Fréttablaðið - 25.09.2005, Síða 53
SUNNUDAGUR 25. september 2005 21
199kr.
999kr.
Öll börn sem koma
á markaðinn fá
gefins Andrésblað
og blöðru!
OPIÐ
alla dag
a
kl. 11-1
9
Allir sem versla
á markaðnum
fá vandaða bók í kaupbæti.
Barnabækur
Handbækur
Kiljur
Ritsöfn
Ættfræðibækur
Ævisögur
Skáldverk
Við rým
um fyri
r jólabó
kunum
Sparað
u
þúsund
ir
króna!
Unglingabækur
Ljóðabækur
Listaverkabækur
Fræðibækur
Stórvirki
Yfir 1.3
00 spen
nandi b
ókatitla
r
undir 1
.000 kr.
EINSTAKT VERÐ
OG GLÆSILEG
SÉRTILBOÐ!
Fellsmú
la 28
Komdu
og ger
ðu
frábær
kaup!
Þeir sem kaupa
fyrir meira en
10.000 kr. fá Söguatlas
að verðmæti 14.990 kr.
í kaupbæti.
3 frábærar ástæður fyrir
því að koma í Fellsmúlann:
LAGERSAL
A EDDU
Ekki missa af
ævintýralegum
tilboðum á
sívinsælum
bókum!
(gamla W
orld Cla
ss húsin
u)
BÓKAMARKAÐUR ÁRSINS!
kr.399
kr.599
kr.799
Rapparinn Kanye West segist ekkiþola það þegar hvítir tónlistar-
menn reyna að hljóma eins og þeir
séu svartir. Hann segir að listamenn
eigi að halda sig við það sem þeir
kunna best. West segist sjálfur hlusta
á alls kyns tónlist og er aðdáandi
skosku rokkhljómsveitarinnar Franz
Ferdinand. „Ég þoli ekki þegar hvítt
fólk reynir að hljóma eins og það sé
svart,“ segir hann. „Hvíta tónlistin
sem ég hlusta á er mjög hvít. Ég fíla
Franz Ferdinand.
Hún er frábær.“
Breska stúlknahljómsveitin Suga-babes varð að hætta við tvo tón-
leika í Dyflinni á síðasta ári vegna
barnalegra rifrilda, nokkrum mínút-
um áður en stúlkurnar áttu að fara
á svið. Söngkonurnar þrjár byrjuðu
að rífast um lagið Toxic sem Britney
Spears syngur. „Ég og Mutya vorum
að rífast um Britney Spears lag, en
ég nenni ekki að tala um það því
það er svo asnalegt. Ég hef aldrei
áður rifist við Mutya og þetta er mitt
eina rifrildi,“ segir Heidi Range.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hæ, hæ Fröken Freyja. Ég er sextán
ára gömul stelpa úr Reykjavík og er
nýbyrjuð með strák. Þetta er fyrsti
kærastinn minn og ég er einhvern
veginn hálf stressuð yfir þessu öllu
saman. Ég veit að ég þarf ekkert
að vera að hafa áhyggjur af neinu
en málið er, að hann er alltaf að
biðja mig um að kyssa sig og eitt-
hvað. Ég er alls ekki tilbúin strax.
Ég er ennþá svo feimin, við erum
nýbyrjuð saman og það er eins og
þetta sé það eina sem hann hugsar
um. Ég vil fá að kynnast honum
fyrst. Mér líður eins og ef ég geri
ekki það sem hann er að biðja mig
um strax að hann eigi bara eftir að
hætta með mér.
V.L.G. Reykjavík
Elskan mín góða. Ef hann hættir
með þér þá bara nær það ekkert
lengra. Það þýðir ekkert að vera að
leyfa honum að komast upp með
það að þrýsta á þig í eitthvað
kossaflens þegar þú ert ekki til í
slaginn. Það er nú bara til að drepa
hjá þér alla löngun. Ekki satt?
Komdu kauða í skilning um það að
kossarnir verði miklu betri þegar þið
hafið kynnst örlítið betur og þegar
þú ert tilbúin. Nú, ef hann getur ekki
skilið það þá geturðu bara gleymt
honum. Grenjað í viku og málið er
dautt. Þú þarft ekki einhvern gæja
sem setur á þig óþarfa pressu. Það
er nógur tími til þess í framtíðinni.
Lærðu að stjórna ferðinni strax.
Betra fyrr en síðar.
Kæra Freyja. Ég þoli ekki fyrrver-
andi konu mannsins míns. Hann á
með henni eitt barn og hún virðist
endalaust þurfa að vera hringjandi
í hann út af hinu og þessu. Hún
notar barnið sem afsökun fyrir því
hve hún hringir oft, en ég hef stað-
ið hana að því að hringja í hann
bara til að heyra í honum hljóðið.
Þau skildu fyrir rúmum þremur
árum og ég er farin að halda að
hún sé ekki enn komin yfir hann.
Kannski er ég ofurviðkvæm þessa
dagana þar sem ég er ólétt, en af
hverju þurfa þeirra samskipti að
snúast um eitthvað annað en þarfir
barnsins? Er ég óþarflega afbrýði-
söm?
H.W. Þorlákshöfn
Ræddu þetta við manninn þinn. Þú
hefur allan rétt á því að vita hverjar
ástæðurnar eru fyrir því að þau
þurfa endalaust að vera að tala
saman í síma. Það getur vel verið að
sú fyrrverandi sé ekki enn komin yfir
hann en oft eru karlmenn svo fjandi
grænir að þeir sjá ekki í gegnum
það. Sýndu honum fram á það að
þú þolir engan gufugang. Reyndu
samt að fá staðreyndirnar á hreint
áður en þú byrjar að æsa þig. Það
þarf að komast til botns í þessu máli
og það strax.
Kærastan mín á stórafmæli um
mánaðamótin og ég er ekki enn
búinn að ákveða hvað ég get gefið
henni í afmælisgjöf. Ég er orðinn
hálfþreyttur á því að reyna að
finna handa henni eitthvað ilmvatn
eða undirföt. Mér hefur ekki enn
tekist að kaupa það rétta og hún
endar alltaf hálf fúl. Hvað gæti ég
gefið henni?
B.L.B. Reykjavík
Ilmatn og undirföt, gleymdu því fé-
lagi. Það eru hlutir sem
hún ætti að geta
hugsað um upp á
eigin spýtur. Föt eru
alltaf vinsæl en
hafðu þau einföld,
ekkert glyðrulegt.
Einhver sætur
bolur ætti að
vekja lukku hjá dömunni en ekki
einu sinni reyna að kaupa á hana
gallabuxur. Þú gætir líka reynt að
finna handa henni skartgripi. Fallegt
hálsmen eða armband er eitthvað
sem allar stúlkur vilja. Mundu bara
að kaupa alls ekki úr. Það er nefni-
lega sagt að ef þú kaupir úr handa
ástvini þínum að tíminn í samband-
inu muni senn renna út. Ég veit
reyndar ekki hve mikið er til í þessu
en það er betra að hafa varann á.
Gangi þér vel.
FRÖKEN FREYJA LEYSIR VANDANN >