Fréttablaðið - 25.08.2005, Síða 46

Fréttablaðið - 25.08.2005, Síða 46
Viltu PSP? × 19 00 ! × × Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . * A ða lv in ni ng ur e r d re gi n úr ö llu m in ns en du m S M S sk ey tu m 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR > Við tökum hattinn ofan ... ... fyrir kvennaliði Breiðabliks, sem í gær sýndi enn og sannaði styrk sinn. Breiðablik hefur nú unnið helstu keppinauta sína í Val þrisvar sinnum í röð, með markatölunni 10–2. Það var búist við miklu af Valsliðinu í sumar en það hefur hins vegar ekki átt nein svör við sterkri liðsheild Blika- stúlkna sem eiga góða mögu- leika á að vinna tvöfalt í ár. Varað við Gunnari Dálkahöfundur í The Belfast Telegraph segir að það sem leikmenn Linfield þurfa helst að varast í leik gegn sænska liðinu Halmstad í forkeppni UEFA-bikarkeppn- innar í kvöld sé Gunnar Heiðar Þorvalds- son, leikmaður Halmstad. Liðin mætast í Norður-Írlandi í kvöld en Gunnar hefur verið iðinn við kolann undanfarið og skorað til að mynda tvær þrennur. sport@frettabladid.is 30 > Við hlökkum til ... .... að sjá Keflvíkinga mæta hinu öfluga liði Mainz frá Þýskalandi á Laugardalsvelli í kvöld en þýska liðið er klárlega sterk- asta félagsliðið sem mætir hingað til lands í ár. Eiður Smári var ekki með og Chelsea skoraði fjögur FÓTBOLTI Frank Lampard fagnaði því að vera orðinn pabbi með því að skora tvö mörk í 4-0 sigri Chel- sea á West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni en okkar maður, Eiður Smári Guðjohnsen, þurfti að sætta sig við að sitja uppi í stúku þar sem hann var ekki í leikmannahópnum. Chelsea-liðið var ekki sannfærandi í fyrstu tveimur leikjum sínum þrátt fyrir að vinna báða leikina 1-0 en í gær var allt annað uppi á teningnum og Chelsea hafði getað skorað mun fleiri mörk. „Við spiluðum mjög vel, það var mikið sjálfstraust í okkar leik og við vorum mjög þéttir allan tím- ann. Við spiluðum miklu betri leik en gegn Arsenal, það voru engin vandræði í vörninni og við vorum líklegir til að skora allan tímann,“ sagði Jose Mourinho, stjóri Chel- sea, eftir leik. Thierry Henry vantar aðeins eitt mark upp á að jafna markamet Arsenal sem Ian Wright á. Frakk- inn snjalli skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Arsenal á Fulham og það skipti ekki máli þótt Fulham kæm- ist yfir í leiknum, Pascal Cygan jafnaði fyrir hálfleik og Arsenal skoraði síðan þrjú mörk í seinni hálfleiknum. Cygan hafði aðeins skorað eitt mark fyrir félagið fyrir leikinn í gær og hafði ekkert kom- ið við sögu í fyrstu tveimur leikj- unum í úrvalsdeildinni. „Við sköp- uðum fullt af færum og höfðum andlegan styrk til að halda áfram eftir að við lentum undir. Pascal Cygan lék mjög vel, okkur vantaði meiri reynslu í vörnina og ég vildi hvíla Philippe Senderos. Ég var líka ánægður með Henry, sem leiddi liðið í kvöld, og þá sannaði Dennis Bergkamp enn á ný hversu góður leikmaður hann er,“ sagði Arsene Wenger eftir leikinn. Þá vann Bolton sinn fyrsta sigur þegar liðið vann 2-0 sigur á Newcastle, sem á enn eftir að skora eftir þrjá leiki og stóllinn hans Graeme Souness er því orð- inn rauðglóandi. ooj@frettabladid.is Forkeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gær: FÓTBOLTI Lið Manchester United er komið áfram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir sannfærandi sigur á ungverska liðinu Debrecen á útivelli. Sam- anlagt vann United leikina tvo 6-0 en það var varnarjaxlinn Gabriel Heinze, sem skoraði tví- vegis, sem var maður leiksins. Annað enskt lið var í eldlínunni en Everton tapaði, 2-1, fyrir Vill- arreal á Spáni, rétt eins og á heimavelli. Alls voru átta leikir háðir um jafn mörg laus sæti í riðlakeppn- inni og áttum við Íslendingar einn fulltrúa þar. Það var Árni Gautur Arason, sem stóð eins og venjulega milli stanganna hjá Vlerenga. Norska liðið mætti Club Brugge á útivelli en fyrri leik liðanna lauk með 1-0 sigri Vålerenga. Árni Gautur átti hreint út sagt stórleik í markinu, varði stórglæsilega margoft í leiknum og náði að halda mark- inu hreinu í 79 mínútur, þar til heimamenn skoruðu loksins eftir að hafa legið í sókn allan leikinn. Það var því framlengt og hélt Árni Gautur hreinu þar en varð svo að játa sig sigraðan í víta- spyrnukeppninni, þrátt fyrir að hafa varið eitt víti. Félagar hans misnotuðu hins vegar tvær spyrnur. -esá United áfram en svekkj- andi hjá Árna Gaut Knattspyrnumaðurinn Marel Baldvinsson, sem er á mála hjá Lokeren í Belgíu, hefur að und- anförnu verið orðaður við sitt gamla félag hér á Íslandi, Breiðablik. Marel hefur átt við erfið meiðsl að stríða á hné í sjö mánuði en vonast nú til þess að meiðslatímabilið sé að baki. „Ég á við brjóskeyðingu í hné að stríða og það er erfitt fyrir mig að þola álagið sem fylgir því að vera atvinnumaður meðan þessi meiðsli lag- ast ekki. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir en ég er þó farinn að æfa meira núna en ég gerði og vonandi fæ ég tækifæri á því að reyna mig í leikjum á næstunni.“ Marel er ánægður með lífið í Belgíu, þó stað- an mætti vera betri í fótboltanum, en Íslend- ingarnir hjá Lokeren, Arnar Viðarsson, Arnar Grétarsson, Rúnar Kristinsson og Marel, halda mikið hópinn. „Við spilum reglulega golf, þar sem hörð keppni fer fram okkar á milli. Ég reyni nú alltaf að standa mig þar þó ég hafi ekki getað beitt mér eins mikið og ég vildi á fótboltavellinum.“ Eftir nokkur ár, þar sem hann hefur lítið getað beitt sér vegna meiðsla, getur hann vel hugsað sér að koma heim og byggja sig upp að nýju. „Það kemur alveg til greina að koma heim þegar samningn- um mínum lýkur, en það er ekki fyrr en næsta vor þegar keppnistímabilinu lýkur. Auðvitað væri gaman að fara í Breiðablik en ég hef ekkert heyrt af áhuga félaga á Ís- landi á mér, enda er ég samningsbundinn Lokeren og hef ekki mikið verið að velta þess- um málum fyrir mér. En það er ánægjulegt að Breiðablik skuli vera komið í efstu deild og ef það er mikill metnaður hjá félaginu á næstu leiktíð kemur vel til greina að spila með því, alveg eins og hverju öðru metnaðar- fullu félagi,“ segir Marel. MAREL BALDVINSSON: SAMNINGUR HANS VIÐ LOKEREN Í BELGÍU RENNUR ÚT Í VOR Gæti alveg hugsa› mér a› spila me› Blikum Kvöldskóli BHS Innritun í málmiðndeild kvöldskóla Borgarholtskóla verður eftirfarandi daga: miðvikudag 24. ágúst kl. 17 - 19 fimmtudag 25. ágúst kl. 17 - 19 föstudag 26. ágúst kl. 17 - 19 laugardag 27. ágúst kl. 11 - 14 Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir almennt bóknám og allar málmiðngreinar. Tilvalið fyrir þá sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum. Kenndar eru allar suðugreinar, s.s. MIG/MAG, TIG, logsuða og rafsuða. Þá eru í boði allir áfangar í rennismíði, handa- og plötuvinnu, ásamt aflvélavirkjun og áfangar fyrir pípulagnir og fl. Bóklegt efni Fagbóklegt efni Teikningar Verklegt BÓK - 102 bókfærsla IRB - 122 iðnreikningur CAD - 113 tölvuteikning HSU-102/202 verkleg suða DAN - 102 danska IRM - 132 iðnreikningur GRT - 103 grunnteining LSU-102/202 verkleg suða ENS - 102 enska IVT - 112 iðnvélatækni GRT - 203 grunnteining RSU-102/202 verkleg suða ENS - 202 enska KÆL-102 kælitækni + verkleg ITB allir áfangar iðnteikning bygg RLS-162 verkleg suða ENS - 212 enska VFR - 102 ITM - 114 iðnteikning REN-103/203 verkleg rennism. ÍSL - 102 íslenska VHM -102 bókl. vélahlutafræði ITM - 213 iðnteikning REN-303/313 verkleg rennism. ÍSL - 202 íslenska VLV - 112 loft og vökvi MRM - 102 mælingar REN-403/413 verkleg rennism. STÆ -102 stærðfræði VTB - 152 iðnteikning RAT - 102 rafeindatækni VVR-123 verkleg rennism. STÆ -122 stærðfræði VTV - 152 verkleg pípulögn RÖK - 102 rökrásir AVV-103/203 verkleg vélvirkjun STÝ - 102 stýritækni TTÖ - 102 tölvuteikning HVM-103/203 handavinna. REN-103/203 verleg rennism. PLV-102/202 plötuvinna VVR-204 Smíðar VVR-214 Díselvél Upphaf kennslu: mánudag 29. ágúst frá 18:10-22:30 Lok kennslu: laugardaginn 3. desember frá 8:10-12:30 Athugið að áfangar geta fallið niður, náist ekki nægur fjöldi í hópa Innritunargjald er kr. 14000. Verð á bóklega einingu er kr. 1500 og verklega einingu kr. 3000. Hámarksgreiðsla er kr: 40.000 Sími: 535-1716 í málmdeild www bhs.is vélfræði Kvöldskóli BHS Innritun í málmiðndeild kvöldskóla Borgarholtskóla verður eftirfarandi daga: miðvikudag 24. ágúst kl. 17 - 19 fi mt dag 25. ágúst kl. 17 - 19 föstudag 26. ágúst kl. 17 - 19 la ardag 27. ágúst kl. 11 - 14 stýritækni LEIKMENN UNITED FAGNA Leikmenn Manchester United hópast í kringum Gabriel Heinze, sem skoraði tvö marka sinna manna gegn ungverska liðinu Debrecen í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY PABBADANS Frank Lampard og John Terry fagna hér marki þess fyrrnefnda en Lampard, sem er nýorðinn pabbi, skoraði tvö mörk í gær. GETTYIMAGES Chelsea er eitt á toppnum eftir leiki gærkvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Frank Lampard skora› tvö mörk í 4–0 sigri á West Bromwich Albion.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.