Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 42
Umsjón: nánar á visir.is Uppsagnir í kjölfar methagnaðar Sænski bílarisinn Volvo, sem nú er í eigu hins bandaríska Ford, hyggst segja upp fimmtán hundr- uð starfsmönnum. Forsvarsmenn Volvo segja að með uppsögnun- um sparist um átta milljarðar króna. Ástæður upp- sagnanna eru sagðar óhagstætt gengi sænsku krónunnar gagn- vart Bandaríkjadal, mikil samkeppni bílaframleið- enda og hátt verð á stáli. Tímasetning sparnaðaraðgerðanna þykir skrítin en hagnaður Volvo nam á síðasta ársfjórðungi tæpum fjörutíu milljörðum íslenskra króna og jókst um tæp fjörutíu prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Flestir þessara fimmtán hundruð starfsmanna sem sagt verður upp starfa í verksmiðjum Volvo í Sví- þjóð. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega þrjátíu þúsund manns, megnið af þeim í Svíþjóð. Stjórnendur K-mart kærðir Bandaríska fjármálaeftirlitið hefur ákært tvo af stjórnendum verslanakeðjunnar K-mart fyrir rangar yfirlýsingar. Þeir eru ekki ákærðir fyrir rangar upp- lýsingar í reikningum félagsins, heldur fyrir rangar útskýringar á fundi þar sem reikningar voru út- skýrðir. Þeir eru sakaðir um að hafa látið undir höfuð leggjast að greina frá greiðsluvanda fyrir- tækisins. K-mart fór skömmu síðar í greiðslustöðv- un og er talið að þegar fundurinn fór fram hafi stjórnendum verið ljóst að félagið stóð ekki í skil- um við birgja sem sumir hverjir, svo sem Gillette, Lego og Black & Decker, höfðu gefist upp á skuldseiglu K-mart og voru hættir að afgreiða vörur til fyrirtækisins. Stjórn félagsins rak stjórn- endurna í kjölfarið, en þeir hafa neitað sök og sagt að þeir hafi einungis hugsað um hag fyrirtækisins og unnið í góðri trú. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.534 Fjöldi viðskipta: 221 Velta:1.425 milljónir +0,02% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... > Hagnaður úraframleiðandans Swatch hækkaði um rúm 20 prósent milli ára og þakkar félagið það aukinni sölu á dýrari úrum. > Hlutabréf hækkuðu í gær í New York í kjölfar lækkunar á olíu. Olían lækkaði í kjölfar birgðaskýrslu frá orkumálaráðu- neyti Bandaríkjanna. > Hlutabréf stálframleiðslufyrirtækja lækkuðu í gær þar sem merki um of- framboð á stáli voru á kreiki. > Kínversk stjórnvöld settu fram stefnu um að einkavæða öll fyrirtækin í eigu ríkisins. Var þetta stærsta einkavæðing- arskrefið í fimmtán ár. 26 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Peningaskápurinn… Actavis 41,90 -0,20% ... Bakkavör 41,40 -0,70%... Burðarás 17,30 +0,00% ... FL Group 15,50 -0,60% ... Flaga 4,10 -1,00% ...HB Grandi 8,55 +0,00% ... Íslandsbanki 15,00 +0,00% ... Jarðboranir 20,80 -1,00% ... KB banki 582,00 +0,00% ... Kögun 58,10 +0,20% ... Landsbankinn 21,10 +0,50% ... Marel 62,90 +0,00% ... SÍF 4,84 +0,00% ... Straumur 13,30 +0,00% ... Össur 88,00 -0,60% Landsbankinn +0,48% Kögun +0,17% Síminn -1,96% Vinnslustöðin -1,19% Flaga -0,97% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: „Skuld Skjás eins við Símann var til komin vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar í þeim til- gangi að efla fjárhag sjónvarps- stöðvarinnar fyrir þau verkefni sem við erum að vinna og þau verkefni sem fram undan eru,“ segir Brynjólfur Bjarnason, for- stjóri Símans. Að auki hafi Ís- lenska sjónvarpsfélagið fengið fé að láni til að kaupa aðra hluthafa út úr félaginu. Stjórn Símans tók þá ákvörðun í júní síðastliðnum að breyta 750 milljóna króna skuld Skjás eins við Símann í hlutafé. Brynjólfur segir það rétt sem kom fram í við- skiptablaði Fréttablaðsins í gær að Síminn ráði nú yfir nánast öllu hlutafé Íslenska sjónvarpsfélags- ins, sem rekur Skjá einn. Í fyrra keypti Síminn félag sem átti um helmingshlut í Skjá einum á 96 milljónir króna. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs keypti Sím- inn í öðru félagi sem átti í Skjá einum og beint í sjálfri sjónvarps- stöðinni fyrir 89 milljónir króna. Samkvæmt reikningum Símans réð fyrirtækið yfir tæpum 77 pró- sentum hlutafjár í Skjá einum á þessum tímapunkti. Samkvæmt þessu keypti Sím- inn 77 prósent hlutafjár í Skjá einum fyrir 185 milljónir króna. Skuldirnar voru meiri en eignirn- ar á þessum tíma, samkvæmt efnahagsreikningi Skjás eins, sem getur skýrt lágt verð en Brynjólf- ur vill ekkert tjá sig um þessa hlið málsins. Bein fjárútlát Símans vegna Skjás eins nema því nú 935 milljónum króna. Brynjólfur tekur fram að allar þessar upplýsingar hafi verið væntanlegum kaupendum Símans kunnar áður en fyrirtækið var selt. Honum finnst eðlilegt að það sé tekið fram að Fréttablaðið er í eigu sömu aðila og eiga Og Voda- fone, sem er samkeppnisaðili Sím- ans. bjorgvin@frettabladid.is BRYNJÓLFUR BJARNASON FORSTJÓRI Síminn var í eigu ríkisins þegar ákveðið var að kaupa Skjá einn og lána félaginu 750 milljónir króna. KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ] Gengishagnaður yfir einn og hálfur milljarður. SPRON skilaði 1.572 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mán- uðum ársins. Hagnaður spari- sjóðsins fyrstu sex mánuði ársins er því orðinn meiri en allt árið í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 54 prósent á ári. Hreinar vaxtatekjur stóðu í stað á milli ára en hreinar rekstr- artekjur hækkuðu um fimm pró- sent. Samanlagður gengishagnað- ur af fjármálastarfsemi var um 1.530 milljónir króna. Rekstrargjöld hækkuðu um rúm sjö prósent frá sama tíma í fyrra en framlag í afskriftar- reikning lækkaði um helming. Eignir SPRON voru um 90 milljarðar króna 30. júní síðastlið- inn. Eigið fé er orðið 8,5 milljarð- ar króna en þar af er stofnfé tæpir tveir milljarðar. - eþa SPRON skilar methagna›i Síminn lánaði til hlutabréfakaupa Bein fjárútlát Símans vegna kaupa í Skjá einum nema 935 milljónum króna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.