Fréttablaðið - 28.09.2005, Síða 10

Fréttablaðið - 28.09.2005, Síða 10
EFTIR STORMINN Rétt eins og systir henn- ar Katrín skildi fellibylurinn Rita eftir sig slóð eyðileggingar. Miklar skemmdir urðu á mannvirkjum í Texas, 38 eru taldir hafa týnt lífi og óttast er að þúsundir nautgripa hafi drukknað. 10 28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR NOREGUR Vera má að Noregur verði fyrsta aðildarríki Atlants- hafsbandalagsins sem dregur sig úr aðgerðum þess á meðan þær standa ennþá yfir. Vinstri flokkarnir í Noregi vinna nú hörðum höndum að því að semja nýjan stjórnarsáttmála og hefur þegar komið fram að Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamanna- flokksins, telur að Norðmenn eigi að kalla hermenn sína heim frá Írak. Í höfuðstöðvum NATO í Brussel velta menn því hins vegar fyrir sér hvort Norðmenn hyggist jafnframt hætta þátttöku í áætlun bandalagsins um að þjálfa íraskar öryggissveitir. „Verkamannaflokkurinn leggst gegn því að norskir hermenn verði sendir til Íraks eða þjálfunarbúða NATO. Hins vegar teljum við rétt að heimila íröskum öryggissveit- um að æfa sig í Jåttå við Stafang- ur,“ sagði Marit Nybakk, talsmað- ur flokksins í varnarmálum í sam- tali við Aftenposten. Spurð hvort Norðmenn myndu halda áfram að greiða fé til verkefnisins sagði Nybakk það alls óráðið. Málið ætti að skýrast á næstu dögum en fari svo að Norðmenn ákveði að hætta þátttöku í NATO- verkefni á meðan það stendur enn yfir er það í fyrsta sinn sem það gerist. - shg KRISTIN HALVORSEN Sósíalíski vinstriflokk- urinn leggst mjög gegn þátttöku Norð- manna í Atlantshafsbandalaginu en hann sest að líkindum í ríkisstjórn á næstunni með Miðflokknum og Verkamannaflokkn- um. Gestir á fæðingardeildum: Blátt bann vi› hjalinu BRETLAND Stjórnendur Calder- dale Royal-sjúkrahússins í Halifax í Englandi hafa sett bann við að fólk hjali við og stari á nýfædd börn annars fólks á fæðingardeild sjúkra- hússins. Bannið er hluti af nýjum starfsreglum þar sem kveðið er á um að starfsfólk komi fram við sjúklinga af fullri virðingu, þar á meðal nýfædd börn, sam- kvæmt fréttavef BBC. Samtök um velferð barna hafa hins vegar lagst gegn banninu og segja mæðurnar fullfærar um að ákveða hverjir fái að skoða börnin. ■ Lok viðskipta Nordica og Baugs Tölvupóstsamskipti Tryggva Jónssonar, þáverandi forstjóra Baugs, og Jóns Geralds Sullenberger á vormánuðum 2002, þegar viðskiptum Baugs og Jóns Geralds var að ljúka. Samskiptin varða fjár- hagslegt uppgjör Tryggva og Jóns Geralds vegna viðskipta Baugs og vöruhúss Jóns Geralds í Bandaríkjunum. Tölur í hornklofum eru upphæðir í bandarískum dollurum reiknaðar yfir í íslensk- ar krónur á núvirði. Sæll Tryggvi minn. Svona lítur þetta út hjá okkur og er þetta ekki gott mál. Þetta er sama skjal og ég lét ykkur fá í byrjun ársins en á því var $2 milljóna [126 milljónir kr.] áætlun og tapið um $90 þúsund [5,7 milljónir kr.]. Þar sem þetta allt er búið að dragast á langinn þá er þetta orðið mjög slæmt mál, ég hef tvo kosti og er ég búinn að senda ykk- ur þá. Framkvæmdastjórnin er búin að senda mér sína niðurstöðu og tel ég hana mjög vanhugsaða þar sem ekki var talað við mig, [nafni sleppt] né [nafni sleppt] og ef ég fer með rétt mál þá hefur enginn á þessum fundi flutt inn gáma frá Ameríku og þar af leiðandi ekki neinar tölur um þann kostn- að og vinnu sem til þarf til að framkvæma það sem gert er hér. Láttu mig heyra frá þér sem fyrst þar sem ég verð að geta útskýrt til bankans stöðu mála. Kveðja. 