Fréttablaðið - 25.08.2005, Síða 28
Luktir
Nú er tíminn til að koma luktum með logandi kertum fyrir bæði innan dyra og utan.
Viss sumarblær fylgir logandi lukt á meðan haustið færist yfir smám saman.[ ]
Amerísk handklæði
Þétt og góð
100% bómull
í l i
ll
Skólavörðustíg 21 Sími • 551 4050 Reykjavík
Nýir litir á sígildum
leirvörum
Leirvörurnar sem áður voru kenndar við Arabia og nú við
iittala eru þekktar fyrir formfegurð og endingu. Nú hafa nýir
litir bæst við.
Nýju litirnir tóna vel við þá sem fyrir voru.
Þegar litið er yfir hillurnar í
versluninni Búsáhöldum í Kringl-
unni sést að ólífugrænn, brúnn og
blágrænn litur hafa komið upp að
hlið þeirra sem fyrir voru í leir-
tauinu er áður
var kennt
við Arabia
en nú iittala.
Leirtau í þess-
ari línu er til á
mjög mörgum
heimilum landsins
enda hefur það fengist
hér í áratugi. Nú telst það til
Teema-línunnar, að sögn af-
greiðslufólks. Í græna litnum eru
til diskar í nokkrum stærðum,
bolli, kanna, súputarína, föt og
skálar en færri hlutir eru komnir
í brúnu og blágrænu. Hins vegar
tónar þetta allt vel saman við það
sem fyrir er og þar má benda á
röndóttan borðbúnað með öllum
þessum litum. Framleiðsla á um-
ræddu stelli hófst 1955 en tók
breytingum árið 1981 og kom þá
með því útliti sem það hefur í dag.
Greinilegt er
að Kaj
Franck sem
var einn af
þ e k k t u s t u
hönnuðum Finna
hitti naglann á höf-
uðið þegar hann
teiknaði þessa línu því
hún stendur algerlega tímans
tönn. „Þetta leirtau þolir allt, upp-
þvottavélar, örbylgjuofna og
venjulega ofna, segir Kristín
Kjartansdóttir afgreiðslukona í
Búsáhöldum og kveðst heyra oft á
dag „Vá, þetta er eins og þegar ég
var lítil,“ þannig að stellið vekur
upp minningar hjá mörgum.
Þótt okkur þyki baðherbergið
vera orðið lúið og óspennandi
þýðir það ekki að nauðsynlegt sé
að henda öllu út sem fyrir er og fá
nýjar innréttingar. Oft dugar að
mála fleti milli flísa ef einhverjir
eru, setja veggborða ef það á við
og skipta út smáhlutum eins og
skápahöldum, krókum og kannski
ljósum. Svo getur verið sniðugt að
kaupa falleg gluggatjöld, sturtu-
hengi og handklæði. Ekki spillir
að setja körfur og kertakrukkur í
litum í hillurnar og baðherbergið
breytir um svip.
Frískað upp á baðherbergið
Baðherbergin þurfa stundum upplyftingar við. Þá eru góð ráð
ekki endilega dýr.
Ný gluggatjöld og smáhlutir gera heilmikið fyrir baðherbergið.
Frá sumri
yfir í vetur
ÞEGAR DIMMA FER OG KÓLNA ER
KJÖRIÐ AÐ FÆRA HAUSTIÐ INN Á
HEIMILIÐ.
Það er komið haust. Björtu og næfur-
þunnu gardínurnar sem fóru svo vel
við sumarbláa nóttina verða skyndilega
allt of þunnar
og gagnsæjar
og ljósu púð-
arnir virka alls
ekki nógu hlý-
legir. Það er
frekar einfalt
að breyta um
stíl á heimilinu
þegar haust og
vetur ganga í
garð og getur auk þess verið ljómandi
skemmtilegt.
Þegar fer að kólna er til að mynda kjör-
ið að breiða þykk og hlýleg rúmteppi
yfir húsgögnin til að hjúfra sig niður í.
Fallegir dökkir litir eru hlýlegir, eins og
vínrauður, flöskugrænn og dimmblár.
Þá er líka alveg kjörið að setja al-
mennilegt, þykkt rúmteppi yfir rúmið
og hlaða jafnvel nokkrum púðum í stíl.
Skóglendi er af
skornum skammti
hér á landi en það
er mjög gaman að
fara út í nærliggj-
andi trjálund á
haustin og safna
fallegum laufblöð-
um, könglum og
reyniberjum og
búa til skreytingu í
glæra skál til heimilis-
prýði.
Púðaver taka lítið pláss í
skápum en nýtt útlit
púða getur breytt yfir-
bragði herbergis al-
gerlega. Það er snið-
ugt að eiga púðaver
til skiptanna milli
árstíða og nota
dekkri og hlýrri
liti á veturna.
Taktu til í
geymslunni
og sjáðu
hvort þú finnur
eitthvert fallegt, gamal-
dags dót til að
skreyta með heimilið
á haustin og vet-
urna. Nútímalegir
skrautmunir í
skærum litum
eiga betur við
á sumrin.
Blómavasar
og skrautmun-
ir úr glæru
gleri eða kristal
tilheyra frekar
sumrinu. Skiptu
þeim út fyrir leirvasa
og skálar.
Glæsileg
Haustvara