Fréttablaðið - 19.05.2005, Side 66
34 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Árósarliðinu nægði jafn-
tefli út úr öðrum úrslitaleiknum
um danska meistaratitilinn í hand-
bolta eftir 34-38 sigur á útivelli í
fyrsta leiknum en það tókst ekki,
deildarmeistarar Kolding voru of
sterkir og unnu fimm marka sigur,
32-37. Róbert Gunnarsson skoraði
5 mörk en Sturla Ásgeirsson komst
ekki á blað.
„Ég er hundfúll með okkar leik.
Það getur verið að það hafi verið of
mikil spenna í liðinu en það var
troðfull höll og mikil læti í húsinu.
Ég held að fáir í liðinu hafi prófað
að spila við svona aðstæður áður
og ég hef sem dæmi bara prófað
þetta með landsliðinu. Ég var ekki
að spila minn besta leik og það hef-
ur verið þannig í vetur að ég er
með tvo eða þrjá menn á mér.
Skytturnar okkar voru ekki að
ógna nægilega mikið og þeir
komust upp með að pakka niður á
mig og leyfa þeim að skjóta,“ sagði
Róbert sem fann sig ekki nægilega
vel enda í gríðarlega strangri
gæslu allan tímann.
Róbert misnotaði meðal annars
þrjú vítaköst í leiknum og þá réðu
hann og félagar hans illa við
Sebastian Seifert sem átti 12
stoðsendingar auk þess að skora 7
mörk. Maður leiksins var þó ör-
ugglega markvörður Kolding,
Sindre Walstad, sem varði á þriðja
tug skota.
„Ég sé leikinn liggja svolítið hjá
markverði þeirra því hann var að
taka mikið af skotum þegar við
vorum að komast inn í leikinn. Við
hættum samt aldrei og því er mað-
ur svekktur yfir því að við náðum
ekki að nýta möguleika okkar bet-
ur í lokin,“ sagði Róbert en líkt og
í fyrri leiknum var Kasper Sond-
ergaard markahæstur hjá AGF
með níu mörk en hann skorað 11 í
fyrsta leiknum.
Árósarliðið hefur ekki unnið tit-
ilinn síðan 1983 og þurfa nú að fara
erfiðu leiðina, í stað þess að nægja
jafntefli á heimavelli þurfa þeir að
sækja sigur til deildarmeistaranna
í Kolding.
„Það verður hörkuleikur í Kold-
ing á miðvikudaginn. Í dag vissum
við kannski alveg í hvað við vorum
að fara enda í fyrsta skipti sem
okkar höll er svona troðfull og við
höfðum aldrei spilað þar í svona
geðveikum látum. Það hefur verið
þannig í vetur að við höfum spilað
aðeins betur á útivelli og við vitum
líka núna hvað verið erum að fara
í þegar við förum til Kolding,“
sagði Róbert að lokum sem fiskaði
meðal annars fjögur víti í leiknum
og er ekkert búinn að gefa það upp
á bátinn að kveðja Árósi með því
að vinna fyrsta Danmerkurtitil fé-
lagsins í 22 ár. ooj@frettabladid.is
Í STRANGRI GÆSLU Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk en það dugði ekki AGF gegn
Kolding í öðrum úrslitaleiknum um danska meistaratitilinn í gær.
Náðu ekki titlinum í gær
Róbert Gunnarsson og félögum í AGF tókst ekki a› tryggja félaginu fyrsta
meistaratitilinn í 22 ár í gær og framundan er hreinn úrslitaleikur vi› Kolding.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
16 17 18 19 20 21 22
Fimmtudagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
07.30 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
08.00 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
08.30 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
16.45 Formúlukvöld á Rúv.
Endursýndur þáttur frá því í
gærkvöld.
17.45 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
19.00 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
20.00 Inside the PGA Tour 2005 á
Sýn.
20.30 Þú ert í beinni! á Sýn.
Beinskeyttur umræðuþáttur þar sem
rætt eru um íþróttir.
21.30 Bikarmótið í Fitness 2005 á
Sýn. Sýnt frá keppni í kvennaflokki.
22.00 Olíssport á Sýn. Farið verður
yfir íþróttaviðburði dagsins.
00.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn. Endursýndur þáttur.
FLÍSASÖG
5.990 kr.
Öll helstu merkin í verkfærum.
Ótrúlegt úrval af BMF festingum,
boltum, skúfum og saum.
Sjón er sögu ríkari.
Súperbygg, þar sem þú færð
meira fyrir minna.
Opið mán-fös 8-18 og lau 9-15
Bæjarhaun 8 Hafnarfjörður
Sími: 414-6080
NÝTT Á ÍSLANDI
DEWALT SDS
PLUS BORHAMAR
600W
18.490 kr.
AXA FLEX
STORMJÁRN
verð frá 1.096 kr. verð frá 3.690 kr.
HJÓLBÖRUR VERKFÆRAKASSI
Á HJÓLUM
5.800 kr.
HANDLAUG
Á VEGG 58X46
4.490 kr.
HANDSÖG
JACK 550 MM
699 kr.
SKRÚFUBOX
VERKFÆRABOX
MALARSKÓFLA
verð frá 390 kr. 990 kr.
ALLIR
DAG
AR T
ILBO
ÐSDA
GAR
690 kr. pr.stk
HRÍFA,
BEÐAKLÓRA
BEÐASKAFA
LEIKIR GÆRDAGSINS
Danski handboltinn
AARHUS–KOLDING 32–37
Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Aarhus
en Sturla Ásgeirsson komst ekki á blað.
Sænska úrvalsdeildin
HAMMARBY–DJURGARDENS 2–1
Pétur Marteinsson skoraði jöfnunarmark
Hammarby á 60. mínútu eftir að Djurgarden
hafði komist yfir á 33. mínútu. Kári Árnasyni var
skipt út af á 76. mínútu en Sölvi Geir Ottesen
var ekki í leikmannahópi Djugardens.
UEFA - bikarinn
SPORTING LISBON–CSKA MOSKVA 1–3
1–0 Fidelis Rogerio (28.), 1–1 Alexei Berezoutski
(57.), 1–2 Yuri Zhirkov (66.), 1–3 Vagner Love
(75.).
Enska 1. deildin - umspil
IPSWICH–WEST HAM 0–2
0–1 Bobby Zamora (61.), 0–2 Bobby Zamora
(72.). West Ham er komið í úrslitaleikinn.
Ítalski bikarinn - úrslit
INTER–CAGLIARI 3–1
1–0 Christian Vieri (26.), 2–0 Christian Vieri (57.),
2–1 Diego Luis Lopez (64.), 3–1 Martins (90.).
Norska bikarkeppnin
FRAM LARVIK–START 1–2
Jóhannes Harðarsson lék ekki með Start.
LEVANGER–AALESUND 0–2
Haraldur Freyr Guðmundsson lék allan leikinn í
vörn Aalesund.
SARPSBORG–VALERENGA 0–4
Árni Gautur Arason lék í marki Valerenga.
Svissneska úrvalsdeildin
YOUNG BOYS–GRASSHOPPERS 3–2
Grétar Rafn Steinsson skoraði þriðja mark
Young Boys með skalla á 53. mínútu og kom
liðinu í 3–0. Grétar lék allan leikinn fyrir Young
Boys í stöðu miðvarðar.
:
r
r-
n
r
ri
al
a
n
n
ð
j-
ð
m
Úrslitin í Evrópukeppni félagsliða ráðin:
CSKA Moskva lag›i
Sporting í Lissabon
FÓTBOLTI CSKA Moskva varð í gær
fyrsta rússneska félagsliðið til að
fagna sigri í Evrópukeppni er lið-
ið lagði Sporting Lissabon frá
Portúgal með þremur mörkum
gegn einu. Úrslitaleikir sem þess-
ir eru yfirleitt háðir á hlutlausum
velli en svo vildi til að búið var að
velja Jose Alvalade leikvanginn í
Lissabon, heimavöll Sporting,
sem vettvang úrslitaleiksins í ár.
Það góða forskot tókst heima-
mönnum þó ekki að færa sér í nyt.
Þeir byrjuðu að vísu betur og
skoruðu fyrsta markið. Rogerio
var þar að verki og virtust hans
menn hafa fulla stjórn á leiknum.
En þá tók brasilíumaðurinn Dani-
el Carvalho til sinna mála og átti
hlut að máli í öllum þremur mörk-
um Rússanna. Alexei Berezutsky
skoraði fyrsta markið með skalla
eftir aukaspyrnu Carvalho, Zhir-
kov skoraði það næsta og Vagner
Love tryggði sigurinn endanlega.
Búast má við að Carvalho, sem
hefur leikið frábærlega fyrir
CSKA í keppninni, verði einn eft-
irsóttasti leikmaður sumarsins.
Hann er 22 ára gamall og gekk til
liðs við CSKA frá Internacional í
Brasilíu í fyrra og er hann samn-
ingsbundinn liðinu til 2008. -esá
Þjálfaramálin í Keflavík til lykta leidd:
Kristján heldur áfram
FÓTBOLTI Kristján Guðmundsson
hefur verið ráðinn þjálfari
Keflavíkur og var gengið frá
samningi í gær sem gildir út
tímabilið. Kristján var aðstoðar-
þjálfari Guðjóns Þórðarsonar
sem hætti skyndilega á föstudag
og hefur nú tekið við enska D-
deildarliðinu Notts County.
Hann stýrði Keflvíkingum gegn
FH í fyrstu umferðinni en þrátt
fyrir 3–0 tap þóttu Keflvíkingar
standa sig með prýði. „Ég er
mjög ánægður með þetta enda
hef ég saknað þessa slags og er
glaður að vera kominn aftur. Nú
hefst nýr kafli hjá Keflavík enda
urðum við að segja skilið við for-
tíðina. Þetta hefur verið áfall
fyrir suma leikmenn en þeir eru
staðráðnir í að halda áfram og
stefna að sama markmiði.“
Kristján hefur einu sinni áður
þjálfað lið í efstu deild. Það var
með Þór árið 2002 eftir að hafa
stýrt liðinu upp tvær deildir á
jafn mörgum árum.
-esá
FYRSTA MARKINU FAGNAÐ Daniel Carvalho fagnar eftir að Alexei Berezutsky jafnar leikinn
fyrir CSKA. Fréttablaðið/AP
66-67 (34-35) SPORT 18.5.2005 22:14 Page 2