Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 BJARTVIÐRI SUNNAN TIL en skýjað með köflum á Vesturlandi. Rigning eða slydda norðan til. Hiti 0-6 stig hlýjast með suðurströndinni. VEÐUR 4 MIÐVIKUDAGUR 28. september 2005 - 261. tölublað – 5. árgangur Ari smíðar langferðabíl Ari Arnórsson er að leggja lokahönd á smíði langferðabíls sem ætlunin er að fjöldaframleiða á kom- andi árum. TILVERAN 14 Velgengni Evrópu Evrópubúar njóta mestrar velmegunar, velferðar og öryggis í heiminum. Þetta endurspeglast samt ekki í fréttum frá álfunni, segir Jón Ormur Halldórsson. Skýring- in felst í umræðuhefð og lögmálum fjölmiðl- unar, segir hann. Í DAG 18 Margfalda›i lestrarhra›ann NJÁLL VIKAR SMÁRASON: Í MIÐJU BLAÐSINS • nám • ferðir ▲ N‡jasta bók hans ber nafni› Vetrarborgin ARNALDUR INDRIÐASON FÓLK 34 ▲ > Markaðurinn Sögurnar... tölurnar...fólki›... FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun frá 01.08.2005–31.08.2005 á ársgrundvelli. Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is 410 4000 | landsbanki.is 8,1%* Peningabréf Landsbankans ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 91 39 0 8/ 20 05 Ríkidæmi í Bandaríkjunum Bill Gates enn þá ríkastur Erlendir aðilar Skuldabréfaútgáfa heldur áfram Leitarvélin Google Sýnir þætti Chris Rock Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 28. september 2005 – 26. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Skuldabréfaútgáfa | Í gær til- kynnti þýska ríkið um stækkun á skuldabréfaflokki sínum um 3 milljarða króna. Sérfræðingar bú- ast við að útgáfan haldi áfram. Hitaveita í Kína | Forsvarsmenn félagsins Enex-Kína, sem er í eigu Enex, Íslandsbanka og Orkuveitu Reykjavíkur, hafa undirritað rammasamning um byggingu jarðvarmahitaveitu í borginni Xi- anyang í Kína. Útrás | Vátryggingafélag Íslands hefur fest kaup á 9,98 prósenta hlut í norska tryggingafélaginu Protector Forsikring. VÍS útilokar ekki að auka hlut sinn í félaginu, Latibær og BBC | Latibær mun ná til 57 milljón sjónvarpsáhorf- enda BBC á Bretlandi eftir samning sem undirritaður var á mánudag. Átök í Skandia | Meirihluti stjórnar sænska fjármálafyrirtæk- isins Skandia hafnaði yfirtökutil- boði suður-afríska tryggingafélags- ins Old Mutual. Burðarás sem er meðal stærstu hluthafa í Skandia ætlar að selja sína hlutabréf. Stórir í Hampiðjunni | Tveir líf- eyrissjóðir og VÍS hafa selt hluta- bréf sín í Hampiðjunni til fjárfest- ingarfélagsins Atorku Group og fengið hlutabréf í Atorku í stað- inn. Marel hækkar | Eyrir fjárfest- ingarfélag keypti tólf prósent hlutafjár í hátæknifyrirtækinu Marel fyrir tæpar 2.200 milljónir króna. Yfirtökutilboð í Símanum | Litlu hluthafarnir í Símanum geta selt hlut sinn til Skiptis ehf. Allir þeir 1.252 aðilar sem skráðir voru hluthafar samkvæmt hlutaskrá félagsins við lok 30. ágúst síðast- liðinn fá sent tilboðsyfirlit. Einn hópur keppir um Somerfield Aðeins einn hópur stendur eftir í baráttunni um verslanakeðjuna Somerfield eftir að United Co- operatives heltist úr lestinni á dögunum. Hópurinn sem enn er eftir er meðal annars skipaður fjárfestinum Robert Tchenguiez, Apax Partners og Barclays-bank- anum en Baugur var upphaflega meðal þátttakenda í þeim hópi. Búist er við því að hópurinn muni skila inn tilboði í keðjuna á næstu tíu dögum en yfirtöku- nefnd í Bretlandi hefur sett hópnum frest þar til um miðjan næsta mánuð að skila inn tilboði í fyrirtækið. Somerfield er fimmta stærsta matvörukeðja í Bretlandi og hefur um 950 versl- anir auk þess að reka bílasölur, ferðaskrifstofur og lyfjaverslan- ir. - hb Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Kaupás, sem rekur matvöruverslunarkeðjurnar Krónuna, Nóatún og 11-11, hefur