Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 6
6 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Greint frá kostnaði við framboð Ingibjargar Sólrúnar til formennsku í Samfylkingunni: Ríflega fimm milljónir í formannsslag FORMANNSKJÖR Framboð Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur til for- mennsku í Samfylkingunni kostaði nær 5,3 milljónir króna samkvæmt endurskoðuðum reikningi sem hún hefur birt á vefsíðu Samfylkingar- innar. Auglýsingar og fjölmiðlakynn- ing kostuðu liðlega eina og hálfa milljón króna. Póst- og símakostn- aður nam liðlega 650 þúsund krón- um og prentunar- og pappírskostn- aður liðlega 580 þúsund krónum. Aðkeypt vinna kostaði 350 þúsund krónur. Gerð er grein fyrir öðrum kostn- aði sérstaklega. Þaru er tölvu- og hugbúnaðarkostnaður, áhöld, tæki og innréttingar stærstu útgjaldalið- irnir, en alls eru útgjöldin tæpar 1,3 milljónir króna undir þessum lið. Framlög í kosningasjóð Ingi- bjargar Sólrúnar námu tæpum 5,4 milljónum króna og reyndust tekj- ur umfram gjöld vera um 70 þús- und krónur. Framlög í kosningasjóðinn upp að 100 þúsund krónum námu alls um 2,1 milljón króna. Framlög yfir 100 þúsund krónum námu samtals um 3,2 milljónum króna. Össur Skarphéðinsson hyggst einnig birta tölur um kostnað við formannsframboð sitt á næstu dög- um. - jh Þingeyingur á níræðisaldri hefur gefið 2,5 milljónir króna til hjálparstarfs: Óskaplegt a› sjá heilu fljó›irnar svelta GÓÐGERÐARSTARF Laufey H. Helga- dóttir, 82 ára Þingeyingur sem búsett er í Borgarnesi, gaf nýlega eina milljón til hjálparstarfs Rauða krossins í Níger. Í Níger ríkir nú hungursneyð og óttast er um afdrif milljóna manna ef svo fer sem horfir. Laufey segir það góðverk að gefa fé í svona hjálpar- starf. „Ég er búin að lesa og sjá svo mikið af myndum af mörgum börnum sem fá ekki að borða. Það er óskaplegt að sjá heilu þjóðirnar svelta, sérstaklega ef maður hugs- ar um allan þann mat sem fer til spillis hér heima.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Laufey gefur stórar upphæðir til hjálparstarfs Rauða krossins. Í ársbyrjun gaf hún milljón til stuðnings fórnarlömbum flóð- bylgjunnar í Asíu og í fyrra gaf hún hálfa milljón í söfnunina Göngum til góðs til hjálpar börn- um sem búa við ógnir stríðsátaka. Á einu ári hefur Laufey því gefið á þriðju milljón til hjálparstarfs. Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segist hrærð yfir framlög- um Laufeyjar. „Laufey er einstök kona með stórt hjarta og geislar af mannkærleik og samfélagsvitund í víðum skilningi. Við erum henni afar þakklát.“ - ss Á fimmta tug fórst í flugslysi í Amazon fiota af ger›inni Boeing 737-200 brotna›i í tvennt flegar flugma›ur reyndi nau›lendingu í Amazon-frumskóginum. A› minnsta kosti 41 farflegi lést í slysinu. fietta er fimmta alvarlega flugslysi› í heiminum á einum mánu›i. PERÚ, AP Að minnsta kosti 41 lést þegar þota af gerðinni Boeing 737-200 nauðlenti í Amazon-frum- skóginum í Perú í fyrrakvöld. Flytja þurfti 56 á sjúkrahús, mis- alvarlega slasaða. Sumir fengu að fara heim að skoðun lokinni. Vélin, sem var í eigu perúska flugfélagsins TANS, var á leið frá Líma, höfuðborg Perú, til borgar- innar Pucallpa í Amazon-frum- skóginum. Hún lenti hins vegar í ofsaveðri í aðflugi að flugvellin- um í Pucallpa. Því þurftu flug- menn vélarinnar að nauðlenda henni um 30 kílómetrum sunnan við borgina. Reynt var að draga úr skellinum með því að lenda í mýri en við lendinguna brotnaði vélin í tvennt og brak úr henni dreifðist um svæðið. Talið er að sviptivind- ur hafi komið á vélina í nauðlend- ingartilrauninni svo að hún skekktist með þessum afleiðing- um. Sumir þeirra sem sluppu áttu fótum sínum fjör að launa þegar þeir óðu mýrardrulluna áður en kviknaði í brakinu. Flestir þeirra sem létust voru Perúmenn en þar að auki létust bandarísk kona, kólumbísk kona og ítalskur karl. Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á öll líkin og að minnsta kosti þriggja er enn sakn- að. Slæmar veðuraðstæður gerðu björgunarmönnum erfitt um vik og ekki var hægt að leita að fólki að- faranótt miðvikudags vegna myrk- urs og veðurofsa. Forstjóri flugfélagsins þvertek- ur fyrir að vélarbilun eða einhvers konar tæknilegur galli hafi valdið slysinu heldur hafi veðrinu verið einu um að kenna. Svörtu kassar vélarinnar fundust síðdegis í gær og er búist við að innihald þeirra geti varpað frekara ljósi á málið. Vél í eigu sama flugfélags fórst í janúar 2003 þegar hún rakst á fjall á svipuðum slóðum. Þá létust allir þeir 42 sem voru um borð. Þetta er fimmta alvarlega flugslysið í heiminum á innan við mánuði. oddur@frettabladid.is Landamæri Gaza: Egyptar taka vi› vörslunni JERÚSALEM, AP Ríkisstjórnir Ísraels og Egyptalands hafa komist að samkomulagi um að egypski her- inn taki við landamæravörslu á landamærum Egyptalands og Gaza-svæðisins af öryggissveit- um Ísraelshers. Flutningur ísraelska hersins frá landamærunum er lykilatriði þegar kemur að því að binda enda á 38 ára langa hersetu Ísraela á Gaza-svæðinu. Það sem hafði komið í veg fyrir samkomulag var ótti Ísraela við að vopnasmygl færðist í aukana ef Egyptar tækju við vörslunni. Fyrir vikið eru gerðar miklar kröfur til egypsku landamæravarðanna. Á BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Khodorkovskí ásamt vini sínum Platon Lebedev. Khodorkovskí: Neitar a› neyta matar RÚSSLAND Rússneski auðkýfingur- inn Mikhail Khodorkovskí er nú kominn í hungurverkfall til þess að mótmæla meðferðinni á Platon Lebedev, félaga hans. Lebedev, sem ásamt Khodor- kovskí var dæmdur í níu ára fang- elsi í vor fyrir fjársvik, hefur verið færður í einangrunarvist en hann er sagður hafa móðgað fangaverði. Í yfirlýsingu Khodorkovskís sem lögmaður hans las í fyrradag segir hann augljóst að verið sé að refsa Lebedev í sinn stað. Því sneiðir hann hjá mat og drykk eins lengi og honum þykir þurfa. ■ Lumex, Skipholti 37, Sími 568 8388, www.lumex.is MultiPot ® Undir lokinu á MultiPot er fjöl- tengi fyrir allt að fimm raftæki, þannig að þú getur hlaðið GSM síma, iPod eða myndavél, geymt lykla og smámynt, allt á sama stað. MultiPot fæst í fjórum litum. Komdu til okkar í Lumex og kynntu þér málið. Lampi, fjöltengi og smáhlutageymsla fyrir lykla og smámynt Hefur þú áhyggjur af manneklu á leikskólum? SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú trassað að fara með bílinn þinn í skoðun? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 51% 49% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN ÞAKKAÐ FYRIR GJÖFINA Bjarni Þorsteinsson, formaður Borgarfjarðardeildar Rauða kross Íslands, heimsótti Laufeyju og færði henni þakkir fyrir framlagið. M YN D /G ÍS LI E IN AR SS O N INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Framlög yfir 100 þúsund krónum skiluðu alls um 3,2 milljónum króna í kosningasjóðinn. M YN D /A P Alnæmissamtökin: Brotist inn og tölvu stoli› LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í hús- næði Alnæmissamtakanna á Ís- landi á Hverfisgötu aðfaranótt miðvikudags og tölvu stolið. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að gluggi hafi verið spenntur upp, rótað hafi verið til og sími eyðilagður. Engu hafi þó verið stolið utan tölvunnar. Í tölvunni hafi engar persónu- upplýsingar verið að finna, ein- ungis upplýsingar um rekstur samtakanna. Mesti skaðinn sé af þessum gögnum, sem hún segist gjarnan vilja endurheimta. - ss JÓRDANÍA AL-KAÍDA LÝSIR ÁBYRGÐ Al-Kaída í Írak, undir stjórn Jórdan- ans Abu Musab al-Zarqawi, hefur lýst yfir ábyrgð á eldflaugaárás í jórdönsku borginni Aqaba á föstu- dag. Jórdanskur hermaður lést þegar ein eldflaugin sprakk nærri bandarísku herskipi. Áður hafði annar hópur, Abdullah Azzam-her- deildirnar, eignað sér tilræðið. BJÖRGUNARMENN LEITA FÓRNARLAMBA Veðuraðstæður gerðu björgunarmönnum mjög erfitt um vik. VÉL AF SÖMU GERÐ OG SÚ SEM FÓRST Fyrir hálfu þriðja ári fórst önnur vél í eigu perúska flugfélagsins TANS. Þá fórust 42 manns. M YN D IR /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.