Fréttablaðið - 28.09.2005, Page 8

Fréttablaðið - 28.09.2005, Page 8
1Hvaða nýi ráðherra tók sæti í ríkis-stjórn Íslands í gær? 2Hver skrifar nú fótboltasögur GuðnaBergssonar? 3Hver er þjálfari knattspyrnuliðs ÍBV? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR Kornuppskera eyfirskra bænda liggur undir skemmdum vegna snjókomu: firi›jungur uppskerunnar gæti ey›ilagst KORNRÆKT Ríflega þriðjungur af kornuppskeru bænda á Eyjafjarð- arsvæðinu liggur undir skemmdum vegna snjókomu norðanlands um síðustu helgi. Samanlagt tjón ey- firskra kornbænda vegna þessa gæti orðið um 20 milljónir króna en bændur eiga enn eftir að skera um 180 hektara af þeim 500 hekturum sem þeir sáðu í. Ingvar Björnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, segir að sökum ótíðar í vor hafi kornakrar sprottið seint í sumar og því hafi skurður ekki hafist fyrr en um síðustu mánaðamót. „Ef veður skánar á næstu dögum er hugsan- legt að bjarga megi hluta þess korns sem eftir á að skera á Eyjafjarðar- svæðinu en þó líklega aldrei meira en helmingnum. Ef ekki rætist úr tíðinni mun allt óskorið korn eyði- leggjast,“ segir Ingvar. Almennt eru bændur á Eyja- fjarðarsvæðinu ekki tryggðir fyrir skemmdum á uppskeru og í ofanálag var kornspretta eyfirskra bænda minni í ár en undanfarin tvö ár. „Minni sprettu má annars vegar rekja til þurrka og kulda í maí og hins vegar til mikillar úrkomu og sólarleysis í águst,“ segir Ingvar. Leita þarf aftur til ársins 1979 til að finna viðlíka ótíð norðanlands og í haust en þá var einnig mikil úr- koma í ágúst og langvarandi kuldi með snjókomu í september. Kornrækt hefur vaxið jafnt og þétt á Íslandi frá árinu 1990 og í vor var sáð í um 3.000 hektara á landinu öllu. Nánast allt það korn sem ís- lenskir bændur rækta fer til fóður- gerðar nema hvað einn framleið- andi hefur ræktað lífrænt korn til manneldis. - kk DÓMSMÁL Átján ára piltur var ný- lega dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa verið í hlut- verki bílstjóra í innbrotaleiðangri þriggja annarra í Reykjavík í mars á þessu ári. Þá var hann dæmdur fyrir lítilræði af hassi sem fannst í bíl hans nokkrum dögum síðar. Með honum var dæmdur félagi hans sem varð átján ára í lok mánaðarins, en sá var með í innbrotaferðinni og í að stela bensíni fyrir 1.553 krónur á bensínstöð, auk þess að stela sjálf- ur ýmsu smálegu í búningsað- stöðu sjúkraþjálfunar í Reykja- vík. Dómur þess fyrri var skilorðs- bundinn í þrjú ár, en hann fékk árið 2003 skilorðsbundinn dóm í tvö ár fyrir þjófnað. Hinum, sem er nokkrum mánuðum yngri, var ekki gerð sérstök refsing nú, þar sem hann var í sumar dæmdur í 10 mánaða fangelsi, skilorðsbund- ið í þrjú ár fyrir þjófnaði og fíkni- efnabrot. „Brot ákærða eru öll framin fyrir uppkvaðningu síðast- greinds dóms,“ segir í dómnum og talið að brotin sem nú var fjallað um hefðu ekki leitt til þyngingar á þeim dómi. - óká Slagnum slegi› á frest Enda flótt Ariel Sharon hafi unni› áfangasigur í atkvæ›agrei›slu í mi›stjórn Likud-bandalagsins í fyrrakvöld fl‡›ir ni›ursta›an a› óvissan um forystuna í næstu flingkosningum heldur áfram. ÍSRAEL Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, vann áfangasigur í baráttunni um leiðtogaembætti Likud-bandalagsins í fyrrakvöld þegar tillaga um að flýta forkosn- ingunum um embættið var felld. Benjamin Netanyahu, keppinautur Sharons, kallaði hann einræðis- herra að kosningunum loknum. Hitnað hefur undir Ariel Sharon undanfarin misseri, ekki síst eftir að hann lét rýma landnemabyggðir á Gaza-svæðinu. Í fyrrakvöld fór fram atkvæðagreiðsla í miðstjórn flokksins um tillögu hvort flýta bæri forkosningum vegna leiðtoga- kjörs en Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra, skoraði Sharon á hólm fyrir nokkrum vikum. 