fært töluverðan hluta af innkaupum sínum út úr Búri ehf. sem er sameiginlegt innkaupa- og dreifingarfyrirtæki Kaupáss, Samkaupa og Olíufélagsins og er í eigu sömu aðila. Ekki er ólíklegt að frekari breytingar verði á samstarfi Kaupáss og Búrs á næstu misser- um. „Við áttuðum okkur fljótlega á því, eftir að Nor- vik keypti Kaupás, að ef við ætluðum að eiga mögu- leika á því að bjóða hagstæðari verð til neytenda þá þyrftum við að hafa meira forræði yfir okkar mál- um heldur en við vorum að fá,“ segir Sigurður Arn- ar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss. „Kaupás er að gera ákveðnar breytingar á sínum innkaupum sem felast í því að þeir taka að sér inn- kaup á innlendri þurrvöru, það er að segja vörur sem eru keyptar eingöngu af heildsölum,“ segir Sigurður Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búrs. Framkvæmdastjóri Búrs segir að eftir sem áður verði samstarf í innflutningi á þurrvöru og inn- kaupum á ávöxtum og grænmeti en viðurkennir að allmikil breyting verði á starfseminni hjá Búri og velta dragist saman. Stjórnendur félagsins búast við að velta félagsins verði einum milljarði minni á þessu ári en því síðasta. Í fyrra velti Búr um sex milljörðum króna. „Búr er ekki hagnaðareining og er rekið á kostnaðargrunni. Gjaldtaka okkar af okk- ar viðskiptavinum er eingöngu til að mæta beinum kostnaði. Fyrirtækið er þó rekið réttu megin við núllið,“ segir hann. „Við erum að stíga út úr þessu samstarfi, stofn- um okkar eigið vöruhús og semjum við birgja á okkar eigin forsendum um þessar vörur. Þetta er hluti af þeim aðgerðum sem farið var í á þessu ári, að staðsetja Krónuna jafnfætis Bónus í verði. Þá var talið nauðsynlegt að gera skipulagsbreytingar hvað varðar innkaup og það er þess vegna sem við erum í þessum aðgerðum,“ segir forstjóri Kaupáss. F R É T T I R V I K U N N A R 6 12–13 8 Björgvin Guðmundsson skrifar „Við stefnum á að reisa eigin virkj- anir í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Ungverjalandi með það að markmiði að reka þær og selja raf- orku í þessum löndum,“ segir Gunnar Tryggvason, fjármála- stjóri Enex hf. „Við höfum byrjað á jarðfræðirannsóknum eftir að hafa fengið úthlutað rannsóknar- leyfi frá þarlendum stjórnvöldum. Þegar við erum búin að ákveða hvar við viljum reisa virkjun verð- um við að ganga til samninga við viðkomandi landeigenda.“ Enex hefur sérhæft sig í jarð- hitaráðgjöf og nýtingu jarðvarma til framleiðslu á raforku og heitu vatni. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og stjórnarmaður í Enex, segir fyrirtækið meðal annars hafa tek- ið að sér byggingu orkuvers í El Salvador fyrir einn milljarð króna. Stefnan sé að ljúka því í desember á næsta ári. Enex er í eigu stærstu orku- fyrirtækja hér á landi, Jarðborana, fjölda verkfræðistofa, Nýsköpun- arsjóðs og Íslandsbanka. Gunnar segir hluthafana vera 42, eignar- haldið mjög dreift og eigendahóp- inn breiðan. Runólfur Maack á VGK er stjórnarformaður. Fjármálastjórinn segir að stærstu aðilarnir hafi komið inn í Enex árið 2001 með meira fjár- magn. Í kjölfarið hafi fyrirtækið farið að fjárfesta meira sjálft í verkefnum og taka að sér verk- töku. Gunnar segir starfsemina byggja á því að flytja út þekkingu á jarðhitavirkjunum. Nú sé verið að vinna í þremur útboðum sem séu sambærileg verkinu í El Salvador. Öflug fyrirtæki frá Ísra- el, Ítalíu og Þýskalandi keppa um þessi verk. Útrásarvísitalan lækkar: deCode hrapar Líftæknifyrirtækið deCode lækkar mest allra fyrirtækja í út- rásarvísitölu Markaðarins í síð- ustu viku. Gengi deCode var á mánudag 8,65 en hafði þá lækkað um 7,8 prósent frá síðustu viku. Mest hækkuðu bréf í Low&Bonar eða um 3,8 prósent og var gengi