Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 54
Ár eftir ár stend ég mig að því að gera sömu mistökin; ég fer í bæinn á Menningarnótt í þeim tilgangi að skemmta mér. Einhvern veginn tekst mér alltaf að gleyma því að það er einfaldlega ekki hægt að skemmta sér þessa nótt, nema að manni finnist æðislega gaman að standa í röð, vera með nefið í hárinu á einhverjum ókunnugum og verða rennvotur í rigningunni. Á einhvern óútskýranlegan hátt tókst mér þó að komast inn á skemmtistað á laugardaginn eftir að hafa barist með kjafti og klóm til að komast inn. Rennandi vot, hárið orðið krullað og með maskara niður á kinnar stefndi ég á barinn. Þar reyndi ég að ná sambandi við barþjóninn því ég var orðin ansi þyrst í bjór eftir allt umstangið. Eftir annan bardaga við álíka þyrst fólk, komin með bjór í höndina og tilbúin að fara að spjalla við bargestina sneri ég mér við og gekk á vegg. Það var einfaldlega ekki hægt að þverfóta fyrir æstu liðinu. Klesst upp við vin minn ákvað ég að klára bjórinn minn og koma mér heim sem fyrst. Þessi nótt er auðvitað af hinu góða og mér finnst alveg frábært hvað fólk er orðið áhugasamt að skoða þróun menningar í Reykjavík. Borgin iðar af lífi og listamenn fá tækifæri til að sýna listir sínar á öllum götum mið- borgarinnar. Fólk hvaðanæva að heimsækir borgina í þeim tilgangi að láta mata sig af menningu og upplifa eitthvað nýtt. Það fyndna við þetta allt saman er það að þessa menningu er ekki aðeins að finna þessa einu nótt í ágúst. Hún er nefnilega til staðar allan ársins hring. Allt of mörgum dettur bara ekki í hug að skoða hana nema akkúrat þennan eina dag! Ég mæli með því að allir þeir sem fá sinn skammt af menningu af og til ættu að vera alls staðar annars staðar en í miðborginni. Prufa til dæmis að fara út á land og kanna náttúruna í þögninni eða kúra heima yfir góðri bíó- mynd með popp og kók. Þannig gætum við leyft hinum að njóta kvöldsins án þess að þurfa að troðast í gegnum endalausa mannmergðina. Það eru hvort eð er aðeins þeir örfáu fremstu sem virkilega sjá það sem er að gerast. Ég held nefnilega að við getum gert góðan díl með því að skipta á þessu eina kvöldi og restinni af árinu. Þá fá allir það sem þeir vilja og geta skoðað mannlífið og atburð- ina óáreitt. Ég er ekki frá því að þetta sé al- veg ágætis lausn sem geri kvöldið enn betra! 42 Margt var um manninn á frumsýn-ingu myndarinnar Deuce Biga- low: European Gigolo en þar ber helst að nefna sjálfan Rob Schneider, aðal- leikara og meðhöfund myndarinnar. Kapp- inn vakti mikla lukku þegar hann spígspor- aði í anddyri Smára- bíós í Dead-jakka eftir Jón Sæmund. Logi Bergmann Eiðsson heiðraði Hollywood-leikarann með nærveru sinni en Svanhildur Hólm var hvergi sjáanleg. Tinna Marína Idol-stjarna var hins vegar þétt við hlið unnusta síns, Siffa á Kiss FM. Aðrar Idol- stjörnur á staðnum voru Davíð Smári og Helgi Þór. FM 95,7 gæjarnir Ásgeir Kolbeins,Svali og Heiðar Aust- mann voru kátir og náðu greinilega vel til Schneiders. Fegurðardrottningarnar voru svo að sjálfsögðu mætt- ar á svæðið eins og svo oft á viðburðum sem þessum en Unnur Birna, núverandi ung- frú Ísland, var sérstak- lega kynnt fyrir Rob og þau fengin saman í stutta myndatöku. Ragnhildur Steinunn lét heldur minna fyrir sér