Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 29
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2005
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
Póstkassar,
bréfalúgur, dyrahamrar
og húsnúmer
MARGAR GERÐIR
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
www.brynja.is • brynja@brynja.is
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Beatles í Duka
Listgler
Vasi kr. 6.900.- • Diskur kr. 11.900.-
Brotnaði þegar Liverpool vann
Kristján Ingi Gunnarsson sjónvarpssmaður er hamingjusamur með nýja Síma afruglarann sinn.
Kristján Ingi segir afruglarann frá Símanum og IKEA-sófann fylgja hvor öðrum.
„Ég var að fá nýjan afruglara frá
Símanum sem mun gera mér
kleift að horfa á hvorki meira né
minna en 270 leiki í enska boltan-
um í vetur,“ segir Kristján Ingi
Gunnarsson, sem þekktastur er
fyrir að vera einn af stjórnendum
Ópsins hjá Ríkissjónvarpinu. „Við
þetta er ég með þennan fína
flauelissófa frá IKEA,“ segir
Kristján Ingi, og tekur það fram
að hann muni nú kannski ekki
horfa á alla leikina en reyni að sjá
flesta Liverpool-leikina. „Hann
reyndar brotnaði þegar Liverpool
vann Evrópumeistara-titilinn
þannig að maður veit aldrei hvað
gæti gerst,“ segir Kristján Ingi
sem er þó búinn að láta laga
sófann.
„Hver veit nema ég þurfi að
sofa á sófanum þegar kærastan er
ósátt við fótboltaglápið,“segir
Kristján Ingi stríðnislega. „Annars
er þetta fínn sófi sem þolir allt.“
„Þegar leikur er í gangi tengi
ég við heimabíóið og það er alveg
eins og maður sé bara á leiknum,“
segir Kristján Ingi sem efast ekki
um að þetta sé uppáhaldsstaður-
inn á heimilinu.
Kristján Ingi mun í vetur ein-
beita sér að hlutverki sjónvarpsá-
horfanda eftir að hafa verið í hinu
hlutverkinu sem einn stjórnenda
Ópsins í fyrravetur. Hann segist
muna starfa sem tómstundafull-
trúi í vetur og sinna kennslu. „Það
er allt opið,“ segir hann.