Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 2
2 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Tillaga um að falla frá lögreglurannsókn vegna umhverfisskemmda í Leirufirði felld:
fiingma›ur segir fla› firringu a›
hafa áhyggjur af vegarsló›anum
UMHVERFISVERND Magnús Reynir
Guðmundsson, bæjarfulltrúi
Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði,
lagði til á fundi bæjarráðs á
mánudag að bæjaryfirvöld féllu
frá því að óska eftir lögreglu-
rannsókn vegna umhverfis-
skemmda í Leirufirði, en settar
yrðu fram kröfur um lagfæring-
ar og að skaði yrði bættur. Meiri-
hluti ráðsins felldi tillöguna.
Lárus G. Valdimarsson, fulltrúi
minnihlutans í bæjarráði, lét
færa til bókar að hann tæki efnis-
lega undir tilllögu Magnúsar
Reynis um að gæta ætti meðal-
hófs í meðferð málsins.
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðurvesturkjördæmi, kveðst
ekki skilja titringinn vegna lagn-
ingar vegarslóða af Dalsheiði
niður í Leirufjörð í Jökulfjörðum.
„Þetta er bara slóð og hún
grær á nokkrum árum. Ég kann
ekki að leggja verkfræðilegt mat
á það hvort nauðsynlegt hafi
verið að leggja slóðina vegna
gerðar fyrirhleðslu með jarð-
ýtum í Leirufirði. Ég gef mér að
svo hafi verið og ég treysti þess-
um mönnum fullkomlega. Það
ber vott um firringu að hafa stór-
felldar áhyggjur af þessu,“ segir
Einar Oddur. - jh
fiúsund keyra um
á ótrygg›um bílum
TRYGGINGAR Það sem af er árinu
hafa tryggingafélögin fellt niður á
milli eitt og tvö þúsund bifreiða-
tryggingar þar sem eigendur bif-
reiðanna hafa ekki greitt af þeim
tryggingar.
Í morgunþætti Fréttablaðsins á
Talstöðinni í gær sagði Hjálmar
Sigurþórsson, framkvæmdastjóri
tjónaþjónustu hjá Tryggingamið-
stöðinni, að fyrirtækið felldi niður
tryggingar þeirra sem ekki
greiddu þær.
„Það sem af er þessu ári höfum
við fellt niður um fimm hundruð
tryggingar þannig að það þarf
ekki mikinn reiknimeistara til að
sjá að þeir eru fjölmargir sem aka
ótryggðir í umferðinni. Ég hef
ekki tölur um hversu margir hafa
gengið frá sínum málum eftir að
við felldum niður tryggingarnar
en þetta er magnaður fjöldi sem
við erum að setja í þennan leiðin-
lega farveg,“ sagði Hjálmar.
Hann sagði að sumir kæmu
sínum málum í lag eftir að til
slíkra aðgerða væri gripið og lög-
reglan klippti af öðrum. Hjá
hinum stóru tryggingafélögum
fengust upplýsingar um að um
svipaðan fjölda væri að ræða og
hjá Tryggingamiðstöðinni.
„Það er grafalvarlegur hlutur
að keyra um á ótryggðum bíl og
ef við lendum í því að greiða tjón
eigum við endurkröfu á hendur
tjónvaldi, hvort sem er eiganda
eða ökumanni ef annar ekur bíln-
um en eigandinn. Við sækjum
það sem við greiðum tjónþolan-
um af fullri hörku ef viðkomandi
hefur ekki tryggingu,“ segir Jón
Ólafsson hjá Alþjóðlegum
bifreiðatryggingum á Íslandi.
Hann segir að Alþjóðlegar
bifreiðatryggingar greiði bætur
hvort sem er vegna tjóns á bifreið
eða vegna líkamstjóns, hafi tjón-
valdur ekki lögbundna tryggingu.
Upphæðirnar skipti tugum millj-
óna á hverju ári.