fara en hún kom á myndinna með vinkonu sinni af Sjónvarpinu, henni Sigrúnu Ósk sem var í Atinu. Siggi Kaiser mætti með hina fögru Stein- unni úr Nylon upp á arminn og er skemmtilegt að sjá hversu mikill hjónasvipur er með parinu. Í eftirpartíinu, sem var á Rex, færðistheldur betur fjör í leikinn þegar allir aðalleikararnir úr Flags of Our Fathers létu sjá sig ásamt fylgdarliði. Ryan Phillippe, Jesse Bradford, Jamie Bell, Adam Beach og Joe Cross voru kotrosknir og duglegir að panta drykki á barnum. Þeir voru svo ekki feimnir við að blanda geði við íslensk fljóð sem sveimuðu í kringum þá eins og mý á mykjuskán. Íslenskir leikarar létu sig held- ur ekki vanta því Þor- valdur Davíð, Victor Blær og Unnur Ösp tóku öll þátt í gleð- inni. LÁRÉTT: 1 bikkja 6 há 7 þurrka út 8 klukkan 9 stykki 10 spil 12 örn 14 klæðalaus 15 ónefndur 16 tímaeining 17 of lítið 18 listi. LÓÐRÉTT: 1 bættu við 2 fiskur 3 2 eins 4 umbylta 5 rönd 9 sigti 11 starf 13 ekki úti 14 hólf 17 hætta. LAUSN Stór Humar Medium Humar Sigin grásleppa Stór Humar Medium Humar Sigin grásleppa Kvikmyndagerðarmaður inn Baltasar Kormákur er á ferð og flugi þessa dagana. Svo miklu flugi að tollverðirnir í Leifsstöð halda því fram að hann sé kominn með fleiri flugmílur en flugmenn- irnir sjálfir. Hann hefur meðal annars setið í dómnefnd á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Kaupmanna- höfn, þar sem hann er í góðum hópi kvikmyndagerðarmanna og leikara. Formaður dómnefndar- innar er Nicolas Roeg, sem gerði Don’t Look Now með Julie Christie og Donald Sutherland. Aðrir meðlimir eru Susanne Bier, leikstjóri Den eneste ene, og þýski leikarinn Udo Kier. „Ég hef alltaf kunnað vel við mig í Kaup- mannahöfn og í Danmörku yfir- höfuð,“ sagði Baltasar. „Myndirn- ar mínar hafa gengið vel hérna og 101 Reykjavík var til að mynda mjög vinsæl,“ bætti hann hróðug- ur við. „Þar að auki er Magasin du Nord jú í eigu fjölskyldunnar,“ sagði hann í gríni en vissi þó ekki hvort Danir byggju yfir þeirri vitneskju. Hátðin stendur til 28. ágúst en þá reiknar Baltasar með því að heilsa upp á tollverðina í Leifsstöð og hljóðvinna A Little Trip to Heaven. Svo er ferðinni heitið til Bandaríkjanna þar sem myndin verður fullunnin fyrir Toronto-hátíðina en þar á að frumsýna hana í september. Baltasar verður ekki í slæm- um félagsskap með myndina en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru var hún valin í flokkinn Special Presentations. Í ár verða þar ekki ómerkari kapp- ar en Roman Polanski með mynd sína um Oliver Twist en í hlut- verki Fagins er enginn annar en Ben Kingsley. Þá verður einnig Bjólfskviða Sturlu Gunnarssonar sýnd í þessum flokki en banda- ríski leikstjórinn Robert Zemeck- is er nú að endurgera hana með Angelinu Jolie og Anthony Hopk- ins. ■ Baltasar sest í dómarasæti› BALTASAR KORMÁKUR Situr í dóm- nefnd alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Kaupmannahöfn. FROSTI OG BARÐI JÓHANNSSON Í KVÖLDÞÆTTINUM Viðtalið gekk vel framan af. Það var þó einhver spenna í loftinu og lítið mátti út af bregða. Síðan varð sprenging þegar Guðmundur spurði Barða hvort hann væri hommi. Barði sagðist ekki taka þátt í svona lélegu viðtali, stóð upp og fór. BARÐI JÓHANNSSON: GEKK ÚT ÚR KVÖLDÞÆTTINUM Nóg af meðalmennskunni FRÉTTIR AF FÓLKI ...fá menntaskólakennararnir Bragi Halldórsson, Knútur Haf- steinsson og Ólafur Oddsson fyrir að ritstýra nýrri sýnisbók um ís- lenskar bókmenntir, Orminum langa, sem höfða á til ungs fólks. HRÓSIÐ REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR VILL FREKAR FARA Í FERÐALAG Á MENNINGARNÓTT. Menningarnótt? 