Fréttablaðið - 21.06.2005, Page 31

Fréttablaðið - 21.06.2005, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2005 www.btnet.is. • • Frelsaðu félagann! www.btnet.is Kynntu þér málið... aðeins á • • Frelsaðu félagann! • • Átt þú félaga með allt of lítinn hraða og takmarkað niðurhal? • • Átt þú félaga sem þráir að hafa óheftann aðgang að netinu? • • Eða viltu bara fá þér góða ADSL tenginu á frábæru verði? Ef þú ert með BTnet getur þú bent félaga þínum á BTnet og þú færð einn mánuð frían í staðinn og félagi þinn líka. Ef þú frelsar fleiri félaga færðu frían mánuð fyrir hvern þann félaga sem skráir sig á btnet.is. Ef þú þekkir ekki neinn sem er með ADSL hjá BTnet þá getur þú samt skráð þig á netinu og fengið frían mánuð. Flottustu leikjaþjónar landsins! www.btnet.is >> • • þú og félagar þínir fá fría áskrift! extra light V16 • • Ótakmark að niðurhal ! 3.890 kr. á mánuði allt innifalið m.v. 12 mánaða samning! Leonardo DiCaprio alvarlega sær›ur Leonardo DiCaprio lenti í alvar- legum átökum í partíi í Hollywood um helgina. Leik- arinn snoppufríði var að yfir- gefa glauminn klukkan fjögur aðfaranótt laugardags þegar ónefnd kona réðst að honum en hún var í leyfisleysi á eigninni. Hún sló hann í höfuðið með flösku og brotin skildu eftir sig langan skurð niður eftir andlit- inu. Vinir Leos þustu til og brun- uðu með hann upp á spítala þar sem þurfti að sauma tólf spor við eyra hans. Skurðurinn var aðeins millimetrum frá háls- slagæðinni og þótti mikil mildi að ekki hafi farið verr. Haft var eftir lækni að leikarinn hefði verið heppinn að sleppa við ban- vænt sár. Konan, sem bendluð er við fleiri ofbeldismál, hafði fyrr um kvöldið ítrekað reynt að komast inn í teitið en ávallt verið vísað frá. Rick Salomon hélt partíið en hann er alræmdur fyrir að vera elskhugi Parísar Hilton á kynlífs- myndbandi sem tröllreið öllu fyrir nokkru síðan. Atvikið mun líklegast ekki hafa mikil áhrif á vinnu DiCaprios en hann er nú að taka upp mynd með Martin Scorsese sem heitir The Departed. Hann fær nokkra daga til að jafna sig og heldur svo aftur til Boston og New York þar sem myndin er í vinnslu. ■ U2 hei›ru› fyrir framlag sitt Rokkgoðin írsku í U2 voru heiðruð á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga fyrir framlag sitt til breskrar tónlistar. Viður- kenninguna fengu þeir á 30. Nord- off - Robbins Silver Clef verðlaun- unum. Bono, söngvari sveitarinn- ar, veitti viðurkenningunni mót- töku ásamt The Edge, Larry Mull- en Jnr. og Adam Clayton. Í þakkarræðunni sagðist Bono vera stoltur af því að vera hluti af frábærri hljómsveit. Að venju var pólitíkin ekki langt undan og Bono hvatti fólk til að fylkja sér um Live 8 framtak Bob Geldof. „Það eru ekki popparar sem stjórn- málamennirnir eru hræddir við heldur áðdáendurnir.“ Meðal annarra sem fengu verðlaun voru goðsagnirnar í The Who og Natasha Bedingfield. ■ LEONARDO DICAPRIO Leikaranum var mjög brugðið og fékk huggun hjá Gisele Bündchen, unnustu sinni. U2 Bono fagnaði viðurkenningunni ákaft ásamt félögum sínum í U2. Sveitin var stofnuð árið 1977 og hefur haldið hópinn síðan. Fáar sveitir njóta jafn mikillar virðingar og hún. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY I M AG ES / N O R D IC P H O TO S

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.