Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 56

Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 56
40 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Hvítkálið skorið í fjórðunga, stilkurinn fjarlægður og kálið síðan skorið í þunnar ræmur. Laukurinn saxaður smátt. Smjörið brætt á stórri pönnu og laukurinn látinn krauma í því við fremur vægan hita þar til hann er meyr. Þá er kálinu bætt á pönnuna og það látið krauma í um 5 mínútur. Hrært oft á meðan. Eplasafa og ediki hellt á pönnuna, kryddað með timjani, pipar og salti, lok lagt yfir og látið malla við vægan hita í um 5 mínútur. Síðan er lokið fjarlægt og kálið látið sjóða áfram í 2-3 mínútur, eða þar til nær allur vökvi er gufaður upp. Þessi kálréttur er sérlega góður með reyktu svínakjöti, pylsum, bjúgum o.fl. og hentar einnig með fuglakjöti og lambasteik. 1 hvítkálshaus, meðalstór 1 laukur 50 g smjör 100 ml eplasafi (einnig má nota appelsínusafa) 2 msk. eplaedik (cider vinegar) 1/2 tsk. timjan, þurrkað nýmalaður pipar salt Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S G RA 2 85 65 06 /2 00 5 hvítkálSmjörsteikt maturogvin@frettabladid.is > Frábært apparat ... Láttu Kitchenaid búa til morgunmatinn þinn á met- tíma. Settu banana, prótein, klaka og vatn í græjuna og málinu er reddað! „Ég þeyti mér af og til skyrdrykk í morgunmat,“ segir leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir aðspurð um uppskrift að hollri morgun- hressingu. „Þá skelli ég einfald- lega vanilluskyri, banana og fullt af klökum í vélina ásamt nokkrum melónubitum og jarðarberjum og blanda svo drykkinn í svona tutt- ugu sekúndur. Þetta er mjög fljót- legur, næringarríkur og góður morgunverður sem stendur með manni allan daginn.“ Leikkonan þarf á allri sinni orku að halda um þessar mundir því auk þess að vera að hefja æf- ingar fyrir nýtt leikár í Þjóðleik- húsinu stendur Unnur Ösp í íbúða- skiptum. „Ég var að setja drauma- íbúðina mína á sölu. Þetta er fyrsta íbúðin mín og því erfitt að skilja við hana. Ég veit að ég á eft- ir að sakna gamla eldhússins því það er stór gluggi með útsýni yfir Vesturbæinn í miðju eldhúsinu og það getur verið mjög róandi að horfa út um gluggann á meðan maður vaskar upp á kvöldin. Þetta bjargast þó allt því ég tek með mér það sem er mér kærast,“ seg- ir Unnur sposk. „Ég á í mjög nánu sambandi við kaffivélina mína og finnst fátt betra en að sitja við eldhúsborðið með góðan morgun- mat, dagblöðin og vel lagaðan kaffibolla. Annars get ég ekki sagt að ég sé mjög myndarleg í eldhúsinu, skelli ekki oft í kökur og kann ekki einu sinni að brúna kartöflur, en nýt þess þó að elda góðan mat þegar ég gef mér tíma til þess. Þá verða kjúklinga- og pastaréttir oftast fyrir valinu en ég reyni að læra sem mest af mömmu því hún er listakokkur.“ Eftir áramót kemur Unnur til með að leikstýra stærsta sviðs- verki sem hún hefur ráðist í hing- að til og flettir hún því gjarna upp í kokkabókum bæði um leiklist og leikstjórn. „Það er oft sagt að ef þú ert góður kokkur þá sértu góð- ur leikstjóri. Það er líka sagt að ef þú sért lengi að panta mat af mat- seðli þá sértu vonlaus leikstjóri því þú getir ekki tekið einföldustu ákvarðanir. Ég tek þessu með fyr- irvara því maðurinn minn, sem er að leika úti í Þýskalandi, sagði mér sögu af einum virtasta leik- húsmanni Þjóðverja en hann var 25 mínútur að panta matinn á seðl- inum.“ Þangað til að Unnur ræðst í leikstjórnar- verkefnið verður hún að leika í Þjóðleikhúsinu í Klaufum og Kóngs- dætrum, Edith Piaf og nýju leikriti um H o l l y w o o d - d r a u m a Halldórs Laxness: „Þar leik ég Ingu Laxness en þetta er í fyrsta sinn sem ég glími við að leika persónu sem var raunveru- lega til. Ég er að byrja að lesa mér til um ævi Ingu og var einmitt að lesa um það þegar hún sem barn fékk að fylgjast með vinnukonun- um í eldhúsinu. Ég á svo eftir að komast að því hvort vinnukonurn- ar hafi fylgt henni í gegnum lífið eða hvort hún hafi verið dugleg að matreiða fyrir Halldór Laxness.“ Eldar fyrir Laxness? UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR Leikkonunni þykir gott að fá sér næringarríkan og góðan skyrþeyting í morgunmat. SKYRÞEYTINGUR Í MORGUNSÁRIÐ 1 dolla vanilluskyr 1 banani Melónubitar 7 jarðarber Fullt af klökum Barramundi Cabernet Merlot var í júní og júlí langsöluhæst ástr- alskra vína í Vínbúðum, enda vín með mikinn persónuleika sem brýtur upp einsleitni í úrvali kassavína. Vínið hefur í þrígang verið valið besta kassavínið í Svíþjóð. Aftonbladet þar í landi kallaði það „grand cru“-vín kassavínanna. Vínið er nokkuð djúpt með keim af plómum og dökkum kirsuberjum. Mjög gott með grilluðu lambi, svínakjöti, kjúklingi og léttri villibráð. Frábært eitt sér, til dæmis á golfvellinum! Heldur til fulls öllum bestu einkennunum í 10-14 daga eftir opnun. Hvíta vínið sem er blanda af Chardonnay og Sémillon, er einnig afar vinsælt, næstmest selda hvítvínið frá Ástr- alíu í sumar - ljúft, þurrt og milt, ilmríkt og bragðgott. Verð í Vínbúðum 3.590 kr. BARRAMUNDI: Mest selda víni› frá Ástralíu í sumar Einhver ódýrasti bjórinn í Vínbúðum hérlendis er danski bjórinn Thor Classic en 33 cl dósir af bjórnum kosta 99 krónur. Þetta lága verð er mjög ná- lægt því verði sem gerist á bjór í Frí- höfninni en sambærilegur danskur bjór kostar 91,66 kr. þar. Fríhöfnin þarf ekki að greiða virðisaukaskatt, áfengis- gjald né skilagjald á dósir eða flöskur en til samanburðar má nefna að af þeim 99 krónum sem neytendur greiða fyrir Thor-bjórinn í Vínbúðum renna 72,23 krónur til Ríkissjóðs, þess sama og rekur Fríhöfnina í gegnum hlutafé- lag. Thor Classic er millidökkur bjór. Nokkuð beiskur með maltkeim. Hann er afar vinsæll í Danmörku en bjórn- eysla í því mikla bjórlandi hefur í aukn- um mæli færst yfir í dekkri tegundir bjórs undanfarin ár. Thor Classic þykir fara vel með öllum mat og er það sögð ein meginskýringin á vinsældum hans. Verð í Vínbúðum 99 kr. THOR CLASSIC: Dökkur á fríhafnarver›i Hvaða matar gætir þú síst verið án? Ég gæti ekki verið án góðs morgunverðar. Ég bý sjálf til mitt eigið múslí í morgunmatinn en annars fæ ég mér vatn, kaffi og vítamín. Fyrsta minningin um mat? Þegar ég var á barnaheimili og var að borða grjónagraut með slátri og fékk blóðappelsínur í eftirrétt. Ég held að ég hafi verið fjögurra ára og mér fannst þetta algjört lostæti. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Ég get eiginlega ekki borðað gellur og hrossakjöt. Leyndarmál úr eldhússkápn- um? Ég bý yfir þeim hæfileika að geta töfrað fram góða rétti úr litlu. Þegar það tekst verð ég voða stolt af sjálfri mér. Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta þér líða betur? Nú er ég ógurlega hrifin af því að grípa nokkra ávexti sem ég geymi í stórri þriggja hæða skál og setja þá í blandarann. Úr þessu verður ómótstæðilegur ávaxtadrykkur sem ég set í fallegt glas með klaka og röri. Þetta gerir mér alltaf gott. Hvað áttu alltaf í ísskápn- um? Ég á alltaf salat, basilika og steinselja sem ég rækta sjálf. Síð- an passa ég líka að eiga fjör- mjólk, ost og góðar mjólkur- vörur svo börnin fái almenni- legan morgunmat. Ef þú yrðir föst á eyði- eyju, hvaða rétt mynd- ir þú taka með þér? Ég myndi bara taka með mér veiðistöng og búa réttinn til á staðnum. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Ég borðaði orma- súpu í Kína sem átti að tryggja langlífi. Ég þorði ekki að storka örlögunum með því að afþakka hana og þar með langlífið, en ég varð að loka augunum á meðan máltíðinni stóð. Í Malasíu fékk ég ávöxt sem er mjög undarlegur út- lits en góður á bragðið. Það er agaleg fýla af honum og víða í landinu eru skilti sem banna að taka hann með í strætó, leigubíla eða húsnæði. Þetta er samt upp- áhaldsávöxtur margra innfæddra. MATGÆÐINGURINN SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR ÞÁTTASTJÓRNANDI Bor›a›i ormasúpu í von um langlífi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.