Fréttablaðið - 26.08.2005, Page 6
6 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Gjaldskrárhækkun leikskóla Reykjavíkur:
Dregin til baka
vegna flr‡stings
REYKJAVÍKURBORG „Það er bara hollt
að stjórnmálamenn skipti stund-
um um skoðun,“ segir Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í
Reykjavík, en borgarráð sam-
þykkti einróma í gær tillögu Al-
freðs Þorsteinssonar um að
Reykjavíkurborg félli frá fyrir-
huguðum breytingum á gjaldskrá
leikskólanna. Gjaldskrá fyrir
börn, þar sem annað foreldrið er í
námi, mun því ekki hækka. Stein-
unn segir það hafa verið vegna
mikils þrýstings frá stúdentum að
ákveðið var að setjast aftur yfir
málið. Einnig í ljósi þess að verið
er að vinna að því að koma á gjald-
frjálsum leikskólum hafi verið
ákveðið að taka ekki þennan slag.
Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, sem
á sæti í Stúdentaráði segir stúd-
enta fagna þessari ákvörðun. „Að
sjálfsögðu fögnum við þessu,
baráttunni er lokið.“
„Þetta er í samræmi við okkar
tillögur sem R-listinn hafði stungið
undir stól,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn. „Við erum
því mjög ánægðir með þetta.“
Ólafur F. Magnússon, oddviti
Frjálslyndra, segir að ekki hafi
þurft að koma til þessi „sundrung“
R-listans til að taka þessa
ákvörðun; „Við vorum alfarið á
móti þessum hækkunum frá upp-
hafi, sem er í samræmi við stefnu
okkar um að lækka eða fella niður
þjónustugjöld barnafjölskyldna.“
- ss
Hundrað þúsund krónur boðnar á fermetrann:
Hestamönnum flykir ver›i› of lágt
SKIPULAGSMÁL Hesthúsaeigendum
í Glaðheimum hafa undanfarið
verið boðnar 80.000 eða 100.000
krónur á fermetrann fyrir hest-
hús sín, sem er hærra fermetra-
verð en fæst fyrir góð einbýlis-
hús víða á landsbyggðinni, en
eins og sjá má á töflunni fæst
jafnvel tvöfalt hærra verð fyrir
hesthúsin en íbúðarhús í Vest-
mannaeyjum eða Höfn í Horna-
firði. Ætla mætti að það þætti
gott verð, en hesthúsaeigendum
ber þó ekki saman um það.
„Ég hugsa að þetta sé of lágt
verð,“ segir Tómas Sigurðsson,
hestamaður í Kópavogi. Tómas er
ásamt fleirum með fimmtán
hesta í hundrað fermetra húsi
sem líklega myndu fást átta millj-
ónir fyrir ef tilboðinu yrði tekið.
Félagsmenn í hestamanna-
félaginu Gusti eiga húsin sjálfir,
en Gustur leigir lóðina af Kópa-
vogsbæ. Tómas telur að vegna
lóðaverðs yrði kostnaðurinn við
að koma sér upp nýrri aðstöðu
mun meiri en verðið sem fæst
fyrir húsið.
Tómas hefur ekki trú á því að
tölurnar sem fjárfestarnir hafa
gefið upp í fjölmiðlum standist.
Félagið sé lítið og flestir þekki
deili hver á öðrum. „Ég veit ekki
um neinn sem hefur selt.“
- grs
STRÁKARNIR OKKAR
Hefur þú trassað að fara með
bílinn þinn í skoðun?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Sjónvarpið að einbeita sér
að innlendri dagskrárgerð?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
81%
19%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Mannskæ› fló› í rénun
A› minnsta kosti 42 hafa farist í miklum fló›um sem sta›i› hafa í Evrópu
sí›ustu daga en í gær tók vatni› loksins a› sjatna. fiyrlur björgu›u fólki sem
leita› haf›i skjóls á húsflökum í Bern, höfu›borg Sviss.
VATNSFLÓÐ Flóðin í Mið-Evrópu
sem hafa dregið í það minnsta 42
manns til dauða eru heldur í rén-
un. Í Bern, höfuðborg Sviss, þurfti
aftur á móti að rýma fjölda húsa
þegar áin Aare flæddi yfir bakka
sína.
Mikið lægðakerfi hefur gengið
yfir miðja Evrópu síðustu daga og
hefur úrkoma verið með allra
mesta móti. Ár hafa flætt yfir
bakka sína og flóðgarðar brostið
með tilheyrandi eignatjóni. Í gær
fór hins vegar að draga úr úrkom-
unni og um leið tók vatnið víða að
sjatna. Rennslið í Dóná náði hins
vegar ekki hámarki fyrr en í gær-
kvöld.
