Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 20
17
.2
57
18
.7
38
22
.2
61
21
.5
22
23
.9
60
MAÍ
27
.2
57
JÚN.
APR.
MAR.
FEB.
JAN.
20 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Það hefur vart farið framhjá nokkrum manni að eigendum
fellihýsa, tjaldvagna og húsbíla hefur fjölgað til mikilla muna
undanfarin ár og hefur sala slíkra vagna aldrei verið meiri en
í ár.
Málið vandast hins vegar þegar kemur að því að vernda
þessa fjárfestingu yfir vetrartímann en samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins býður enginn aðili á höfuðborgarsvæðinu
lengur geymslu á vögnum þessum. Þurfa þeir eigendur sem
vilja geyma vagna sína inni að leita út fyrir höfuðborgina til
að finna slíkar geymslur.
Vaka ehf. og Geymsluþjónusta Eimskips hafa boðið slíka
þjónustu undanfarin ár en svo verður ekki þennan veturinn.
Hjá Vöku fengust þau svör að þrátt fyrir mikla eftirspurn
hefði fólk ekki viljað greiða uppsett verð. Geymslupláss væru
dýr á höfuðborgarsvæðinu og mánaðarleiga fyrir tjaldvagn
færi aldrei undir tíu til fimmtán þúsund krónur. Það verð
hefðu viðskiptavinir ekki viljað greiða.
Allnokkrir aðilar á Reykjanesi og í nærsveitum Reykjavíkur
bjóða geymslupláss yfir vetrartímann og er vænlegast að
fylgjast með smáauglýsingum dagblaðanna til að fá frekari
upplýsingar. - aöe
Geymslupláss af skornum skammti
EIGENDUR TJALDVAGNA OG FELLIHÝSA:INNFLUTNINGUR > INNFLUTNINGUR TIL LANDSINS 2005
hagur heimilanna
TÖLUR Í MILLJÓNUM KRÓNA HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Landsmenn geta nú tengst netinu með fartölvum sínum á yfir áttatíu
stöðum víðs vegar á landinu. Þetta kemur fram á heimasíðum Símans og Og
Vodafone. Svokallaðir heitir reitir gefa öllum með réttan búnað möguleika á
góðri ókeypis tengingu meðan viðkomandi staðir eru opnir.
Heitir reitir»
» Landsbyggðin
Ábær Sauðárkróki
Bláa lónið
Cafe Karólína Akureyri
Gistiheimilið Súlur Akureyri
Hótel Keflavík
Kaffi Akureyri
Kaffitár Njarðvík
Akureyrarflugvöllur
Brim Akureyri
Cactus Grindavík
Flughótel Keflavík
Kaffi Amor Akureyri
Kaffi Krús Selfossi
Kristjánsbakarí Akureyri
» Höfuðborgarsvæðið
Cafe Cultura
Bar 11
Cafe Borg
Cafe Victor
Gistihúsið Luna
Hitt Húsið
Kaffi 22
Kaffi Hljómalind
Kaffi Reykjavík
Kaffi Roma
Kaffi Sólon
Kaffitár
Kaffibrennslan
Kaffi Fíaskó
Litli ljóti andarunginn
Póstbarinn
Prikið
Reykjavík Bagel Co
Segafredo Expresso
Sirkus
Thorvaldsen
Te og kaffi
Ölstofa Kormáks og Skjaldar
Ömmukaffi
Snóker sportbar
BK kjúklingur
Bolholt gistiheimili
Borgarbókasafnið
Borgarleikhúsið
Bókasafn Mosfellsbæjar
Cafe Konditori
Domus Apartments
Laugardalshöll
Golfklúbburinn Kjölur
Grensáskaffi
Players
Ruby Tuesday
Skeljungur Suðurlandsbraut
Súfistinn
Sportbarinn Áttan
Sporthúsið
Apótek Austurstræti
Bakarameistarinn
Umferðarmiðstöðin
Cafe Amokka
Dillon
El Raco
Esso Ártúnshöfða
Grand Rokk
Hótel Nordica
Kofi Tómasar frænda
Laugar
Perlan
Hótel Apartments
Red Chilli
Reykjavíkurflugvöllur
Smáralind
Stúdentakjallarinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
AÐ MÖRGU AÐ HYGGJA Eigendum fellihýsa og tjaldvagna hrýs
mörgum hugur við að geyma þessa dýru vagna úti við allan vetur-
inn en ekki er hlaupið að því að fá inni gegn sanngjörnu verði.
Stökktu til
Costa del Sol
31. ágúst frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til
Costa del Sol. Njóttu lífsins á
þessum vinsælasta áfangastað
Íslendinga í sólinni. Þú bókar og
tryggir þér síðustu sætin og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú býrð.
Síðustu sætin
29.990 í viku
/ 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð. Flug, gisting, skattar og
íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 31. ágúst í 1 eða 2 vikur.
39.990 í viku
/ 49.990 í 2 vikur
39.990 / 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð.
Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn. Stökktu tilboð 31. ágúst í 1
eða 2 vikur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Hreyfing og hollusta
í hámarki á haustin
Margir kostir eru í bo›i fyrir flá sem hugsa sér til hreyfings í haust. Umtalsver›-
ur munur getur veri› á a›stö›u líkamsræktarstö›vanna.