bréfa í félaginu 1,095 við lokun markaða á mánudaginn. Næst- mest hækkuðu bréf í Keops eða um 2,4% og þar á eftir kom Intr- um Justitia eða um 2,2 prósent. Sampo lækkaði um 1,2 prósent á milli vikna en vægi félagsins er langmest í útrásarvísitölunni eða rétt um 39 prósent. Útrásarvísitalan mældist 115,88 stig og lækkaði um 0,25 prósent frá vikunni á undan. - hb Kaupás frá Búri Ársvelta Búrs minnkar um milljarð frá síðasta ári. Aðgerðin tengist verðstríði á matvörumarkaði. Vilja virkja í útlöndum Íslenska fyrirtækið Enex undirbýr að byggja og reka virkjanir í Bandaríkj- unum, Þýskalandi og Ungverjalandi til að selja þarlendum aðilum raforku. KAUPÁS Á LEIÐ FRÁ BÚRI Allmiklar breytingar verða á högum innkaupafyrirtækisins Búrs þegar Kaupás tekur að sér innkaup á innlendri þurrvöru sem er keypt af heildsölum. Aðgerðin tengist meðal annars verðstríði á matvörumarkaði, á milli Krónunnar og Bónuss. Skrifar hnakkaleiðbeiningar Egill „Gilzenegger“ skrifar bráðfyndna leiðbeiningabók um hvernig hægt sé að breytast í hnakka á skömmum tíma. FÓLK 28 Ronaldinho með þrennu Snillingurinn brasilíski Ronaldinho skoraði þrennu fyrir Barcelona í gær er átta leikir fóru fram í meistaradeildinni. ÍÞRÓTTIR 23 FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR Davíð Oddson sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund: Ánæg›ur og flakklátur BLESS Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist þakklátur fyrir að hafa fengið með afgerandi hætti að fá að hafa áhrif á þróun lands- og þjóðmála en hann hætti sem utanríkisráðherra í gær og lauk þar með opinberum afskiptum hans af stjórnmálum. RÍKISSTJÓRN Davíð Oddsson utan- ríkisráðherra sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund í gær, en hann tekur við stöðu seðlabankastjóra 20. október næstkomandi. Ráð- herraskiptin urðu á ríkisráðsfundi síðdegis í gær. „Ég er kátur, ánægður og þakk- látur fyrir að hafa fengið með af- gerandi hætti að fá að hafa áhrif á þróun lands- og þjóðmála,“ sagði Davíð að loknum ríkisráðsfundi. „Þetta er fjölbreyttur ferill, ekki bara að þjóðmálum heldur líka borgarmálum. Ég hef haft fleiri ráðherra í samstarfi með mér en flestir aðrir hygg ég og á vináttu þeirra. Það er mikið ánægjuefni og ein skýring þess að margt hefur gengið vel þótt menn hafi misjafn- ar skoðanir á því hvort ég hef komið góðu til leiðar,“ sagði Davíð. Á ríkisráðsfundinum í gær tók Geir H. Haarde við embætti utan- ríkisráðherra af Davíð Oddssyni og Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra tók við embætti fjár- málaráðherra af Geir. Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, tók við embætti sjávarútvegsráðherra af Árna og er hann nýr í ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar. „Þetta er málaflokkur sem ég hef mikinn áhuga á og hef starfað að honum utan þings og innan um langt skeið,“ sagði Einar að loknum ríkisráðsfundinum. - jh FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M G U N N AR SS O N CINDY SHEEHAN Sheehan reyndi árangurs- laust að fá áheyrn hjá forsetanum á mánu- daginn en var handtekin. Mótmæli í Washington: Cindy Sheehan tekin föst WASHINGTON, AP Cindy Sheehan, móðir bandarísks hermanns sem féll í átökum í Írak á síðasta ári, var handtekin í fyrradag fyrir utan Hvíta húsið í Washington þar sem hún stóð fyrir mótmælum. Sheehan vakti heimsathygli fyrr í sumar þegar hún tjaldaði fyrir utan búgarð George W. Bush Bandaríkjaforseta til að mótmæla stríðinu í Írak. Á mánudaginn andæfði hún stríðinu ásamt nokk- ur hundruð mótmælendum í höf- uðborginni. Lögregla sagði hana og tvo aðra mótmælendur hafa hunsað fyrirmæli sín og því voru þau tekin föst. ■ DÓMSMÁL Af 217 kynferðisbrota- málum