
> Við gleðjumst með ...
... knattspyrnulandsliði Panama sem er
á hraðri uppleið í knattspyrnu-
heiminum en þetta þekkta
landslið gerði sér lítið fyrir
og fór upp fyrir íslenska
knattspyrnulandsliðið á
nýjasta styrkleikalista
alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... Blikastúlkum fyrir að bjarga Lands-
bankadeild kvenna í sumar og
sjá til þess að það verði einhver
spenna á toppnum á þessu
tímabili. Það hefur ekkert lið
gott af því að vinna eintóma
stórsigra og það sást vel
á Valsstúlkum í leiknum
enda unnu
baráttuglaðar og
samheldnar Blikastúlkur
flottan 4–1 sigur.
Heyrst hefur...
... að maðurinn sem var í búningi
lukkudýrs Fylkis á leiknum gegn KR
hafi verið rekinn úr starfi strax eftir
fyrsta leik enda ku hann hafa farið
langt yfir öll velsæmismörk með
hegðun sinni undir lok leiksins og
sýndi alls ekki þá takta sem lukkudýr
liða eiga að tileinka sér.
Kristján Finnbogason, markvörður KR,
var ekki í vafa um að hann hefði náð til
boltans áður en hann fór yfir línuna.
Um er að ræða atvik sem átti
sér stað í fyrri hálfleik leiks
Fylkis og KR á Árbæjarvelli í
fyrrakvöld en þá átti Viktor B.
Arnarsson skot að
marki KR sem
Kristján varði
rétt áður en
boltinn ætlaði í
markið. Vildu
margir meina á
vellinum að
boltinn hefði
þegar verið
inni og þul-
irnir sem
lýstu leiknum á Sýn voru þess
einnig fullvissir.
„Það er langt frá því að bolt-
inn hafi verið inni í mark-
inu,“ sagði Kristján í
samtali við Fréttablaðið.
„Ágúst Gylfason var þarna
við hliðina á mér og get-
ur vottað um það. Línu-
vörðurinn var eflaust
einnig í góðri stöðu. Ég
sver fyrir það, boltinn
var ekki einu sinni á
línunni. Ég þori að
hengja mig upp á
það,“ sagði Kristján.
Fylkismaðurinn Sævar Þór
Gíslason stóð skammt hjá
og byrjaði að fagna er honum virtist
boltinn fara yfir línuna. „En ég leit
yfir til línuvarðarins sem virtist ekki
vera með á nótunum. Mér fannst
boltinn vera inni,“ sagði Sævar Þór.
Atvikið þótti minna um margt á
leik Liverpool og Chelsea í
undanúrslitum meist-
aradeildarinnar en þá
var boltinn dæmdur
inni eftir skot Luis
Garcia, leikmanns
Liverpool, þó svo
að varnamaðurinn
Gallas hafi hreins-
að að því er virtist
á línunni. Þá var
hins vegar dæmt
mark.
UMDEILD ATVIK Í LEIK FYLKIS OG KR: BOLTINN VAR MEIRA INNI EN HJÁ LIVERPOOL OG CHELSEA
fietta var ekki mark, ég sver fla›
Gunnar hefur steypt
Kristjáni af stóli
FÓTBOLTI Í deildarbikarnum í vor
vakti ungur og bráðefnilegur leik-
maður hjá KR, Gunnar Kristjáns-
son, mikla athygli, einkum fyrir
góða frammistöðu almennt en
ekki síður þann gríðarlega hraða
sem hann býr yfir. Þótt engin
formlega mæling hafi verið gerð
ennþá má leiða að því líkur að
Gunnar sé einn af, ef ekki allra
fljótasti leikmaður á landinu og
segja þeir sem til Gunnars þekkja
að hann myndi hlaupa 100 metra á
skemur en ellefu sekúndum.
Gunnar, sem er uppalinn sóknar-
maður en hefur leysti stöðu
vinstri bakvarðar með miklum
sóma hjá KR á undirbúningstíma-
bilinu, segir sjálfur að hraði sé
ekkert sem hann hafi lagt neitt
sérstaklega upp úr í gegnum tíð-
ina – þetta er einfaldlega gjöf sem
honum hlotnaðist frá náttúrunnar
hendi.
„En það er tvímælalaust kostur
að vera fljótur fótboltamaður,“
segir Gunnar, en hann á það til að
fara framhjá andstæðingum með
því að sparka boltanum langt
fram völlinn í átt að hornfánanum
og einfaldlega taka þá á sprettin-
um í kapphlaupinu til boltans.
„Það var í fjórða flokki sem ég
eiginlega uppgötvaði að ég gat
hlaupið. Ég fór á 1-2 frjálsíþrótta-
æfingar en leiddist. Ég hleyp
hraðar þegar ég hef eitthvað að
elta, eins og t.d. eitt stykki fót-
bolta,“ segir Gunnar, sem er 18
ára og á á enn tvö ár eftir í 2.
flokki. Með honum mun Gunnar
spila í sumar, og þá í stöðu
fremsta manns. „En mér finnst
mjög gaman í bakverðinum líka
og það er vonandi að ég fái ein-
hver tækifæri í sumar með aðal-
liðinu. Ef kallið kemur þá verð ég
allavega tilbúinn,“ segir Gunnar
sem fékk einmitt að spreyta sig á
lokamínútum leiksins gegn Fylki í
Landsbankadeildinni í fyrradag.
