Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 16
Brynja Benediktsdóttir leikstjóri hefur í mörg horn
að líta þessa dagana. Örfáar sýningar eru eftir af
uppsetningu leikritsins Ferðir Guðríðar sem flutt er á
ensku í Skemmtihúsinu við Laufásveg 22 en verkið
verður sýnt út mánuðinn. „Verkið fjallar um Vín-
landsferðir Guðríðar Þorbjarnardóttur á elleftu öld.
Hún var víðförulasta kona miðalda og sú sem ákvað
að setjast að á Vínlandi,“ segir Brynja, sem hefur
ferðast víða með verkið og stefnir nú á enn fleiri
landvinninga.
„Eftir það fer ég til Þýskalands, tek þar á móti Valdísi
Arnardóttur sem lék líka Guðríði og æfi hana á
þýsku,“ segir Brynja, sem ætlar að frumsýna verkið í
Frankfurt, Bonn, Hamborg og Berlín um mánaða-
mótin september-október.
Brynja hefur þó ekki hugann allan við leikhúsið. „Ég
er nú svo fjöllynd að ég stekk milli verkefna og
hugsana,“ segir Brynja glaðlega en hún er á leið upp
í Hvalfjörð þar sem vinkona hennar ætlar að byggja
sér Jakútahús líkt þeim sem í
þúsundir ára voru byggð í
Jakútíu í Síberíu. Vinkona henn-
ar er ættuð þaðan og ætlar að
byggja húsið úr viði sem frænd-
ur hennar í Jakútíu hjuggu og
var fleytt niður ána Lenu til Ís-
hafsins, þaðan sem hann var
fluttur til Íslands.
Brynja er í félagi sem kallar sig
Ísjaki og er vinafélag Íslands og
Jakútíu. „Ég er öll í svona íshafs-
menningu,“ segir hún og býst
við að eyða þó nokkrum stund-
um í Jakútahúsi vinkonu sinnar
með tímanum. „Hún er nú svo
fjöllynd eins og ég að hún ætlar
að leyfa öllum vinum sínum að
vera þarna og heimsækja sig.“
16 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Björn fiormó›ur á Ytra-Hóli
hrútafluklari ársins 2005
Eftir harða keppni hrós-
aði Björn Þormóður
Björnsson, bóndi og kjöt-
matsmaður á Ytra-Hóli í
Vindhælishreppi, sigri á
Meistaramótinu í hrúta-
dómum í Sævangi á
Ströndum á sunnudag.
Hann hlaut meðal annars
fimmtán skammta af
hrútasæði í verðlaun.
„Þetta var óvænt,“ segir Björn
Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli
um sigurinn á sunnudag. Dóm-
nefndin, sem skipuð var þremur
þrautreyndum sauðfjárræktar-
ráðunautum, var sammála um að
Björn hefði staðið sig best í að
dæma hrúta út frá þeim stöðlum
sem um slík fræði gilda, þótt
mjótt hefði verið á munum.
Björn segist ekki hafa hugsað
mikið um úrslitin á meðan á móti
stóð en auðvitað hafi verið gaman
að vinna.
Jón Jónsson, Strandamaður og
sagnfræðingur, var ánægður með
mótshaldið. „Þetta gekk ljómandi
vel og keppnin var feikihörð,“
segir hann. Hátt í 300 manns
fylgdust með mótinu en 27
kepptu í flokki hinna vönu. Kepp-
endur komu víða að, allt frá
Skagafirði í norðri að Skálholti í
suðri, en flestir voru úr nærsveit-
um Strandanna.
Björn sigurvegari er kjöt-
matsmaður hjá Sölufélagi Aust-
ur-Húnvetninga og segir Matthí-
as Lýðsson bóndi á Húsavík, sem
kom að mótshaldinu, að ekki
spilli fyrir að búa yfir mikilli
reynslu á því sviði.
Björn heldur nokkrar kindur
en vill ekki láta uppi um fjölda
þeirra. „Þetta er innan skynsemis-
marka,“ segir hann og viðurkenn-
ir um leið að aðalverðlaunin,
fimmtán skammtar af hrútasæði
frá Sauðfjársæðingastöð Vestur-
lands, komi að góðum notum.
Rebekka Eiríksdóttir frá Stað
vann í flokki óvanra en hún bar
sigurorð af móðursystur sinni
Dagrúnu Magnúsdóttur, sem
hafnaði í öðru sæti. Rebekka var
að vonum sæl með sigurinn en
segir það ekki hafa verið sér sér-
stakt kappsmál að vinna frænku
sína. Hún og maður hennar halda
sex hundruð fjár á Stað og eru því
ýmsum hnútum kunnug þegar
kemur að sauðfé þótt ekki teljist
Rebekka vön í hrútaþukli.
Strandamenn voru staðráðnir í
að standa sig betur í ár en í fyrra,
þegar vel flest verðlaun fóru í
Húnavatnssýslurnar. Það gekk
eftir og skiptu þrír heimamenn
með sér þriðju verðlaununum í
flokki vanra, auk þess sem önnur
og þriðju verðlaun í flokki óvanra
féllu Strandamönnum í skaut.