91 prósent mið- stjórnarfulltrúa greiddi atkvæði og var tillagan felld naumlega með 1.433 atkvæðum gegn 1.329. Hefði kosningunum verið flýtt er talið ör- uggt að Netanyahu hefði gersigrað Sharon í þeim. Í staðinn fara kosn- ingarnar ekki fram fyrr en í apríl. Netanyahu var æfur að loknum kosningunum og kallaði Sharon „einræðisherra“. Hann gaf í skyn að Sharon hefði þrýst mjög á mið- stjórnarfulltrúa og lofað þeim vænum embættum að launum fyrir stuðninginn. Sharon hefur síðustu daga hitt stuðningsmenn sína úr ríkisstjórninni en hunsað þá sem snerust gegn honum og er búist við að uppstokkun sé í aðsigi. Dagblaðið Haaretz telur að þótt úrslitin hafi verið Sharon að skapi setji þau hann í vanda því staða hans í flokknum verður næstu mánuðina áfram óljós. Því fyrr sem formannskjörið fer fram þeim mun fyrr getur hann ákveðið hvort hann haldi áfram að starfa innan Likud-bandalagsins eða stofni klofningshreyfingu eins og margir hafa spáð. Netanyahu hnykkti einmitt á því að Sharon hefði enn ekki sagt af eða á um hvort hann héldi áfram í flokknum. Miðstjórnarmenn reyndu ár- angurslaust að komast í símasam- band við Sharon að atkvæða- greiðslu lokinni en bilun kom upp í símbúnaðinum, rétt eins og í hljóð- nema hans á sunnudaginn. Margir telja að Sharon hafi uppskorið sam- úð fyrir vikið og rannsakar nú lög- regla tildrög þess að hljóðneminn bilaði. sveinng@frettabladid.is Grunaður um eiturlyfjasölu: Efni og vog ger› upptæk DÓMSMÁL Við húsleit á heimili 22 ára gamals manns í Reykjavík í vor fann lögregla nokkurt magn fíkniefna sem að hluta til voru tal- in ætluð til sölu. Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vik- unni, en við leitina heima hjá hon- um fundust tæp 12 grömm af am- fetamíni, rúm 97 grömm af hassi, tæp 17 grömm af marijúana, 68 e- töflur og smáræði af tóbaksblönd- uðu hassi. Refsingar er krafist, auk upptöku á efnunum og nákvæmrar grammavogar. - óká HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Tveir átján ára piltar sem dæmdir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku þurfa að greiða saman málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 75.000 krónur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Tveir átján ára piltar dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur: Stó›u í innbrotum og smáfljófna›i ÚRSLITUNUM FAGNAÐ Stuðningsmenn forsætisráðherrans fögnuðu ákaft að kosningunum yrði ekki flýtt. Ákvörðunin þýðir að öldurnar hefur lægt vegna Gaza-málsins þegar loksins kemur að kosningunum en jafnframt heldur óvissan um forystu Likud-bandalagsins áfram. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P LEIÐRÉTTING Hjón sem festust á Öxarfjarðar- heiði nú um helgina voru á breyttum Musso-jeppa, en ekki litlum jeppa eins og fram kom í blaðinu í gær. Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, hefur að eigin ósk fengið heimild til tímabundins flutnings til starfa hjá Tollstjór- anum í Reykjavík frá 15. október. Hann mun snúa aftur til starfa sem sýslumaður á Seyðisfirði 1. maí 2006. DANMÖRK TASKA TALIN SPRENGJA Yfirgefin taska á brautarstöðinni í Klampenborg norðan Kaupmanna- hafnar var talin vera sprengja og stöðvuðust lestarferðir yfir Eyrarsund af þessum sökum í tvær klukkustundir. Taskan reyndist tilheyra þýskum ferða- manni sem hafði gleymt henni á stöðinni. Sydsvenskan greinir frá. KORNAKUR Í EYJAFIRÐI Snjókoman á Norðurlandi um síðustu helgi olli umtalsverðum skaða hjá eyfirskum bændum. SPÁNN SPRENGJA Í ZARAGOZA Sprengja sprakk nærri lestarstöð í Anon de Moncayo nærri borginni Zaragoza á norðaustanverðum Spáni í gær- morgun. Enginn slasaðist.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.