Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 80
48 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
■ FÓLK
■ FÓLK
Ég veit ekki um margar hljóm-
sveitir sem gætu leyft sér að vera
eins hægvirkar og Nine Inch Nails.
Þó svo að Trent Reznor virðist bara
hreyfa á sér rassgatið og hrista
fram plötu á fimm ára fresti, þá
nær hann að halda áhuga aðdáenda
sinna sem bíða spenntir eftir næstu
hreyfingu. Hvernig fer hann að
þessu? Jú, með því að gefa bara út
meistarastykki og með því að
skjóta aldrei framhjá skotmarki
sínu. Það er eins með þessa nýju
plötu. Hún er alveg í sama gæða-
flokki og The Downward Spiral og
The Fragile.
With Teeth er skotheld plata í
gegn. Hún er, eins og allt sem
Reznor gerir, nær gallalaus. En í
þetta skiptið virðist Reznor hleypa
aðdáendum sínum örlítið nær
hjarta sínu. Frá því að hann gaf út
síðasta meistarastykki fyrir fimm
árum er hann búinn að hreinsa sig
af kókaínfíkn og setja tappann í
flöskuna. Er víst orðinn nýr og
breyttur maður, þó svo að tónlistin
sé enn svipuð og áður. Og það má
alveg greina það í textum að hann
áliti sjálfan sig ekki lengur miðju
alheimsins.
Þetta er dramatískt verk og á
köflum alveg einstaklega fallegt.
En Reznor virðist einnig hafa fund-
ið leið til þess að komast nær
kjarna sínum. Lagasmíðarnar eru
stundum ótrúlega berstrípaðar og
einfaldar sem skapar aukið rými
fyrir einstaka hæfni hans fyrir
góðum melódíum. Fyrir mér verð-
ur lagið The Hand That Feeds án
efa einn stærsti slagari ársins. Ég
trúi bara ekki að ég geti fengið leið
á því lagi.
Vel gert meistari Reznor, vel-
kominn aftur. Guð blessi þig.
Birgir Örn Steinarsson
NINE INCH NAILS
WITH TEETH
NIÐURSTAÐA: Trent Reznor snýr aftur með
þriðja meistarastykki sitt í farteskinu. Skotheld
plata sem ætti að festa hann í sessi sem einn
merkasta tónlistarmann okkar tíma.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Tvær danskar hljómsveitir munu
spila á þrennum tónleikum hér á
landi dagana 26. – 28. maí í tilefni
af tónleikum Iron Maiden í Egils-
höll 7. júní.
Um er að ræða sveitirnar
Maiden Aalborg, sem spilar ein-
göngu lög eftir Iron Maiden, og
Mercenary, sem er ein bjartasta
von Dana í rokkinu um þessar
mundir og er m.a. á leiðinni á Hró-
arsskeldu í sumar. Gefnir verða
miðar á tónleika Iron Maiden á öll-
um þremur tónleikunum, ásamt
DVD-diskum og plötum með hljóm-
sveitinni.
Fyrstu tónleikarnir verða í Hell-
inum í Tónlistarþróunarmiðstöð-
inni 26. maí, en hinir tveir verða á
Grandrokk 27. og 28. maí. Hægt
verður að kaupa miða sem gildir á
öll kvöldin sem kostar 2600 krónur.
Aðeins 40 slíkir miðar verða í boði.
Miðasalan hefst laugardaginn 21.
maí kl 12:00 í Smekkleysu-plötubúð
og á Grand Rokk. ■
Það er ekki tekið út með sældinni
að eiga einkalíf þegar maður heit-
ir Britney Spears. Hún má varla
hreyfa sig án þess að myndir séu
teknar af henni og nú virðist hún
ekki einu sinni geta framkvæmt
óléttupróf án þess að það sé selt,
því kanadísk útvarpsstöð hefur nú
selt þvagið sem sannaði víst að
hún væri ófrísk, fyrir rúmlega
þrjú hundruð þúsund krónur og
rennur féð óskipt til styrktar
krabbameinssjúkum börnum og
fötluðum.
Átta hundruð hlustendur út-
varpsstöðvarinnar New Hot tóku
þátt í uppboðinu en óléttuprófið er
sagt hafa verið veitt upp úr rusla-
tunnu á hótelherbergi í Los Angel-
es.
Annars segir Britney að raun-
veruleikaþættirnir með henni og
eiginmanni hennar, Kevin
Federline, séu það brjálæðisleg-
asta sem henni hafi nokkurn tím-
ann dottið í hug. „Mig langaði
bara svo rosalega að deila þessu
með aðdáendum mínum,“ segir
hún á heimasíðu sinni.
Annars lýsti Britney því yfir að
skilnaðurinn við Justin Timberla-
ke hefði verið sársaukafyllsta
reynsla sem hún hefði lent í. „Við
vorum saman svo lengi og þegar
þú ert virkilega farin að halda að
þetta sé rétti maðurinn þá hverfur
hann á braut,“ sagði sönkonan
ólétta en Timberlake er nú með
leikkonunni Cameron Diaz. Kevin
Federline, eiginmaður Spears, er
þó enginn hálfdrættingur Tim-
berlakes, því hún segir hann vera
kynþokkafyllsta karlmann á jörð-
inni. ■
Cannes-hátíðin er ekki eingöngu
veisla fyrir kvikmyndaáhugamenn
heldur fá slúðurblöðin yfirleitt mik-
ið fyrir sinn skerf þegar stjörnurn-
ar fara á kreik. Fyrsta sambandið á
hátíðinni virðist nú vera í uppsigl-
ingu því kanadíski leikarinn
Hayden Christiansen, sem leikur
Anakin Skywalker í nýjustu Star
Wars-myndinni og Eva Longoria,
sem nýlega var valin kynþokka-
fyllsta kona heims af Maxim-tíma-
ritinu, eru sögð hafa verið saman í
opnunarteiti Star Wars-myndarinn-
ar.
Sjónarvottar sögðu vel hafa farið
á með þeim og þau hafi spjallað
saman allt kvöldið. Þau voru þó vel
meðvituð um fjölda paparazzi – ljós-
myndaranna og fóru hvort í sínu
lagi, en á sama tíma. ■
HAYDEN CHRISTIANSEN Er kominn
með þokkagyðjuna Evu Longoria upp á
arminn og þarf því ekki að vera einmanna
á Cannes-hátíðinni
Svarthöf›i me› kærustu
fivagi› úr Britney Spears selt
BRITNEY SPEARS Þvagið sem er sagt
hafa sannað óléttu hennar hefur nú verið
selt fyrir rúmlega þrjú hundruð þúsund
krónur
■ TÓNLIST
MERCENARY Hljómsveitin Mercenary spilar hér á landi dagana 26. til 28. maí.
Hita› upp fyrir Maiden
Naglinn stendur enn
80-81 (48-49) Ungt folk 18.5.2005 19.49 Page 2