Glæsileg verðlaun voru í boði;
sokkar, vettlingar, teppi, prjóna-
bækur, handverk, rækjur og gist-
ing auk áðurnefnds sæðis, sem
kostar sitt eins og bændur vita.
bjorn@frettabladid.is
GÍSLI EINARSSON FRÉTTAMAÐUR
Heimavist er
heimili
EFTIRLITSMYNDAVÉLAR
Á HEIMAVIST
SJÓNARHÓLL
Fer me› Gu›rí›i út um ví›an völl
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? BRYNJA BENEDIKTSDÓTTIR LEIKSTJÓRI
nær og fjær
„Dagsformi› hjá li›-
inu vir›ist ekki vera
til sta›ar og menn
vir›ast ekki vera a›
spila sinn besta leik,
eins og klárlega flarf
me› ef árangur á a›
nást á svona stóru
móti.“
EINAR ÞORVARÐARSON, FRAM-
KVÆMDASTJÓRI HSÍ, Í DV.
„Ég flurfti tvö skot á
mitt d‡r, flví færi›
var of stutt fyrir mig í
fyrra skotinu. Ég
lengdi flví færi› upp í
180 metra og ná›i flá
hjartaskoti.“
MARÍA BJÖRG GUNNARSDÓTTIR
SKOTVEIÐIKONA Í MORGUNBLAÐ-
INU.
OR‹RÉTT„ “
HRÚTAÞUKL Fjölmenni fylgdist með Meistaramótinu í hrútaþukli í Sævangi á Ströndum
á sunnudag. Keppendur í flokki hinna vönu báru sig vitaskuld fagmannlega að við verkið.
M
YN
D
/Á
SD
ÍS
J
Ó
N
SD
Ó
TT
IR
FLOKKUR VANRA:
1. sæti Björn Þormóður Björnsson á
Ytra-Hóli í Vindhælishreppi.
2. sæti Elvar Stefánsson í Bolungarvík.
3. sæti Guðbrandur Sverrisson á Bassa-
stöðum í Kaldrananeshreppi, Gunnar
Dalkvist á Bæ í Árneshreppi og Reynir
Stefánsson í Hafnardal í Hólmavíkur-
hreppi.
FLOKKUR ÓVANRA:
1. sæti Rebekka Eiríksdóttir frá Stað á
Reykjanesi í Reykhólasveit.
2. sæti Dagrún Magnúsdóttir á Lauga-
landi í Skjaldfannardal í Hólmavíkur-
hreppi.
3. sæti Viktor Örn Viktorsson, skólastjóri
grunnskólans á Hólmavík.
Nýtt Tölvuorðasafn, hið fjórða í
röðinni, kom út í gær. Er það
mikið að vöxtum og geymir 7.700
íslensk heiti og 8.500 ensk heiti á
6.500 hugtökum. Íslenskt Tölvu-
orðasafn kom fyrst út 1983 og
voru í því tæp 1.000 íslensk heiti á
um 700 hugtökum. Í næstu útgáfu,
sem kom út 1986, voru íslensku
heitin 3.100 og hugtökin 2.600 og í
þriðju útgáfunni voru heitin orðin
5.800 og hugtökin 5.000.
Meðal þess sem finna má í
Tölvuorðasafninu er þýðing og út-
skýring á tölvuorðinu cookie.
„Smygildi - gagnahlutur sem vef-
þjónn vistar í geymslu notanda og
hefur síðan aðgang að til að auð-
velda samskipti. Oftast er smygildi
vistað án vitundar notandans.“ Og
ef áfram er flett má finna útskýr-
ingu á hugtakinu Skorðuð al-
hæfing. Um hana segir: „Alhæfing
hugtaks sem fullnægir þeim skil-
yrðum sem hugtökum eru sett og
eru notuð til þess að útskýra til-
tekna staðreynd eða atburð.“
Stefán Briem ritstýrði Tölvu-
orðasafninu en verkið er afrakst-
ur áratuga starfs orðanefndar
Skýrslutæknifélags Íslands, sem
stendur að útgáfu þess í samvinnu
við Hið íslenska bókmenntafélag.
- bþs
Tölvuorðasafn kemur út í fjórða sinn:
Af smygildum og skor›a›ri alhæfingu
TÖLVA Búnaður sem getur gert flókna.......
TÖLVUORÐASAFNIÐ Í því eru 7.700 ís-
lensk heiti á 6.500 hugtökum.
SIGURVEGARINN Björn Þormóður tekur
við sigurverðlaununum. Meðal vinninga
var farandgripur gefinn í minningu Brynj-
ólfs Sæmundssonar, héraðsráðunautar
Strandamanna, en hann lést í vetur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
„Mér finnst að einhvers staðar verði
að setja mörkin,“ segir Gísli Einars-
son fréttamaður um fjölda eftirlits-
myndavéla á göngum heimavistar
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki. Persónuvernd hefur úr-
skurðað að fjöldi þeirra brjóti gegn
meðalhófsreglu en tvær vélar voru á
hverjum gangi vistarinnar.
„Þegar þetta er komið inn á heimili
eins og þarna er finnst mér þetta ekki
eiga við,“ segir Gísli, sem telur þó
verjandi að hafa eftirlitsmyndavélar
við innganga heimavistarinnar.
Jón Hjartarson, skólameistari FNV,
íhugar að fara í mál við Persónuvernd
vegna úrskurðarins. Hann telur einka-
líf nemenda tryggt inni á herbergjum
þeirra.
„Ég hef nú búið á heimavist sjálfur og
maður leit á meira en herbergið sem
heimili sitt,“ segir Gísli, sem finnst
þetta of mikil forsjárhyggja.