Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 47
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2005 31
Greta Mjöll me› flrennu
og Blikar í bikarúrslitin
Valsstelpur eiga ekkert svar vi› skipulög›u og vel stemmdu li›i Blika, sem hafa
unni› alla flrjá leiki li›anna í sumar. Valsli›i› fer flví titlalaust frá flessu sumri.
FÓTBOLTI Breiðablik er komið í bik-
arúrslit VISA-bikars kvenna eftir
4-0 sigur á Val í undanúrslitaleik
liðanna á Kópavogsvelli í gær og
er búið að taka stórt skref í átt að
tvöföldum sigri í sumar. Hvorugur
tititlinn er þó í höfn en mæti Blik-
ar jafn samstíga í komandi leiki og
í gær stenst ekkert íslenskt lið
þeim snúninginn. Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir heldur áfram að fara illa
með varnarmenn Vals, sem ráða
ekkert við hinn kröftuga og eld-
fljóta framherja Blika sem hefur
skorað fimm mörk í þremur leikj-
um liðanna í sumar. Greta skoraði
þrennu í seinni hálfleik í gær eftir
að Erna Björk Sigurðardóttir hafði
skorað fyrsta markið rétt fyrir
hálfleik.
„Þetta er algjört æði og þetta er
ekkert heppni því við erum núna
búnar að vinna þær þrisvar í röð.
Loksins ætti fólk að sjá að við
erum með besta liðið,“ sagði Greta
Mjöll en hún hefur skorað sjö
mörk í þremur bikarleikjum Blika.
Valsliðið var eins og í hinum
leikjunum meira með boltann en
ráðalaus og hugmyndasnauður
sóknarleikur liðsins náði aldrei að
ógna Blikavörninni verulega og
fyrir vikið fékk besti leikmaður
Landsbankadeildarinnar í sumar,
Þóra Björg Helgadóttir, mun
minna að gera í gær en flestir
höfðu búist við. Þóra sýndi þó sitt
einstaka öryggi en það var annars
nóg af grænum hetjum á Kópa-
vogsvellinum í gær enda Blikaliðið
að spila mjög vel gegn stressuðu
og hugmyndalitlu Valsliði.
Úlfar Hinriksson, þjálfari
Blika, hefur fundið uppskriftina að
því að vinna hið frábæra lið Vals.
„Tölur leiksins benda kannski til
þess að þetta hafi verið upprúllun
en þetta var samt hörku fótbolta-
leikur. Það er frábært að vinna lið
sem er á góðri leið í Evrópukeppni
og það er glæsilegt hjá okkur að
taka þær svona sannfærandi í
þremur leikjum. Við ætluðum
okkur þetta, við erum ekkert
miklu betri en þær en hungrið er
okkar megin,“ sagði Úlfar.
Íris Andrésdóttir, fyrirliði Vals,
var niðurlút í leikslok enda ljóst að
hún lyftir engum bikurum í ár.
„Það er ekki nema að við verðum
Evrópumeistarar,“ sagði Íris í léttu
gríni en gat þó ekki falið vonbrigð-
in. „Við ætluðum okkur sigur í dag
en ég veit bara ekki hvað klikkaði.
Þetta eru tvö bestu lið landsins og
þetta er ekki getumunurinn á lið-
unum. Munurinn er að þær nýta
sín færi en ekki við. Ef ég væri sál-
fræðingur væri ég örugglega búin
að greina hvað væri að. Það er ekki
gott að við getum farið erlendis í
Evrópukeppni og sýnt frábæran
fótbolta þar sem enginn sér okkur
en komið svo heim og sýnt svona
spilamennsku,“ sagði Íris að
lokum. ooj@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
VISA bikar kvenna:
BREIÐABLIK–VALUR 4–0
1–0 Erna Björk Sigurðardóttir (44.), 2–0
Greta Mjöll Samúelsdóttir (69.), 3–0
Greta Mjöll (83.), 4–0 Greta Mjöll (90.).
KR–FJÖLNIR 6–2
1–0 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (5.), 2–0
Vanja Stefanovic (9.), 3–0 Fjóla Dröfn
(19.), 3–0 Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
(30.), 5–0 Ásgerður Ingibergsdóttir (39.),
5–1 Edda María Birgisdóttir (58.), 6–1
Hrefna Huld Jóhannesdóttir (63.), 6–2
Helga Franklínsdóttir (89.).
