Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 8
8 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
NÍGERÍA Yfirvöld í Nígeríu hafa
ákveðið að grípa til aðgerða til
þess að sporna gegn siðferðislegri
hnignun í borginni Kanó í norður-
hluta landsins.
Kanó er eitt af tólf héruðum
landsins þar sem íslömsk lög eru
við lýði. Ríkisstjórninni finnst
frjálsræðið orðið heldur mikið og
ætlar að fylgja sharia-lögum, sem
byggð eru á kenningum Kórans-
ins, fastar eftir, að því er Wash-
ington Post skýrir frá.
Fyrsta skrefið í þessum efnum
verður aðskilnaður kynjanna í
strætisvögnum borgarinnar en þá
mega konur aðeins setjast í til-
greind sæti aftast í vögnunum.
Ástæðan fyrir þessum aðgerð-
um er sögð sú að karlmenn eru
farnir að færa sig upp á skaftið.
Konur segja að karlmenn séu
farnir að nudda sér upp við þær í
strætisvögnum og segja hluti sem
þeir hefðu ekki dirfst að segja
fyrir nokkrum árum. Þær séu
banninu fegnastar því þá fái þær
frið fyrir karlmönnunum. Ekki
eru allar konur þessu sammála og
segja að bannið geri þeim erfiðara
fyrir að komast á milli staða.
- sda
Bíldudalur:
Blokk seld á
tíu milljónir
VIÐSKIPTI Fjölbýlishús á Bíldudal
sem var í eigu Vesturbyggðar
hefur verið selt. Jón Þórðarson at-
hafnamaður átti hæsta tilboð í
húsið en það hljóðaði upp á rúmar
tíu milljónir króna.
Í blokkinni eru ellefu íbúðir
þannig að kaupverðið samsvarar
900 þúsund krónum á íbúð. Jón
hefur fengið 70 milljóna króna
framkvæmdalán frá Verðbréfa-
stofunni til að vinna að endurbót-
um á blokkinni en það var sett
sem skilyrði fyrir kaupunum.
Hafist verður handa við endur-
bætur í lok mánaðarins og segir
Jón að um næstu páska verði íbúð-
irnar tilbúnar til útleigu. - jse
BRETLAND Charles Clarke, innan-
ríkisráðherra Bretlands, hefur
kynnt ákvæði nýrrar reglugerðar
gegn hryðjuverkum sem heimilar
að erlendir öfgamenn séu reknir
úr landi þegar í stað.
Clarke skýrði ástæður sem
geta legið að baki því að reka
menn úr landi og nefndi meðal
annars réttlætingu hryðjuverka
og hvatningu til slíkra verka eða
atferli sem leitt geti til hefndar-
árása.
Clarke bætti því við að leik-
reglurnar hefðu breyst eftir árás-
irnar 7. júlí þar sem 52 biðu bana,
og að eini kosturinn í stöðunni
væri að reka erlent fólk tafarlaust
úr landi ef upp kæmi grunur um
að það hefði hvatt til hermdar-
verka eða hefði slíkt í hyggju.
Hann sagði að líklegast yrðu
fyrstu brottvísanirnar nú á allra
næstu dögum. „Einstaklingar sem
reyna að skapa ótta, vantraust og
sundrungu til að hvetja til hryðju-
verka verða ekki liðnir af ríkis-
stjórninni eða samfélaginu,“ sagði
Clarke.
- oá
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
FÁÐU MEIRI
BÍL EN ÞÚ
BORGAR
FYRIR
Medion fartölva fylgir nú Betri notuðum bílum.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
29
28
5
0
8/
20
05
FRÁ KANÓ Í NÍGERÍU
Konum í Kanó í Nígeríu er nú skylt að
setjast aftast í strætisvagna borgarinnar.
VOPNAÐIR LÖGREGLUMENN Í LONDON Innanríkisráðherra Bretlands segir að hvorki
samfélagið né ríkisstjórnin muni líða að einstaklingar reyni að skapa ótta, vantraust og
sundrung og hvetja til hryðjuverka.
BLOKKIN Á BÍLDUDAL Í dag verður skrifað
undir kaupsamning á blokkinni og verður
farið að vinna að endurbótum á henni í
lok þessa mánaðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
S
IG
U
RÐ
U
R
Nígeríumenn herða á íslömskum lögum:
Kynin a›skilin í strætisvögnum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Bretar kynna aðgerðir gegn hryðjuverkum:
Öfgamenn reknir úr landi