„Það er skylda okkar sam-
kvæmt lögum að greiða bætur en
þegar fjórar vikur eru liðnar frá
því að tryggingu er sagt upp fær-
ist ábyrgðin yfir á okkur. Það er
kvöð á tryggingafélögum sem
selja ökutækjatryggingar að vera
aðilar að alþjóðlegum bifreiða-
tryggingum þannig við ábyrgj-
umst greiðslur til tjónþolans en
við gerum alltaf endurkröfu á
þann sem olli tjóninu hafi hann
ekki haft tryggingu,“ segir Jón.
hjalmar@frettabladid.is
Ráðist á sextán ára stúlku:
Nau›gun kær›
í Bolungarvík
LÖGREGLA Lögreglan í Bolungarvík
og Ísafirði hefur til rannsóknar
kæru sextán ára gamallar stúlku
sem segir að sér hafi verið nauðgað
á kvennasalerni á unglingadansleik
í veitingahúsinu Víkurbæ í Bolung-
arvík aðfaranótt laugardagsins 13.
ágúst.
Kæra stúlkunnar barst strax
daginn eftir dansleikinn, að sögn
lögreglu í Bolungarvík. Málið er enn
í rannsókn og biður lögregla hvern
þann sem kann að hafa verið á dans-
leiknum eða að hafa upplýsingar að
hafa samband í síma 456-7111.
Þegar hafa verið teknar skýrslur af
um 90 manns vegna málsins, gestum
og starfsfólki á dansleiknum. - óká
FRÁ MENNINGARNÓTT Maðurinn sem
stakk annan í bakið í Tryggvagötu aðfara-
nótt sunnudagsins hefur játað sök.
Manndráp og líkamsárás:
Játningar
liggja fyrir
LÖGREGLUMÁL Játningar liggja nú
fyrir í tveimur alvarlegum málum
sem upp komu í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Annars vegar var
maður handtekinn grunaður um
morð í húsi á Hverfisgötu
snemma á laugardaginn og annar
maður var handtekinn grunaður
um að hafa stungið annan mann í
bakið með hníf á Menningarnótt.
Gunnleifur Kjartansson, lög-
reglufulltrúi í Reykjavík, segir að
báðir hinna grunuðu hafi játað
brot sín og rannsókn málanna
gangi vel.
Líðans mannsins sem var
stunginn í bakið á Menningarnótt
er ágæt og er hann kominn af
gjörgæslu. - aöe
Sjálfstæðismenn í Reykjavík:
Prófkjör í byrj-
un nóvember
KOSNINGAR Stjórn Varðar, fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, leggur til að prófkjör á vegum
flokksins fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar verði haldið föstudaginn
og laugardaginn 4. og 5. nóvember
næstkomandi.
Samkvæmt prófkjörsreglum
geta allir félagar sjálfstæðisfélaga í
Reykjavík sem náð hafa sextán ára
aldri tekið þátt í prófkjörinu. Það á
einnig við um íbúa í kjördæminu
sem styðja Sjálfstæðisflokkinn og
óskað hafa eftir inngöngu í hann
áður en prófkjöri lýkur.
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, flytur ræðu á full-
trúaráðsfundi flokksins, sem boðað-
ur hefur verið 5. september næst-
komandi. -jh
SPURNING DAGSINS
fióra, gustar um ykkur?
„Það gustar alltaf af Gusturum.“
Verktakar vilja eignast umráðasvæði hesta-
mannafélagsins Gusts í Kópavogi. Þóra Ásgeirs-
dóttir er formaður Gusts.
De Menezes-málið:
Livingstone
sty›ur Blair
LONDON, AP Ken Livingstone, borg-
arstjóri í Lundúnum, hefur lýst yfir
fullum stuðningi við Ian Blair, lög-
reglustjóra borgarinnar. Blair hefur
legið undir ámæli síðustu daga
vegna rangfærslna í kjölfar þess að
Brasilíumaðurinn Jean Charles de
Menezes var skotinn til bana af lög-
reglumönnum við neðanjarðarlest-
arstöð í Lundúnum 22. júlí.