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 LÁRÉTT: 1Jálkur, 6Ull,7Má,8Kl,9Stk, 10Níu,12Ari,14Ber, 15Nn,16Ár, 17Van, 18Skrá. LÓÐRÉTT: 1Juku,2Áll,3Ll,4Umturna, 5Rák,9Sía,11Verk, 13Inni,14Bás, 17Vá. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Um 1.500, alla nema einn. Typpatal. Marel Baldursson. 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Þeir sem sáu Kvöldþáttinn á Sirkus síðastliðið miðvikudags- kvöld urðu vitni að því þegar tón- listarmaðurinn Barði Jóhannsson gekk út í miðri útsendingu. Hann var í þættinum ásamt Frosta úr Mínus til að spjalla um myndina Strákarnir okkar en Barði og Mínus semja einmitt tónlistina við hana. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort þetta hefði ekki verið allt í góðu og fyrir fram skipu- lagt. „Nei, nei, þetta var bara Barði, þetta var svona, gaman að þessu,“ svaraði þáttastjórnandinn Guðmundur Steingrímsson og bætti við að honum þætti gaman að viðtölum sem væru þrungin spennu. Hvort það hefði verið eitthvað eitt sem orðið hefði til þess að tónlistarmaðurinn gekk út segir Guðmundur að sér hafi fundist sem Barði leitaði eftir tækifærinu allan tímann. „Ég spurði Mínus út í eiturlyfin og þá lá beint við að spyrja hann út í eiturlyfin,“ segir Guðmundur en það var þó spurningin um hvort Barði væri hommi sem var korn- ið sem fyllti mælinn. „Myndin fjallar um homma og ég var að velta því fyrir mér hvort maður þyrfti að vera hommi til að leika homma. Það var því eðlileg fram- vinda að spyrja hvort þú þyrftir ekki að vera hommi til að semja tónlist fyrir hommamynd,“ segir Guðmundur, sem lét þó uppákom- una ekki slá sig út af laginu. „Það má nefnilega ganga út úr Kvöld- þættinum,“ segir hann. Guðmundur var samt sem áður ekki á því að þetta hefði verið það óvenjulegasta í þættin- um, Barði hefði nefnilega brosað sínu breiðasta. „Þetta voru ekki málglöðustu menn sem ég hef fengið í sófann til mín.“ Barði var mjög harðorður í garð stjórnanda Kvöldþáttarins þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans. „Hann hefði þess vegna getað verið að stjórna amatörlegu menntaskólasjón- varpi. Spyrillinn vissi hvorki í þennan heim né annan. Hann var að vandræðast yfir því að hverju hann ætti að spyrja næst,“ sagði hann. „Ég er kominn með leið á meðalmennsku og ef þetta átti að vera fyndið þá náði þetta ekki einu sinni að vera það lélegt að það yrði fyndið, þótt svo lélegt væri,“ bætti hann við. „Ég hef engan tíma í að þjálfa þáttagerð- armenn í að verða almennilegir spyrlar og því gekk ég út,“ sagði hann. Barði sagðist vera ánægður með tónlistina sem hann og Mínus hefðu samið og samstarfið hefði gengið mjög vel. „Hún á eftir að skila sér í mjög hressum geisla- diski,“ sagði hann. Barði hafði enn fremur séð myndina og fundist hún mjög góð. Þess má svo til gamans geta að myndin Strákarnir okkar verður frum- sýnd 1. september. freyrgigja@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.