NEYTENDUR Mikið annríki er nú á
flestum líkamsræktarstöðvum
enda sumri tekið að halla veru-
lega. Sjaldan eða aldrei hefur
meira verið í boði af nýjum nám-
skeiðum og stöðvarnar keppast
um að bjóða bestu kjörin.
Engar tölur eru til um áætlað-
an fjölda þeirra sem stunda lík-
amsrækt með reglulegum hætti á
veturna en ljóst er að þeir skipta
þúsundum ef ekki tugum þús-
unda. Fullyrða má að flestir eigi
að geta fundið eitthvað við hæfi
enda úrvalið fjölbreytt. Stærstu
stöðvarnar bjóða aðgengi að
nuddstofum og/eða sundlaugum
sem nota má að vild. Bæði World
Class og Iceland Spa og Fitness
bjóða sínum viðskiptavinum að
skipta á milli stöðva eftir þörfum
en kort í þau fyrirtæki gilda á öll-
um stöðvum. Er það þægilegt
fyrir þá sem eru mikið á ferðinni.
Minni stöðvarnar státa af því
að bjóða persónulegri þjónustu
enda venjulega færri í tímum.
Slíkt getur hentað byrjendum vel
enda oft stærsta skrefið að byrja.
Verðlagning er einnig misjöfn
eins og sjá má á meðfylgjandi
töflum. Úttektin er ekki tæmandi
en listinn gefur hugmynd um hver
kostnaðurinn er við að stunda lík-
amsrækt þennan veturinn. Þó er
allur slíkur samanburður erfiður
enda aðstaða ólík og þjónustustig
misjafnt. Sumir staðir bjóða
reglulega upp á námskeið af ein-
hverju tagi meðan annars staðar
er eingöngu um tækjasal að ræða
og viðskiptavinir sjá að mestu um
sig sjálfir. Þó er venjan sú að leið-
beinandi fylgi nýjum viðskipta-
vinum í fyrsta tímanum og gangi
úr skugga um að tæki og tól séu
rétt notuð.
albert@frettabladid.is
TEYGJA, FETTA OG BRETTA Tugþúsundir Íslendinga finna sig knúna til að stunda lík-
amsrækt á haustin. Margt er í boði fyrir áhugasama og líkamsræktarstöðvarnar keppa um
hvern viðskiptavin.
Hreyfing
Faxafeni
Almennt 3 mán.
kort
20.930 kr.
Stakur tími
1.170 kr.
Bónusklúbbur 6
mán. kort
35.940 kr.
Bónusklúbbur 12
mán. kort
59.400 kr.
Barnagæsla á
klukkustund
170 kr.
Vefsíða
www.hreyfing.is
World class
Almennt 3 mán.
kort
19.300 kr.
Stakur tími
1.200 kr.
Baðstofan/heilsu-
rækt 6 mán. kort
80.300 kr.
Heilsurækt 12
mán. kort
50.400 kr.
Barnagæsla á
klukkustund
200 kr.
Vefsíða
www.worldclass.is
Gym80
Suðurlandsbraut
Almennt 3 mán.
kort
15.900 kr.
Stakur tími
frír
Skólakort
10 mán.
24.000 kr.
Árskort
38.000 kr.
Barnagæsla
Nei
Vefsíða
gym.kraft.is
Sporthúsið
Almennt 3 mán.
kort
17.900 kr.
Stakur tími
1.050 kr.
Árskort
35.880 kr.
Vikukort
2.500 kr.
Barnagæsla
150 kr.
Vefsíða
www.isf.is
Bjarg
Akureyri
Almennt 3 mán.
kort
18.500 kr.
Stakur tími
850 kr.
Almennt 6 mán.
kort
31.000 kr.
Almennt 12 mán.
kort
42.900 kr.
Barnagæsla á
klukkustund
150 kr.
Vefsíða
www.bjarg.is
Orkuverið
Egilshöll
Almennt 3 mán.
kort
15.900 kr.
Stakur tími
900 kr.
Almennt 6 mán.
kort
26.900 kr.
Árskort
39.900 kr.
Barnagæsla á
klukkustund
200 kr.
Vefsíða
www.orkuverid.is
Nautilus
Árskort
29.900 kr.
Stakur tími
frír
Almennt 6 mán.
kort
19.900 kr.
Skólakort
25.990
Barnagæsla
Nei
Vefsíða
www.nautilus.is
Vaxtaræktin
Akureyri
Almennt 3 mán.
kort
12.900 kr.
Stakur tími
700 kr.
Almennt 6 mán.
kort
21.900 kr.
Skólakort
árskort
29.900 kr.
Barnagæsla
150
Vefsíða
www.vaxak.is
Hress
Dalshrauni
Almennt 3 mán.
kort
17.990 kr.
Stakur tími
950 kr.
Almennt 6 mán.
kort
25.990 kr.
Almennt 12 mán.
kort
41.990 kr.
Barnagæsla
Frítt
Vefsíða
www.hress.is
* Listinn er ekki tæmandi. Kostnaður miðast við einstakling en hafa ber í huga að margvísleg kjör bjóðast á hverjum stað fyrir sig.
Ekki er mat lagt á þjónustustig eða mismunandi aðstæður.