Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 18
fijó›in er klofin í afstö›u sinni
Fresturinn sem íraskir stjórnmála-
menn tóku sér á mánudaginn til
þess að ná samkomulagi um drög
að framtíðarstjórnarskrá landsins
rennur út í kvöld. Þetta er í annað
sinn sem atkvæðagreiðslu um mál-
ið er frestað og endurspeglar sú
staðreynd hversu erfið staðan er.
Grundvallarágreiningur ríkir um
mikilvæg atriði og því heldur ólík-
legt að sátt náist um drögin þótt
þingið muni að líkindum afgreiða
plaggið.
Vafasöm afgreiðsla
Frestunin á mánudagskvöldið var
raunar nokkuð óvænt og að öllum
líkindum í trássi við bráðabirgða-
stjórnarskrá landsins. Þar er
skýrt kveðið á um að þingið eigi
að afgreiða drög að skránni 15.
ágúst og síðan leggja plaggið
undir atkvæði þjóðarinnar. Að
öðrum kosti skal þingið leyst upp.
Margir þingmenn, sérstaklega úr
röðum súnnía, brugðust því
ókvæða við þegar leiðtogar Kúrda
og heittrúaðra sjía ákváðu ein-
hliða að taka sér lengri frest til að
vinna að málinu.
Til þess að bæta gráu ofan á
svart er að koma í ljós að völdin
hafa að miklu leyti verið tekin af
stjórnarskrárnefndinni – einu
stofnuninni þar sem súnníar eiga
fulltrúa í samræmi við fjölda sinn
í landinu – og þess í stað hafa ein-
stakir stjórnmálaleiðtogar á borð
við Jalal Talabani forseta og
Abdul Aziz al-Hakim, einn leið-
toga heittrúaðra sjía, sett saman
textann. Þeir ætluðu svo að leggja
drögin undir samþykkt þingsins á
mánudaginn en þá settu nokkrir
framámenn úr röðum Kúrda og
þeirra sjía sem vilja hlut íslam í
stjórn landsins sem minnstan
þeim stólinn fyrir dyrnar. Þeim
líst illa á vægi íslam í stjórnar-
skránni og binda því vonir við að
stjórnlagaþingið verði leyst upp
og nýtt kosið þar sem heittrúaðir
sjíar hafa minni völd.
Grundvallarágreiningur
Sem stendur eru þrjú atriði sem
ágreiningurinn stendur um. Í
fyrsta lagi eiga súnníar mjög
erfitt með að sætta sig við hug-
myndir Kúrda og heittrúaðra sjía
um að Írak verði sambandsríki
þar sem landinu yrði skipt á milli
stóru hópanna þriggja: Kúrda,
súnnía og sjía. Þeir voru tilbúnir
að fallast á að Kúrdar nytu ein-
hverra sérréttinda en þeim fannst
óhugsandi að sjíar fengju sjálf-
stjórn og um leið yfirráð yfir
stærstu olíulindum landsins. Í
drögunum segir aðeins að Írak
eigi að verða „þingbundið lýðræð-
islegt sambandslýðveldi“ en ekki
er farið nánar út í hversu miklum
völdum eigi að dreifa til hérað-
anna.
Staða íslams
Í öðru lagi líst súnníum og sér-
staklega Kúrdum illa á vægið sem
íslam virðist eiga að fá í stjórn
landsins. Reyndar er kveðið á um
það í drögunum að trúin sé ein af
grundvallarstoðum löggjafarinn-
ar – ekki eina grundvallarstoðin –
en í næstu grein er skrifað að ekki
megi setja nein lög sem brjóti í
bága við íslömsk lög. Þótt skýrt sé
kveðið á um einstaklingsfrelsi í
trúarefnum í uppkastinu er ljóst
að heittrúaðir sjíar hafa náð sínu
fram í þessum efnum. Þessi niður-
staða þarf samt í sjálfu sér ekki
að koma á óvart, nágrannaríkið
Íran er klerkaríki og stjórnmála-
líf í flestum öðrum ríkjum Mið-
Austurlanda er mjög mótað af
íslam.
Í þriðja lagi eru súnníar svo
afar óhressir með að „Baath-
flokkur Saddams“ sé sérstaklega
bannaður í stjórnarskránni enda
voru þeir uppistaðan í flokknum
þegar hann var við völd.
Eðlilega velta menn því fyrir
sér hvers vegna hinir veraldlega
þenkjandi Kúrdar og heittrúaðir
sjíar myndi bandalag í stjórnar-
skrárgerðinni. Skýringin er hins
vegar augljóslega pólitísk hrossa-
kaup. Kúrdar samþykkja íslamsk-
ar áherslur sjíanna gegn stuðn-
ingi um víðtækt sjálfstæði Kúrd-
istans.
Þjóðaratkvæðagreiðslan
Sjíar og Kúrdar hafa öruggan
meirihluta á íraska þinginu og því
má búast við að drögin verði af-
greidd þaðan í kvöld. Stóra spurn-
ingin er hins vegar hvort íraska
þjóðin muni leggja blessun sína
yfir þau í atkvæðagreiðslunni 15.
október. Ef tveir þriðju hlutar
íbúa í þremur af átján héruðum
landsins segja nei öðlast stjórnar-
skráin ekki gildi og kjósa verður
um nýtt stjórnlagaþing. Allar
líkur eru taldar á að Anbar- og
Salah al-Din-héruðin felli plaggið
en þar eru súnníar þorri íbúanna –
og ólíkt janúarkosningunum ætla
þeir ekki að láta sig vanta í
þessum.
