Fréttablaðið - 28.09.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,56 62,86
110,54 111,08
75,16 75,58
10,072 10,13
9,616 9,672
8,01 8,056
0,5525 0,5557
90,56 91,1
GENGI GJALDMIÐLA 27.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
105,7706
4 28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR
„Ertu viss?“ spurði forstjóri Baugs í tölvupósti árið 2002:
Dægurtexti í meintu hótunarbréfi
BAUGSMÁL Tryggvi Jónsson, þá for-
stjóri Baugs, vitnar í vinsælan
dægurlagatexta Spilverks þjóð-
anna í meintu hótunarbréfi til
Jóns Geralds Sullenbergers sem
vísað er til í frétt Morgunblaðsins
í gær. Bréfið var sent í tölvupósti
25. júlí 2002 og lagði Jón Gerald
það fram í málaferlum við fyrir-
tækið í Bandaríkjunum árið 2003.
Yfirskrift bréfsins er „Ertu viss?“
Bréfið hljóðar svo: „Sæll Jón.
Mér þykir afar leiðinlegt að við
getum ekki rætt saman eins og
maður við mann. Við vorum komir
á góðan rekspöl með að klára okk-
ar mál þegar málið tók óvænta
stefnu, vegna óuppgerðrar skuldar
við Jón Ásgeir að því mér skilst.
Ertu viss um að það sé rétt
ákvörðun hjá þér að láta persónu-
legt hatur stýra þínu lífi? Ertu viss
um að þú sért að gera sonum þínum
rétt? Jón, ef þú vilt skal ég gera það
sem ég get til að létta þér róðurinn.
En þú verður að vilja það.
Spilverk þjóðanna söng einu
sinni: Guð hjálpar þeim sem hjálpa
sér sjálfir / heilagt stendur skrifað
á blað / Guð hjálpar þeim sem
hjálpa sér sjálfir / ein lítil býfluga
afsannar það / Guð hjálpar þeim
sem hjálpast að
Og hvort sem þú trúir því eða
ekki, þá skrifa ég undir þennan póst
sem: þinn vinur Tryggvi.“ - óká
Baugur borga›i Jóni Gerald
Stjórnarforma›ur Baugs segir a› fullyr›ing um a› rá›nir hafi veri› einkaspæjarar til a› fylgjast me› Jóni
Gerald sé óhró›ur. A›alatri›i málsins sé a› áhrifamenn innan Sjálfstæ›isflokksins hafi lagt á rá›in um
hvernig hrinda mætti lögreglurannsókn af sta›.
BAUGSMÁL Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri Morgunblaðsins, hélt
því fram í grein í Morgunblað-
inu í gær að Baugur hefði greitt
Jóni Gerald Sullenberger 120
milljónir til þess að losna út úr
málaferlum sem þeir sjálfir
hefðu efnt til gegn Jóni Gerald.
Auk þess hafi þeir haft fjórar
lögfræðistofur í vinnu fyrir sig
til að vinna á Jóni Gerald, eina á
Íslandi og þrjár í Bandaríkjun-
um.
Hreinn Loftsson, stjórnarfor-
maður Baugs, segir nánast öll
atriði þessarar fullyrðingar
Styrmis röng. Jón Gerald hafi
stofnað til málaferlanna í
Bandaríkjunum. Jón Gerald hafi
stefnt Baugi, sem stefndi honum
á móti.
Málið varðaði tvö fyrirtæki,
Baug og Gaum, sem voru hvort
með sína lögfræðistofuna á Ís-
landi en notuðust við sömu lög-
fræðistofuna í New York. Sú
stofa hafi hins vegar óskað eftir
aðstoð lögfræðistofu í Flórída,
eins og tíðkist í Bandaríkjunum.
„Sjálfur var Jón Gerald með
tvær stofur í vinnu fyrir sig,“
segir Hreinn.
Hvað varðar fullyrðingar
Styrmis um að Baugur hafi ráð-
ið einkaspæjara sem hafi lagt
Jón Gerald og fjölskyldu hans í
einelti segir Hreinn: „Þessi frá-
sögn Styrmis er óhróður. Í
Bandaríkjunum gilda aðrar rétt-
arfarsreglur en hér á landi. Þar
starfa sérfræðingar í upplýs-
ingaöflun á grundvelli starfs-
leyfis en það eru þeir sem kall-
aðir eru „einkaspæjarar“ í
Mogganum. Tilgangur þessara
sérfræðinga var að afla gagna
fyrir dómsmálið sem reka átti
úti í Bandaríkjunum. Ég get
ekki séð annað en að ummæli
Styrmis séu gagnrýni á banda-
rískt réttarfar frekar en gagn-
rýni á Baug,“ segir Hreinn.
