Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 78
Selma Björnsdóttir stígur á svið í
kvöld í íþróttahöllinni í Kænu-
garði ásamt dönsurunum fjórum
og Regínu Ósk Óskarsdóttur bak-
raddarsöngkonu. Selma er tíunda
á svið í kvöld og það er ljóst að ís-
lenska þjóðin hefur miklar vænt-
ingar í garð hennar en hvernig
skyldi henni líða fyrir stóru
stundina?
„Þetta leggst alltaf betur og
betur í mig, en mér fannst þetta
ofsalega skrítið í fyrstu því
þetta er allt öðruvísi en þau tvö
skipti sem ég hef tekið þátt. Fólk
er miklu dreifðara á svæðinu nú
en venjulega er eitt Eurovision-
hótel þar sem allir keppendur,
aðdáendur og fjölmiðlar búa,
þannig að mér fannst ég svolítið
lítil í fyrstu. Þá er landið ofsa-
lega framandi þar sem allt tekur
mun lengri tíma og maður verð-
ur eiginlega að hugsa allt öðru-
vísi en heima. Það er búið að
taka sinn tíma, en nú er ég öll að
koma til og nú líður mér bara
vel. Ég er mjög ánægð með alla
tæknivinnu og þá er ég sérstak-
lega ánægð með sviðið og ég er
mjög örugg vitandi það að þessi
mál eru í höndum Svía sem hafa
séð um sviðið og tæknimálin síð-
ustu ár.“
Betra eftir breytingar
Nú hefur þú þurft að gera lítils-
háttar lagfæringar á atriðinu. Er
það vandamál fyrir þig?
„Nei, alls ekki. Ég skipti yfir úr
handfrjálsum hljóðnema yfir í
handhljóðnema eftir fyrstu æf-
ingu þar sem hljóðið var ekki
nægilega gott. En það er allt ann-
að og betra eftir að við breyttum.
Ég er miklu vanari handhljóðnem-
anum, þrátt fyrir að ég hafi æft
fyrir keppnina með handfrjálsum
hljóðnema. Ég er miklu öruggari
með mig nú og þetta hefur engin
áhrif á dansatriðið.“
Ertu kvíðin fyrir undankeppnina?
„Ég fæ stundum svolítil kvíða-
köst, en það kemur allt í bylgjum.
Auðvitað er ég kvíðin fyrir svona
keppni, annað væri óeðlilegt, en
ég reyni að ýta þessari pressu
svolítið frá mér. Þetta á fyrst og
fremst að vera skemmtilegt. Við
stelpurnar erum svo vel undir-
búnar og erum ofboðslega
ánægðar með þetta lag, dansat-
riðið og allt annað sem lýtur að
þátttöku okkar þetta árið. Meira
getur maður ekki gert. Við erum
eins tilbúnar og við getum orðið,
en auðvitað fær maður fiðrildi í
magann.“
Finnurðu fyrir miklum væntingum
fólks á Íslandi?
„Ég heyri af miklum vænting-
um að heiman, en eins og áður
sagði reyni ég að ýta því frá mér.
Ég er ofsalega jarðbundin og að
eðlisfari mikil efasemdamann-
eskja og það er mjög mikilvægt
að almenningur á Íslandi geri sér
grein fyrir því að við erum að
fara í forkeppni. Ég hef alveg
sjálfstraust í að segja að mér
finnst við vera með eitt af fimm
bestu lögunum í keppninni í ár og
þá er ég að tala um öll lögin. Ég
er hins vegar það raunsæ að ég
geri mér fulla grein fyrir að það
er fullt af löndum í forkeppninni
sem ég hef enga trú á að muni
gefa okkur stig sama hversu gott
lagið er og flutningurinn. Ég er
mjög meðvituð um að það getur
allt gerst og það er alls ekki víst
að við komumst í gegnum for-
keppnina, þrátt fyrir að við eig-
um það skilið að mínu mati. Ég
segi við Íslendinga, vonum það
besta en verum viðbúin því
versta.
Landslagið í keppninni hefur
breyst mikið undanfarin ár. Aust-
ur-Evrópuþjóðum hefur fjölgað
mikið og þær kjósa mikið hver
aðra og hafa ekkert sérstaklega
mikinn áhuga á okkar gerð af
tónlist.“
Nú hefur þú náð frábærum ár-
angri í Eurovision, náðir öðru sæti
í Jerúsalem árið 1999 með All out
of Luck. Er ekki svolítil áhætta
fyrir þig að reyna aftur því miðað
við aðstæður er erfitt að toppa
þann árangur?
„Ég lít ekki þannig á þetta.
Þetta eru tvær mismunandi
keppnir því fyrirkomulagið hefur
breyst svo mikið og ég lít á þetta
sem tvo mismunandi viðburði.
Fyrir mér er sigurinn að nokkru
leyti unninn. Íslendingar hafa
sýnt mér alveg ótrúlegan stuðn-
ing í undirbúningnum og hafa lýst
svo mikilli ánægju með lagið og
mér finnst Íslendingar stoltir af
okkur, sem ég merki af þeim
mikla stuðningi sem við höfum
fengið. Það er náttúrulega aðal-
markmiðið. Maður er hér sem
sendiherra Íslands og ef fólkið er
ánægt, þá getur maður vart beðið
um meira. Maður verða að taka á
þessu með æðruleysi. Það verður
að koma sem koma skal. Auðvitað
er erfitt að gera betur en síðast,
en ég reyni að gera það í minni
framkomu og söng. Ég er að von-
ast til að sex ára reynsla skili sér
í kvöld og að það skíni í gegn.
Annað er í höndum Evrópubúa og
ég veit ekkert hvernig það fer.“
Hvað finnst þér um þessa keppni
sem slíka og hvernig hefur álit þitt
breyst með þátttökunni?
„Ég er alin upp við hana og
það var alltaf horft á hana
heima. Fjölskyldan kom saman
og það var grillað og við höfðum
það skemmtilegt. Mér finnst
gaman að fylgjast með henni,
þótt atriðin og lögin séu auðvitað
misgóð, en það leynast oft mjög
góð lög á milli. Með því að taka
þátt í keppninni hef ég fengið
meiri áhuga á henni. Mér finnst
hins vegar leiðinlegt að þróunin
virðist vera í þá átt að þetta er
farið að snúast miklu meira um
peninga, en ekki um lagakeppn-
ina sem slíka. Vegna breytinga á
keppnisfyrirkomulagi þá hafa
margir brugðið á það ráð að
ferðast um alla Evrópu til að
kynna lagið. Til að þetta sé hægt
þarf mikið fjármagn og það eru
því aðeins þeir fjársterkari sem
geta það og gera. Það eru hérna
lönd sem eyða hundruðum millj-
óna í undirbúning og kynningu.
Við þessar smærri þjóðir höfum
ekki fjárhagslegt bolmagn til að
standa í kynningum sem þess-
um, þannig að þetta er varhuga-
verð þróun. Ég trúi því þó að
góðir hlutir gerist hjá þeim sem
eiga það skilið í þessari keppni
eins og lífinu sjálfu og það skipti
að lokum meira máli hvernig
lagið er og flutningur þess, en
ekki hversu ríkur viðkomandi
er.“
Ef við skiljum undan If I Had Your
Love, af hvaða lagi ertu hrifnust?
„Það koma nokkur til greina,
en ég held ég nefni norska lagið.
Ég fyllist svo miklum innblæstri
við að sjá Norðmennina koma
fram, því þeir eru hér algerlega á
sínum eigin forsendum og hugsa
bara um að skemmta sér og öðr-
um. Maður á að taka þá sér til fyr-
irmyndar, því það eru ekki himinn
og jörð að farast. Þetta á að vera
skemmtileg hátíð en það er bara
einn sem sigrar.“ ■
46 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
-
#
d-
Verum viðbúin því versta
Selma Björnsdóttir stígur á svi› í forkeppni
Eurovision í kvöld. Pjetur Sigur›sson ræddi vi›
hana um undirbúninginn fyrir kvöldi› stóra.
SELMA BJÖRNSDÓTTIR Söngkonan snjalla stígur á svið í Kænugarði í Úkraínu í kvöld. Hún gaf sér þó tíma frá æfingum til að spóka sig á frelsistorginu í Kænugarði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
78-79 (46-47) Ungt folk 18.5.2005 20:24 Page 2