Enska úrvalsdeildin:
ARSENAL–FULHAM 4–1
0–1 Claus Jensen (23.), 1–1 Pascal Cygan
(31.), 2–1 Thierry Henry (53.), 3–1 Thierry
Henry (82.), 4–1 Pascal Cygan (90.).
CHELSEA–WBA 4–0
1–0 Lampard (23.), 2–0 Joe Cole (45.),
3–0 Didier Drogba (68.), 4–0 Lampard
(81.).
BALCKBURN–TOTTENHAM 0–0
BOLTON–NEWCASTLE 2–0
1–0 El-Hadji Diuof (37.), 2–0 Stelios
Giannakopoulos (50.).
Meistaradeild Evrópu:
SLAVIA PRAG–ANDERLECHT 0–2
Anderlecht komst áfram í riðlakeppnina, 4–1
samanlagt.
AJAX–BRÖNDBY 3–1
Ajax komst áfram, 5–2 samanlagt.
CLUB BRUGGE–VÅLERENGA 1–0
Club Brugge komst áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Árni Gautur Arason lék allan leikinn fyrir
Vålerenga og varði eitt víti í vítaspyrnukeppninni.
DEBRECEN–MAN. UTD. 0–3
Manchester United komst áfram, 6–0 samanlagt.
Gabriel Heinze (2) og Kieran Richardson skoruðu
mörk Manchester United í leiknum.
RANGERS–ANORTHOSIS 2–0
Rangers komst áfram, 4–1 samanlagt.
W. BREMEN–BASEL 3–0
Werder Bremen komst áfram, 3–2 samanlagt.
INTER–SHAKTAR DONETSK 1–1
Inter komst áfram, 3–1 samanlagt.
VILLARREAL–EVERTON 2–1
Villarreal komst áfram, 4–2 samanlagt.
Norska 1. deildin:
STABÆK–MOSS 0–1
Veigar Páll Gunarsson var í byrjunarliði Stabæk.
Verð aðeins kr. 1.699.000
Real samþykkir tilboð:
Owen er á lei›
til Englands
FÓTBOLTI Enski landsliðsframherj-
inn Michael Owen er á leið til
Englands á nýjan leik eftir að
hafa verið á mála hjá Real Ma-
drid á Spáni í eitt ár. Real Madrid
tók í gær tilboði frá Newcastle
United í Owen upp á rúmlega
fimmtán milljónir punda og er
Owen tilbúinn að ganga til liðs við
félagið ef Liverpool hefur ekki
áhuga á kröftum hans.
„Ég vil fá svar frá Liverpool
áður en ég ákveð að fara til
Newcastle. Það er alveg ljóst í
mínum huga að Liverpool er
fyrsti kostur á Englandi. Eins og
staðan er núna er Newcastle kost-
ur númer tvö, en ef ekkert tilboð
berst frá Liverpool er ég tilbúinn
að fara til Newcastle ef samning-
ar nást,“ sagði Owen.
Í tilkynningu frá Real Madrid í
gær var staðfest að tilboð New-
castle væri á borðinu og biði að-
eins ákvörðunar leikmannsins, en
ekkert hefur heyrst frá forráða-
mönnum Liverpool, sem enn hafa
ekki gert upp hug sinn varðandi
framherjann.
„Það hefur algeran forgang
fyrir mig að vera í enska landslið-
inu á HM í Þýskalandi næsta
sumar og til að ná því takmarki
verð ég að fá að spila eitthvað.
Það sýnist mér útilokað ef ég
verð áfram hér á Spáni,“ sagði
Owen. „Ég er því afar þakklátur
forráðamönnum Real Madrid
fyrir að leyfa mér að snúa aftur
til Englands.“
MARKASKORARAR BREIÐABLIKS FAGNA Blikastúlkur skoruðu fjögur mörk gegn Val í gær.
Guðlaug Jónsdóttir, sem lagði upp fyrstu tvö mörkin, og Greta Mjöll Samúelsdóttir (9),
sem skoraði þrennu í seinni hálfleik, fagna hér Ernu Björk Sigurðardóttur eftir að hún
hafði komið Breiðabliki yfir rétt fyrir hálfleik. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.