Livingstone sagði óprúttna lög-
reglumenn hafa reynt að grafa und-
an Blair og slíkt yrði ekki liðið, Bla-
ir væri besti lögreglustjóri sem
Lundúnaborg hefði átt. ■
Tryggingafélögin hafa fellt ni›ur a› minnsta kosti flúsund ökutækjatryggingar
fla› sem af er árinu vegna ógreiddra reikninga. Ótrygg›ir ökumenn flurfa
sjálfir a› grei›a tugir milljóna króna á hverju ári vegna tjóns sem fleir valda.
UMFERÐ Í REYKJAVÍK Í GÆR Gatnamótin við Suðurlandsbraut, Laugaveg og Kringlumýrar-
braut eru einhver fjölförnustu gatnamót landsins. Þar lentu strætisvagn og vörubíll í
árekstri með alvarlegum afleiðingum. Vörubíllinn var óskoðaður og ótryggður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Harður árekstur í Dölum:
Tveir fluttir
á slysadeild
LÖGREGLA Tveir voru fluttir á slysa-
deild Landspítalans í Fossvogi eftir
harðan árekstur tveggja jeppa á
gatnamótum Vestfjarðavegar og
Haukadalsvegar í Dölum í gær. Að
sögn lögreglu er fólkið ekki alvar-
lega slasað. Jepparnir eru báðir
ónýtir en tildrög slyssins eru óljós.
Að sögn lögreglunnar í Búðardal
er þetta fjórða umferðarslysið í
sumar sem verður á stað í umdæmi
Búðardals þar sem ekkert símasam-
band er. Lögreglan segir það mjög
alvarlegt þegar ekki sé hægt að
hringja í lækni eða Neyðarlínuna á
slysstað. - th
SÉÐ OFAN Í LEIRUFJÖRÐ Nýja slóðin er um fjögurra kílómetra löng og er lögð í sneiðing-
um niður í fjörðinn.
Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín í Mið-Evrópu:
Tugir farast í fló›um
AUSTURRÍKI, AP Að minnsta kosti 34
hafa látist í stórflóðunum í Mið-
Evrópu á um það bil viku. Rúm-
enía hefur orðið verst úti en þar
hafa 25 manns látist í flóðunum.
Yfir 250 manns þurftu að flýja
heimili sín í Bern, höfuðborg
Sviss, í gær og yfirvöld í Rúmeníu
sögðu fólk hafa drukknað í svefni
í rúmum sínum í fyrrinótt.
Þýskar herþyrlur hafa undan-
farna daga hjálpað til við björgun-
arstörf og að flytja fólk frá heim-
ilum sínum. Loka hefur þurft
hraðbrautum og öðrum þjóð-
vegum og þúsundir hafa þurft að
flýja heimili sín í Austurríki,
Sviss, Þýskalandi, Tékklandi,
Króatíu, Rúmeníu og víðar.
150 manna hópur þurfti svo að
dúsa í verslunarmiðstöð í bænum
Worgl í Austurríki yfir nótt áður
en bátur frá austurríska hernum
kom og bjargaði fólkinu blautu og
köldu. Talið er að milljarða króna
tjón hafi orðið í flóðunum.
Í gær skein þó sól víða á flóða-
svæðum og vonast fólk til þess að
það versta sé afstaðið. - oá
FLÓÐ Í LUCERNE
Í gær skein sól á flóðasvæðum og vonast
er til þess að það versta sé afstaðið.
SVÍÞJÓÐ
ÁRÁSARGJARNAR FLUGUR
Mýflugnaplága er nú víða í Sví-
þjóð. Flugurnar eru sérlega árás-
argjarnar og ráðast gjarnan á
fólk. Vísindamenn eru undrandi á
fjölda flugnanna. Þannig var sett
heimsmet á dögunum í að fanga
mýflugur í einn háf en alls náð-
ust nær 90 þúsund flugur.