Í öðrum héruðum er mjótt á
mununum. Til dæmis safnar nú
Muqtada al-Sadr, eldklerkurinn
frá Najaf, liði í fátækrahverfum
sjía í Bagdad gegn stjórnar-
skránni og sú liðsöfnun gæti vegið
þungt.
Það þarf því ekki mikið til að
vinna síðustu sjö mánuða verði
fyrir gýg og vargöldin í landinu
haldi áfram sem aldrei fyrr.
ÓVEÐUR Í ENGLANDI Börn í Brighton
flýja öldugang við bryggjuna. Undanfarna
daga hefur verið mikið rok og vatnsveður
á sunnanverðum Bretlandseyjum.
Búist er við að enn bæti í vind.
18 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Vart líður sá mánuður að Samkeppniseftirlitinu
og/eða öðrum stofnunum berist ekki kvartanir
og kærur vegna þess að sum fyrirtæki telji sig
ekki standa jafnfætis öðrum gagnvart við-
skiptavinum. Nýlegt dæmi er kvörtun netfyrir-
tækisins Hive á hendur Símanum og Og Voda-
fone.
Hvað eru samkeppnishömlur?
Lög kveða á um að fyrirtæki skuli sitja í einu
og öllu við sama borð og hafa jafnan aðgang
að mörkuðum en ekki sé um það að ræða að
stórfyrirtæki geti í krafti valds síns hindrað
önnur fyrirtæki eða með öðrum hætti stuðlað
að misnotkun. Markmið laganna er að efla
samkeppni í viðskiptum og styðja þannig
efnahagslegar framfarir í landinu.
Hverjir ákvarða um slíkt?
Allmargir aðilar fá erindi er snúa að sam-
keppnishömlum. Umboðsmaður Alþingis hef-
ur tekið slík mál til meðferðar er snúa að ein-
staklingum eða smærri fyrirtækjum. Í framtíð-
inni er líklegt að nýskipaður umboðsmaður
neytenda taki á slíkum málum. Þess utan fær
Samkeppniseftirlitið eða Samkeppnisstofnun
eins og hún hét áður allflest mál fyrirtækja inn
á sitt borð. Aðrar stofnanir rannsaka einnig
hömlur af ýmsu tagi eftir efnum og aðstæðum
og stöku sinnum fara slík mál alla leið fyrir
Hæstarétt.
Hvað þýðir misnotkun á markaðsráðandi
stöðu?
Slíkt á við þegar krafist er ósanngjarnra við-
skiptaskilmála í viðskiptum, settar eru tak-
markanir á framleiðslu neytendum til tjóns,
öðrum viðskiptaaðilum mismunað með ólík-
um skilmálum í sams konar viðskiptum eða
skilyrði eru sett fyrir samningagerð.
Ekki seti› vi› sama bor›
FBL GREINING: SAMKEPPNISHÖMLUR
SVONA ERUM VIÐ
M
YN
D
/A
P
SVEINN GUÐMARSSON
sveinng@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING
Íraska flingi› mun a› öllum líkindum afgrei›a drög
a› stjórnarskrá í kvöld. Meiri vafi leikur hins vegar
á dómi fljó›arinnar enda ríkir mikill ágreiningur
um grundvallaratri›i.
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
Stundaskrá
The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur
skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars
tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám
fá nemendur alþjóðlegt diplóma í útlitsráðgjöf
(fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi
og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn
með náminu. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík einu sinni í viku frá 18-21.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN
Kristín, ráðgjafi
Ég hef mikin áhuga á að
starfa með fólki, veita
ráðgjöf varðandi fatnað,
liti og förðun sem hentar
hverjum og einum. Mér
finnst námið bæði lifandi
og skemmtilegt sem einnig hefur opnað margar
dyr til frekari náms á þessu sviði.
Ragnheiður, ráðgjafi
Ég hef alltaf haft áhuga
á tísku og útliti. Námið
opnaði mér nýja sýn á
þetta áhugamál mitt.
Auk þess er það mér
mikils virði í tengslum við starf mitt.
Birna,
verslunareigandi -
Stílistinn
Það hefur alltaf verður
draumur hjá mér að
stofna verslun með
fatnað. Námið gaf mér það sjálfstraust sem ég
þurfti til að fara út í reksturinn. Einnig nýti ég
námið til þess að ráðleggja viðskiptavinum mínum
hvaða snið og litir hentar þeim í val á fatnaði.
UMDEILDRI STJÓRNARSKRÁ ANDÆFT Fylgismenn eldklerksins Muqtada al-Sadr
mómæltu ákaft í gær í Hawija, nærri Kirkuk.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
PÁLL GUNNAR PÁLSSON,
FORSTJÓRI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Sú stofnun fær til umfjöllunar flest þau mál er
lúta að viðskiptahömlum af einhverjum toga.
20
01
20
02
20
03
20
04
41
3233
30
FJÖLDI FARÞEGASKIPA
OG FERJA Á ÍSLANDI
Heimild: HAGSTOFAN
fréttir og fró›leikur