Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 57
Tri-vento þýðir „þrír vindar“ og er kennt við þá vinda
sem hafa gert vínrækt mögulega, Polar-vindinn, sem
eins og nafnið bendir til, blæs kaldur um vínekrurnar
á veturna, Zonda sem kemur að vestan frá Andes-fjöll-
unum með hlýjuna um vorið og Sudestada að austan
sem kælir svæðið í sumarhitanum og ber raka með sér.
Þessir vindar gera vínrækt eins arðbæra og raun ber
vitni, og Trivento hefur svo sannarlega komið með
ferska vinda í vínheiminn.
Trivento, staðsett í Mendoza-héraði, er stærsti út-
flytjandi vína Argentínu undir eigin nafni og var
einnig mest selda vínið frá Argentínu hér á Íslandi á
síðasta ári. Vínekrurnar eru orðnar 565 ha og þrúg-
urnar eru þær sem hafa reynst best í Argentínu, fyr-
ir utan alþjóðlegu þrúgurnar (cabernet sauvignon,
merlot, shiraz, chardonnay) sem þrífast mjög vel á
Mendoza-svæðinu. Þar eru í sviðsljósinu malbec, bon-
arda, torrontes, chenin, viognier, sangiovese og fleiri.
Fjölbreytnin eins mikil og hægt er að hugsa sér og
víngerðin hjá Trivento nær því besta úr þrúgunum.
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2005 41
K
O
R
T
E
R
.
I
S
Hvernig er stemningin?
Austurlandahraðlestin er
„Take Away“ staður eins
og þeir gerast bestir.
Einnig er hægt að borða inni á
staðnum en þar eru nokkur háborð
og stólar. Innréttingarnar eru
smekklegar og ágætt að tilla sér
þar meðan beðið er eftir því að
maturinn sé tilbúinn. Þegar Austur-
landahraðlestin er annars vegar
skipta innréttingar þó engu máli
því maturinn er í fyrsta sæti.
Matseðillinn: Eins og nafnið gefur
til kynna er boðið upp á austur-
lenskan mat á Hraðlestinni. Þar eru
ljúffengir kjúklinga-, grænmetis- og
kjötréttir framreiddir úr gæða hrá-
efni sem myndar himneskt bragð.
Með réttunum er gott að hafa hrís-
grjón, nanbrauð og raita staðarins
smakkast mjög vel. Austurlanda-
hraðlestin flokkast sem spari-
skyndibitastaður enda er verðið yfir
meðallagi.
Vinsælast: Kjúklingaréttirnir eru
vinsælastir á matseðlinum og þá er
um að ræða tikkamasala-kjúkling
og kjúkling 65 sem er sterkur og
bragðgóður.
Réttur dagsins: Boðið er upp á
rétti dagsins og eru þeir misjafnir
frá degi til dags. Diskurinn kostar
1.595 krónur.
Ljúffeng og
ævint‡raleg
VEITINGASTAÐURINN
AUSTURLANDA HRAÐ-
LESTIN HVERFISGÖTU 64a,
101 REYKJAVÍK
Nýjar tegundir einkennast af öðruvísi
miða en eru táknræn fyrir Trivento: fjöllin
og vindar eru merki þessara tveggja
þrúgna vína. Trivento Chardonnay Tor-
rontes er mjög aðlandi hvítvín þar sem
torrontes-þrúgan færir blómaangan og
léttkryddaðan keim. Trivento
Chardonnay Chenin er einnig mjög að-
laðandi með epla- og muskatkeim úr
chenin, suðrænum ávöxtum og afar
góðu eftirbragði. Af rauðu þrúgunum
eru tvær tegundir fáanlegar: Trivento
Cabernet Merlot sem er sígild Bor-
deaux-blanda sem hefur verið tekin
upp um allan heim og Trivento Shiraz
Malbec sem er óvenjulegri blanda en
hefur bestu einkenni frá þessum tveim-
ur gæðaþrúgum. Fáguð vín af bestu
gerð og á mjög góðu verði.
Vínin fást í Heiðrúnu og Kringlunni og kosta 990 kr.
Trivento Chardonnay kallaði
Þorri Hringsson í Gestgjafanum
„algjört nammi-vín“. Chardonn-
ay-þrúgan er fjölhæf og háð vín-
gerðinni: hér er hún fersk, ung og
öll einkenni þrúgunnar varð-
veitt. Ávöxturinn er nokkuð
suðrænn: ananas, ferskjur,
melóna, tónar af hunangi. Að-
laðandi og ferskt vín sem á
heima á öllum hlaðborðum
þar sem það hefur nógan
persónuleika til að passa
með öllum léttum réttum
sem eiga heima þar. En það
hentar einnig afar vel með
skelfiski, rækjum og hörpu-
diski, hvítu kjöti og sérstak-
lega fuglakjöti.
Verð í Vínbúðum 990 kr.
Trivento Reserva Cabernet
Malbec hefur verið geysi-
lega vinsælt og er skýring-
in sennilega sú að vínið er
með bestu kaupunum í Vín-
búðum þegar gæði og
verð eru skoðuð. Geymt
í átta mánuði í eik-
artunnu, hefur létta
stemmu og mjög
góða fyllingu, góðan
og ferskan ávöxt,
mikið eftirbragð og
gott jafnvægi. Afar
fjölhæft vín sem
sómir sér vel með
einföldum ostabakka
sem og með betri
kjötmáltíð.
Verð í Vínbúðum 1.190 kr.
TRIVENTO: Ný lína frá fremsta framleiðanda Argentínu