Verst hefur ástandið verið í
austanverðri álfunni, í Rúmeníu
týndi 31 lífi þegar flóð kaffærðu
1.400 hús um mitt landið. Þar er
þriggja ennþá saknað, þeirra á
meðal fjögurra ára gamallar
stúlku. Ellefu manns eru látnir
eða er saknað í Þýskalandi, Aust-
urríki og Sviss og mikið tjón hefur
orðið á mannvirkjum og ökrum í
Búlgaríu, Slóveníu og Moldóvu. Í
Alpahéruðunum rofnuðu allar
samgöngur við fjölda þorpa eftir
að vatnselgurinn reif vegi í sund-
ur. Varð að flytja vistir á vettvang
með þyrlum.
Í Sviss hefur ástandið verið
með versta móti. Gamli bærinn í
Luzern er nánast á kafi og rýma
varð fjölda húsa í höfuðborginni
Bern þegar áin Aare tók að flæða
yfir bakka sína. Þyrlur hífðu fólk á
brott sem hafði leitað skjóls undan
flóðinu á þökum húsa sinna. Talið
er að tólf manns séu fastir inni í
húsunum og sögðu stjórnvöld í
gær að staðan væri viðkvæm.
sveinng@frettabladid.is
MEÐALFERMETRAVERÐ
ÍBÚÐARHÚSA Á NOKKRUM
STÖÐUM Á LANDINU
Reykjavík 170-250 þúsund
Akureyri 120-180 þúsund
Árborg 110-170 þúsund
Akranes 80-115 þúsund
Grindavík 75-135 þúsund
Hesthús í Glaðheimum 80-100 þúsund
Fjarðabyggð 65-105 þúsund
Ísafjörður 55-75 þúsund
Vestm.eyjar 50-60 þúsund
Höfn í Hornafirði 45-55 þúsund
Heimild: Verðsjá Fasteignamats
ríkisins (www.fmr.is)
Íslendingur í Bern:
Allt er á floti
Grétar Rafn Steinsson,
knattspyrnumaður með Young
Boys, býr í Bern. „Engin rösk-
un er á högum
okkar sem
búum ofar í
borginni. Allt er
hins vegar á
floti hjá þeim
sem búa við ár-
bakkann, þar
sér maður hús-
toppana rétt
standa upp úr.“
Grétar segir samgöngur ganga
greiðlega á milli bæjarhluta en
viðurkennir að ástandið sé víða
slæmt. „Sumir staðir eru
algerlega á kafi undir vatni. Í
bænum hér við hliðina er
heimavöllur liðsins Thun og
hann er núna þrjá metra undir
vatni. Liðið var að komast í
Meistaradeildina í vikunni en
mun ekki spila á vellinum
sínum á næstunni.“ -shg
BERNARBÚUM BJARGAÐ Þyrlur voru notaðar við björgunarstörfin í gær þegar Aare tók að
flæða yfir bakka sína. Meðal annars var roskin kona hífð af þaki húss síns.
Álver í Reyðarfirði:
Hafist handa
vi› flakgrind
ÁLVER Í síðustu viku var stórum
áfanga náð í byggingu álvers Alcoa
í Reyðarfirði þegar starfsmenn
Bechtel byrjuðu að setja saman
stálgrind sem bera mun uppi þak
kerskálanna. Stálinu var skipað upp
á nýju álvershöfnina í ágústbyrjun
en alls var um að ræða 10.521 stykki
af byggingarstáli sem samanlagt vó
tæplega 3.200 tonn.
Annar skipsfarmur af bygging-
arstáli er nú á leið frá Hong Kong
og er búist við að hann komi á bygg-
ingarstað 15. september. - kk
LÍBERÍA
WEAH Í FORSETASLAGINN For-
setakosningar verða haldnar í
Afríkuríkinu Líberíu 11. októ-
ber næstkomandi. Margir eru
um hituna, þar á meðal knatt-
spyrnumaðurinn George Weah
sem gerði garðinn frægan með
AC Milan og Chelsea á árum
áður. Hann hefur enga reynslu
af stjórnmálum en þykir engu
að síður eiga nokkuð góða
möguleika vegna fornrar
frægðar.
DÓMSTÓLAR
MANNABREYTINGAR HJÁ DÓM-
STÓLARÁÐI Anna Mjöll Karls-
dóttir lögfræðingur tekur um
mánaðamótin við starfi fram-
kvæmdastjóra Dómstólaráðs af
Elínu Sigrúnu Jónsdóttur, sem
fer í fæðingarorlof til tveggja
ára. Dómstólaráð var stofnað 1.
júlí 1998 og hefur umsjón með
héraðsdómstólum landsins.
VIÐ LEIK Í LEIKSKÓLA Stúdentar sem eiga maka í fullri vinnu þurfa ekki að greiða hærri
leikskólagjöld.
GRÉTAR RAFN
STEINSSON
FYRIRHUGAÐ ÁLVER Verið er að setja
stálgrindina upp þessa dagana.