Spurður hvers vegna hafi
verið ákveðið að reiða fram 120
milljónir fremur en að reka mál-
ið fyrir dómstólum segir
Hreinn: „Á hverjum tíma þarf
fyrirtæki í svona aðstöðu að
meta hvort borgi sig að standa í
slíkum málaferlum. Þetta er vel
þekkt.“
Þegar Hreinn er beðinn um
að skýra hvernig komist var að
niðurstöðu um þessa tilteknu
upphæð segir hann að viðræður
hafi farið fram með milligöngu
lögmanna sem leiddu til þess að
samið var um uppgjör í þeirri
viðskiptadeilu sem var grund-
völlur málarekstursins. „Við
erum bundnir trúnaði um efni
þessa samkomulags en það er
augljóst að Jón Gerald hefur
rofið sinn þátt þess með upplýs-
ingagjöf til Morgunblaðsins,“
segir Hreinn. Hann vill þrátt
fyrir það ekki sjálfur brjóta
þann trúnað.
„Aðalatriði málsins er hins
vegar ekki hvernig þessum
málaferlum lauk og hvaða fjár-
hæðir samið var um, heldur sú
staðreynd að Fréttablaðið hefur
með einhverjum hætti komist
yfir upplýsingar sem benda til
þess að áhrifamenn tengdir
Sjálfstæðisflokknum og ritstjóri
Morgunblaðsins hafa lagt á ráð-
in um það með hvaða hætti lög-
reglurannsókn yrði hrundið af
stað,“ segir Hreinn.
sda@frettabladid.is
TRYGGVI JÓNSSON Í meintu hótunarbréfi sem sent var í tölvupósti árið 2002 frá Tryggva
Jónssyni, þáverandi forstjóra Baugs, til Jóns Geralds Sullenberger og rætt hefur verið um í
fréttum, endar hann bréf sitt á því að segjast vinur Jóns Geralds.
HREINN LOFTSSON, STJÓRNARFORMAÐUR BAUGS Segir að „einkaspæjararnir“ sem Styrm-
ir nefnir séu starfsleyfisskyldir sérfræðingar í upplýsingaöflun sem starfi fyrir lögfræðistofur
vegna undirbúnings dómsmála.
STYRMIR GUNNARSSON, RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS Segir í grein í Morgunblaðinu að
Baugur hafi ráðið einkaspæjara til að njósna um Jón Gerald Sullenberger og fjölskyldu hans.
Jónína Benediktsdóttir:
Kærir vegna
tölvupósts
LÖGREGLA Jónína Benediktsdóttir
hefur lagt fram kæru hjá lögreglu
vegna þess að efni úr einkatölvu-
pósti hennar hafi birst á síðum
Fréttablaðsins.
Egill Stephensen, saksóknari
hjá Lögreglustjóranum í Reykja-
vík, segir sérstaka rannsókn ekki
hafna sem snúi að Fréttablaðinu,
en staðfestir að erindi hafi borist
lögreglu frá Jónínu. „Erindið
varðar meðferðina á þessum pósti
og er til skoðunar hjá embættinu,
en við lítum á það sem kæru og
meðhöndlum sem slíkt,“ segir
hann. - óká
ARON PÁLMI ÁGÚSTSSON Aron Pálmi gistir
nú hjá vinafólki í borginni Tyler í Texas, en
borgin, sem er á stærð við Reykjavík, er
sögð bera vinalegan smábæjarbrag.
Á flótta í Ameríku:
Gistir hjá
vinafólki
BANDARÍKIN Aron Pálmi Ágústsson
dvelur nú hjá fjölskylduvini í
borginni Tyler í Texas, en hann
þurfti að dvelja eina nótt í fang-
elsi eftir að lögregla meinaði hon-
um að dvelja í flóttamannabúðum
Rauða krossins. Hann er í hópi
milljóna sem flúðu innar í land
undan fellibylnum Ritu.
Aron Pálmi hefur um árabil
verið í stofufangelsi í Texas, en
hann hlaut dóm ytra fyrir kyn-
ferðisbrot þegar hann var ellefu
ára. Unnið er að því að fá leyfi til
að Aron fái að flytjast heim til Ís-
lands, en þær ráðagerðir kunna að
dragast nokkuð vegna umstangs í
kringum fellibylinn. - óká
www.leikhusid.is
Kortasölunni lýkur á föstudag.
Tryggðu þér sæti!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA