Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2005, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 26.08.2005, Qupperneq 10
FARMI VARPAÐ Rússar og Kínverjar hafa að undanförnu staðið fyrir heræfingum á austurstrandarlandamærum ríkjanna. Þær eru augljóslega til marks um aukna hern- aðarsamvinnu þessara tveggja stórvelda. 10 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Þingeyingur á níræðisaldri hefur gefið 2,5 milljónir króna til hjálparstarfs: Óskaplegt a› sjá heilu fljó›irnar svelta GÓÐGERÐARSTARF Laufey H. Helga- dóttir, 82 ára Þingeyingur sem bú- sett er í Borgarnesi, gaf nýlega eina milljón til hjálparstarfs Rauða krossins í Níger. Í Níger ríkir nú hungursneyð og óttast er um afdrif milljóna ef svo fer sem horfir. Laufey segir það góðverk að gefa fé í svona hjálparstarf. „Ég er búin að lesa og sjá svo mikið af myndum af mörgum börnum sem fá ekki að borða. Það er óskaplegt að sjá heilu þjóðirnar svelta, sérstaklega ef maður hugsar um allan þann mat sem fer til spillis hér heima.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Laufey gefur stórar upphæðir til hjálparstarfs Rauða krossins. Í ársbyrjun gaf hún milljón til stuðnings fórnarlamba flóðbylgj- unnar í Asíu og á síðasta ári gaf hún hálfa milljón í söfnunina Göngum til góðs til hjálpar börn- um sem búa við ógnir stríðsátaka. Á einu ári hefur Laufey því gefið á þriðju milljón til hjálparstarfs. Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross Ís- lands, segist hrærð yfir framlög- um Laufeyjar. „Laufey er einstök kona með stórt hjarta og geislar af mannkærleik og samfélags- vitund í víðum skilningi. Við erum henni afar þakklát.“ - ss LÖGREGLUMÁL Skráðum ofbeldis- brotum í miðborg Reykjavíkur fækkaði um 40 prósent á fimm ára tímabili frá árinu 2000 til loka árs- ins 2004. Lögregluyfirvöldum þykir þetta sýna að umtalsverður árangur hafi náðst og þakka það helst öryggismyndavélum og breyttum opnunartíma skemmti- og veitingastaða. Þetta kemur fram í úttekt Boga Ragnarssonar. Þar segir að 2004 voru skráð 463 ofbeldismál í miðborginni en allt árið 2004 voru skráð 282 slík mál í bækur lög- reglu. Fækkaði því brotum um tæplega 200 á þessum árum. Skýrsluhöfundur bendir breyttan opnunartíma skemmti- og veitingastaða auk uppsetningar eftirlitsmyndavéla sem helstu orsakir þessarar fækkunar ofbeld- isverka. Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir skýrsluna sýna svo ekki verði um villst að staða mála í miðbænum hafi batnað til mikilla muna, þvert á það sem oft á tíðum kemur fram í fjölmiðlum. „Fjölmiðlar hafa til- hneigingu til að mála skrattann á vegginn hvað miðborgina varðar. Atburðir sem þar gerast virðast fá meiri og stærri umfjöllun í fjöl- miðlum en sams konar atvik ann- ars staðar. Við höfum staðið fyrir rannsókn sem sýnir og sannar að þegar umfjöllun um miðborgina var lítil í fjölmiðlum jókst örygg- istilfinning almennings til muna.“ Tvennt skekkir úttektina að nokkru leyti. Annars vegar er enginn samanburður á því hvort brot voru almennt grófari eða vægari umrædd ár en ýmsir læknar telja líkamsárásir verða alvarlegri ár frá ári. Hins vegar er töluverður fjöldi brota sem aldrei er kærður eða kemur að öðru leyti ekki til kasta lögreglu og er því ómælanlegur. albert@frettabladid.is Karl Gústaf í árekstri: Konungur slapp ómeiddur SVÍÞJÓÐ Karl Gústaf Svíakonun- ungur lenti í árekstri á silfurlit- aðri BMW-bifreið sinni í gær. Hann ók aftan á bláan Volvo utan við ham- borgarastað- inn Max í mið- borg Norrköp- ing skömmu fyrir hádegið. Konungur- inn sat sjálfur undir stýri en slapp ómeidd- ur úr árekstr- inum. Bíll hans skemmdist hins vegar nokkuð. Konungurinn var á leið frá Solliden til Stokkhólms þar sem hann afhenti Vatnsverð- laun Stokkhólmsborgar í gær- kvöldi. ■ FLUGSTÖ‹ LEIFS EIRÍKSSONAR For›ist bi›ra›ir á flugvellinum Vegna aukinna öryggisrá›stafana á flugvöllum og til hæg›arauka hvetjum vi› farflega til a› mæta tímanlega í Leifsstö› flegar fari› er úr landi. Vi› mælum me› a› farflegar mæti í flug- stö›ina tveimur klukkustundum fyrir brottför. Ókeypis sætafer›ir frá BSÍ kl. 4.30 á morgnana í bo›i Flugstö›var Leifs Eiríkssonar. Gef›u flér tíma í Leifsstö› Finni› rúturnar me› okkar merki Athugi› a› innritun í Flugstö›inni hefst kl. 5.00. Tilbo›i› gildir frá 1. júní - 31. ágúst 2005 M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Ókeypis sætafer›ir frá BSÍ kl. 4.30 ÞAKKAÐ FYRIR GJÖFINA Bjarni Þorsteinsson, formaður Borgarfjarðardeildar Rauða kross Íslands, heimsótti Laufeyju og færði henni þakkir fyrir framlagið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ÍS LI E IN AR SS O N KONUNGSBÍLLINN KLESSTUR Ók aftan á bláan Volvo. RANNSÓKNIR „Það er beinlínis rangt að segja að fjórði hver fræðimaður sé óvirkur í rann- sóknum,“ segir Kristín Ingólfs- dóttir, rektor Háskóla Íslands, um niðurstöður úttektar sem greint var frá í Fréttablaðinu í vikunni. Þær gáfu til kynna að fjórðungur fræðimanna í fullu starfi við HÍ væri nánast óvirkur í rannsókn- um. „Stór hluti þessa hóps er virkur en ekki fullvirkur og á því geta verið ýmsar skýringar,“ segir Kristín og bendir á að Ísland sé í sjöunda sæti á heimsvísu í birtum rannsóknum miðað við höfðatölu, sem gæti aldrei gerst væru svo margir fræðimenn óvirkir. Kristín segir einnig langan tíma geta tekið fyrir yngstu fræðimennina að koma sér fyrir. Þá geti tekið langan tíma að fá birtingarhæfar niðurstöður úr viðamiklum rannsóknum og engin rannsóknarstig fáist á meðan. Að sögn Kristínar skila þó fimm til sjö prósent fræðimanna ekki við- unandi árangri í starfi og tekið verður á því. - grs Háskólarektor segir fræðimenn standa sig í starfi: Flestir í rannsóknum Ofbeldisbrotum fækkar miki› Ofbeldisbrot í mi›bæ Reykjavíkur voru 40 prósentum færri á sí›asta ári en ári› 2000. Breyttum opnunartíma skemmtista›a og öryggismyndavélum um a› flakka. STAÐREYNDIR ÚR SKÝRSLUM LÖGREGLUNNAR 89 prósent þeirra sem ofbeldisverk frömdu í miðbænum á síðasta ári voru ölvuð 64 af 249 ofbeldismálum á síðasta ári eru enn óupplýst Vopn koma ekki við sögu í meirihluta ofbeldismála Ofbeldismál eru algengust kringum upp- haf nýs kortatímabils í hverjum mánuði LISTVIÐBURÐIR Fjöldi tónlistar- manna kemur fram á tónleikum sem haldnir verða í Kerinu í Grímsnesi klukkan tvö á morgun til styrktar björgunarsveitinni Björgu á Eyrarbakka. Röð báta á vatni sprengigígsins myndar svið fyrir listamennina, en gestir tylla sér í gróna hlíð Kersins. „Þetta eru þriðju tónleikarnir sem haldn- ir eru í Kerinu en slíkir tónleikar þykja mikil upplifun, ekki síst vegna magnaðs hljómburðar,“ segir í tilkynningu. Hlöðver Þorsteinsson, varafor- maður björgunarsveitarinnar Bjargar, segir tónleikana hafa verið vel sótta og hlakkar mikið til helgarinnar. „Í fyrra voru hér um 3.000 manns í blíðskaparveðri og spáin fyrir helgina núna spillir ekki fyrir,“ sagði hann og kvað næg bílastæði við Kerið. Aðgangseyrir er 1.000 krónur, en frítt fyrir börn undir fermingu. Fram koma KK og Ellen Krist- jánsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson tenórsöngvari, Ragnhild- ur Gísladóttir söngkona, Hreimur Heimisson, söngvari úr Landi og sonum, og Vignir Snær Vigfússon, tónskáld og gítarleikari Írafárs, auk fjölda annarra. Tónleikunum stjórnar Árni Johnsen. - óká Tónleikar í Kerinu í Grímsnesi: Haldnir til styrktar Björgu KERIÐ Í GRÍMSNESI Kerið minnir um margt á grískt hringleikahús. ERILL Á MENNINGARNÓTT Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af fjölda fólks í miðbæ Reykjavíkur eftir að dagskrá Menningarnætur lauk.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.