sem komu til ríkissaksókn- ara á árunum 2000 til 2004 voru 150 mál felld niður og aðeins ákært í þriðjungi málanna eða 67. Öðru máli gegnir um líkamsárásir en ákært var í 93 prósentum slíkra mála á sama tímabili. Sífellt fleiri lögmenn telja nauðsynlegt að breyta lögum um kynferðisbrot, svo auðveldara sé að ákæra kyn- ferðisafbrotamenn. „Sú mikla áhersla sem lögð er á líkamlegt ofbeldi við nauðgun í hegningarlögum birtir að ein- hverju leyti þann misskilning að þungamiðja nauðgunar sé hið lík- amlega ofbeldi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræð- ingur sem rannsakað hefur nauðg- un frá sjónarhóli kvenna. „Hegningarlögin, sönnunar- matið og rannsóknaraðferðir lög- reglu eru allt verk karlmanna og mjög lýsandi fyrir karllæga af- stöðu. Reynsluheimur kvenna kemur þar hvergi að og ekki held- ur reynsla þolenda,“ segir Atli Gíslason, verjandi konu sem ný- verið vann einkamál gegn þremur mönnum sem nauðguðu henni í heimahúsi sumarið 2002. Konan fór í einkamál við mennina eftir að ríkissaksóknari ákvað að fella málið niður vegna skorts á sönn- unargögnum. „Mun eðlilegra væri, og nær nútímaskilningi á nauðgun, að líta til kynfrelsis þolanda, hvort samþykki þolandans hafi verið fyrir hendi.“ Saksóknari ákærir ef hann telur líklegt að ákæran leiði til sakfell- ingar, annars á hann að láta málið niður falla. Að sögn Ragnheiðar Harðardóttur vararíkissaksóknara hefur ríkissaksóknari seinustu ár vísvitandi látið reyna á mörkin hvað varðar sönnunarmatið í nauðgunarmálum, og hefur það leitt til fleiri sýknudóma. Þegar kemur að vægari líkamsárásar- málum eru tölurnar yfir niðurfelld mál svipaðar og í kynferðisbrotum gegn börnum; um helmingur er niðurfelldur og ákært er í hinum helmingnum. - smk Saksóknari fellir ni›ur flest nau›gunarmál Mikill munur er á fjölda ni›urfellinga í kynfer›isbrotamálum annars vegar og líkamsárásum hins vegar. Saksóknari ákærir í ríflega 90 prósentum líkams- árásamála en a›eins 29,9 prósentum kynfer›isbrotamála. NÝ RÍKISSTJÓRN Einar K. Guðfinnsson er nýr í ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar. Fjárlaganefnd Alþingis: Samfylking missir mann STJÓRNMÁL „Þannig var að þegar Gunnar Örlygsson flutti sig til Sjálfstæðisflokksins þá stóðu fjórði maður Samfylkingar og fimmti maður Sjálfstæðisflokks jafnir á hlutföllum innan fjárlaga- nefndar. Það kom til hlutkestis sem ég tapaði,“ segir Margrét Frí- mannsdóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar. Hlutkestið var á meðal síðustu embættisverka Einars K. Guð- finnssonar sem formanns þing- flokks sjálfstæðismanna. „Hann átti alveg skilið að vinna í þetta skiptið,“ segir Margrét. - saj Hreinn Loftsson: Jón Gerald braut trúna› BAUGSMÁL Hreinn Loftsson, stjórn- arformaður Baugs, segir nær öll atriði í fullyrðingum ritstjóra Morgunblaðsins í gær röng. Jón Gerald hafi stofnað til málaferla í Bandaríkjunum. Baugur og Gaumur hafi hins vegar stefnt honum á móti. Þá segir Hreinn að enginn einkaspæjari hafi verið ráðinn á vegum Baugs til að fylgjast með Jóni Gerald, hins vegar hafi sérfræðingar í upplýsingaöflun starfað fyrir lögfræðistofu þeirra ytra sem áttu að afla gagna fyrir dómsmálið í Bandaríkjunum. Hreinn viðurkennir að Baugur hafi greitt Jóni Gerald í stað þess að reka málið fyrir dómstólum, en vill ekki skýra hvernig komist var að niðurstöðu um ákveðna upphæð. Hann ber við trúnaði, sem augljóst sé að Jón Gerald hafi rofið með upplýsingagjöf til Morgunblaðsins. - sda/ sjá síðu 4 HLUTFALL ÁKÆRA MISJAFNT EFTIR BROTAFLOKKUM Hlutfall ákæra í kynferðis- brota- og líkamsárásamálum sem komu til ríkissaksóknara á árunum 2000 til 2004. VEÐRIÐ Í DAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.