Tek hann næst
Ekki alls fyrir löngu stóð
Magnús Gylfason, þjálfari KR,
fyrir tímamælingu á leikmönnum
sínum í 30 metra spretthlaupi.
Fréttablaðið varð sér úti um nið-
urstöður mælingarinnar og kom
þá í ljós að Gunnar hafði steypt
Kristjáni Finnbogasyni, mark-
verði liðsins, af stóli sem sá leik-
maður sem býr yfir mesta
sprengikraftinum.
„Nei, náði hann mér, helvítið á
honum,“ sagði Kristján og hló
þegar Fréttablaðið bar undir hann
þá staðreynd að hann væri ekki
lengur sprettharðasti leikmaður
KR, eitthvað sem Kristján hefur
verið allt síðan hann kom til liðs-
ins. „Ég bara trúi þessu ekki. Nú
þarf ég að fara að taka mig á,“
sagði Kristján og var ekkert að
fela vonbrigði sín.
Kristján hljóp 30 metrana á
3,948 sekúndum en Gunnar fór
vegalengdina á 3,926 sekúndum,
eða aðeins 0,22 sekúndubrotum á
undan. Það er því ekki svo mikil
bæting sem Kristján þarf á að
halda til að endurheimta þann titil
sem fylgir því að vera fljótasti
leikmaður KR. „Það er ekkert
gaman að lenda í öðru sæti á eftir
einhverjum unglingum. En það
munar svo sáralitlu á okkur. Ég
tek hann bara í næstu mælingu,“
sagði Kristján í glettnum tón. Þeir
kumpánar höfðu talsverða yfir-
burði í spretthlaupinu en Sig-
mundur Kristjánsson varð þriðji á
3,981 sekúndu.
Það þykir annars fáheyrt að
markvörður skuli vera á meðal
spretthörðustu leikmanna síns
liðs en sú er engu að síður raunin
með Kristján. „Það er tvímæla-
laust gott fyrir markmann að vera
frár á fæti, t.d. þegar maður þarf
að koma á móti stungusendingum
andstæðinganna. Hraðinn hefur
gert mig að betri markmanni,“
segir Kristján sem sjálfur hefur
örlitla reynslu af því að bregða
sér í stöðu sóknarmanns, en auk
þess að vera fljótur þykir Krist-
ján skotviss með afbrigðum. „Ætli
ég sé ekki bara að spila vitlausa
stöðu,“ segir Kristján og hlær.
vignir@frettabladid.is
Kristján Finnbogason er ekki lengur fljótasti leikma›urinn í li›i KR. Honum
hefur veri› steypt af stóli af 18 ára strák, Gunnari Kristjánssyni.
SAMHERJAR Á VELLI EN ERKIFJENDUR Í SPRETTINUM Kristján Finnbogason er einn af aldursforsetum KR og líkar ekki að vera tekinn á
sprettinum af einum af yngstu leikmönnum liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/Valli
Styrkleikalisti Alþjóðaknattspyrnusambandsins:
A›eins flremur sætum frá
flví af detta af topp 100
FÓTBOLTI Íslenska knattspyrnu-
landsliðið féll um tvö sæti á styrk-
leikalista Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins sem var birtur í
gær. Íslenska liðið situr nú í 97.
sætinu og er því aðeins þremur
sætum frá því að detta af topp
100.
Framundan eru heimaleikir
gegn Ungverjum og Möltubúum í
upphafi júní og þar sem allir
möguleikar um góðan árangur í
riðlinum eru á bak og burt gætu
þessir leikir snúist meira um heið-
urinn og það að halda Íslandi með-
al hundrað bestu knattspyrnu-
þjóða heims.
Ísland komst hæst í 42. sæti
listans í febrúar 2000 en hefur nú
fallið um 41 sæti á nákvæmlega
einu ári en liðið var í 56. sæti list-
ans í maí 2004. Íslenska landsliðið
hefur enn fremur farið í gegnum
þessa tólf mánuði án þess að
hækka sig á listanum því alla
mánuðina hefur liðið annaðhvort
staðið í stað eða lækkað sig á list-
anum.
Forráðamenn og þjálfarar
landsliðsins hafa ítrekað gert lítið
úr þessum lista en burtséð frá því
þá er þetta eini mælikvarðinn á
styrkleika knattspyrnulanda
heims og það stefnir óðum í að Ís-
lendingar verði ekki meðal 100
fremstu knattspyrnuþjóða heims.
ooj@frettabladid.is
FALL ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS
Á EINU ÁRI:
Maí 2004: 56. sæti
Júní 2004: 65. sæti (-9 sæti)
Júlí 2004: 75. sæti (-10 sæti)
Ágúst 2004: 79. sæti (- 4 sæti)
September 2004: 80. sæti (- 1 sæti)
Október 2004: 88. sæti (-8 sæti)
Nóvember 2004: 90. sæti (-2 sæti)
Desember 2004: 93. sæti (- 3 sæti)
Janúar 2005: 94. sæti (- 1 sæti)
Febrúar 2005: 94. sæti (Sama)
Mars 2005: 95. sæti (- 1 sæti)
Apríl 2005: 95. sæti (Sama)
Maí 2005: 97. sæti (- 2 sæti)
LÍTUR EKKI VEL ÚT Ásgeir Sigurvinsson
horfði á eftir Panama fara upp fyrir Ísland
á styrkleikalista FIFA. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
64-65 (32-33) SPORT 18.5.2005 15.36 Page 2