13. FEBRÚAR 2002 Tölvupóstur frá Jóni Gerald til Tryggva: 14. FEBRÚAR 2002 Tölvupóstur frá Tryggva til Jóns Geralds: 4. MARS 2002 Tölvupóstur frá Jóni Gerald til Tryggva: Sæll Tryggvi, takk fyrir póstinn. Í framhaldi af öllum þeim fundum, samtölum og plönum okkar á milli, allt frá 1999 til dagsins í dag, þegar ákveðið var að fara út í það að merkja vörurnar fyrir ykkur, þá tel ég mig búinn að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að þjóna ykkur sem best, bæði viðskiptalega og persónulega. Á undan- förnum mánuðum hef ég látið þig fylgjast grannt með stöðu mála og rekstri Nordica. Það ætti þess vegna ekki að koma á óvart hvernig staðan er hérna megin. Í stuttu máli þá er staðan ekki góð og ég veit ekki hvað ég get meira gert til þess að bæta ástandið eða halda áfram rekstrinum á vöruhúsinu fyrir Baug. Um mánaðamótin nóvember/desember fór ég til Íslands og hitti meðal annars Jón Ásgeir og [nafni sleppt]. Ég sagði þeim að með þessu áframhaldi yrði ég að loka hér eða hækka álagninguna á okkar vörum um 6 prósent miðað við sölu upp á $1,5 milljónir [94,6 milljónir kr.] fyrir árið 2002. Hins vegar voru svör þeirra að þeir ætl- uðu að hafa samband við mig og vera búnir að ákveða einhvert plan því þeir vildu halda þessu áfram hérna megin. Þá var ákveðið að þangað til skyldi ég halda sömu álagn- ingu og var 9,7 prósent. Í framhaldi af því ákváðum við að setja deadline dagsetningu 10. febrúar fyrir feedback af þeirra hálfu. Jón Ásgeir ætlaði að svara mér tveimur dögum seinna og [nafni sleppt] ætlaði að koma með einhver plön fyrir 10. febrúar eins og áður var sagt en í dag er 13. febrúar og ég hef ekkert fengið hvorki frá Jóni Ásgeiri eða [nafni sleppt]. Mér er því mikið í mun að fá að vita hvað þú vilt ræða á þessum fundi næstu viku. Tryggvi minn, þar sem komið er fram í miðjan febrúar hef ég engan annan kost nema að loka hérna nema að þið komið með einhverja lausn á þessu máli og 20. febrúar verður þá of seint fyrir mig. Ískaldar kveðjur frá Miami, Jón Gerald. Sæll Jón. Samkvæmt mínum kokkabókum hafa mál þróast með eftirfarandi hætti og ég vona að þú sért sammála þeirri lýsingu. 1. Haustið 1999 opnaðir þú vöruhúsið eftir áeggjan okkar, því kröfur voru komnar um merkingar á innfluttum matvælum frá USA. 2. Salan á árinu 2000 var minni en gert hafði verið ráð fyrir. Í framhaldi af því létum við þig fá $80-100 þúsund [5 milljónir kr.] (þú ert sjálfsagt með þá tölu). 3. Við Jón Ásgeir hittum þig í janúar 2001 til að ræða viðskiptin á því ári sem var að fara í hönd. Að þínu mati þurfti veltan að vera $2 milljónir [126 milljónir kr.] sem var tvöföldun frá fyrra ári. Ég taldi að hún þyrfti að vera $3 milljónir [189 milljónir kr.] en þar sem þú varst einnig með aðra sölu taldir þú að þessar $2 milljónir [126 milljónir kr.] dygðu. Við lofuðum þér að veltan yrði að minnsta kosti sú fjárhæð, en við myndum stefna að $3 milljónum [189 milljónum kr.]. 4. Illa gekk að klára áætlunina þrátt fyrir að við þrír (Jón Ásgeir, ég og [nafni sleppt]) legðum mikla áherslu á það. Aðrir fram- kvæmdastjórar voru ekki eins seldir á hugmyndina, nema þá helst [nafni sleppt]. 5. Síðasta haust, þegar þú komst hingað, ræddi ég við þig og sagði þér að við myndum ná þessum $2 milljónum [126 millj- ónum kr.]. Það byggði ég á þeim upplýsingum sem ég hafði. Síðar kom í ljós að við vorum langan veg frá því, því miður. 6. Við munum að sjálfsögðu standa við það að bæta þér upp framlegðina sem á vantar upp í $2 milljóna [126 milljóna kr.] sölu. 7. Ástæðan fyrir því að ég lagði til að hitta þig á Orlando mið- vikudaginn 20. febrúar er annars vegar til að fara yfir stöðuna með þér, það er ef ekki dugar að fá mismuninn upp í $2 milljóna [126 milljóna kr.] söluna, og hins vegar að fara yfir önnur mál sem eru enn ókláruð. Eins þarf að fara yfir fram- haldið á viðskiptum við Baug, hvort og þá hvernig að þeim verður staðið. Bið að heilsa [nafni sleppt]. Kveðja Tryggvi. Nöfn þeirra sem ekki tengjast málinu með beinum hætti hafa verið fjarlægð. Framhald tölvupóstsendinga á milli Jóns Geralds og Tryggva birtast í Fréttablaðinu á morgun. LÖGREGLUFRÉTTIR HJÓLHÝSI FÝKUR Stórt hjólhýsi fauk um koll í hávaðaroki á tjald- svæði í Skagafirði á mánudags- morgun. Engin slys urðu á fólki, en hjólhýsið er ónýtt. INNBROT Tvö innbrot voru fram- in í Reykjavík í fyrrinótt. Upp úr klukkan fimm var lögreglunni til- kynnt um innbrot í Europris á Fiskislóð. Þar hafði rúða verið brotin, og fimm flatskjám stolið. Um svipað leyti var tilkynnt um annan þjófnað úr Tæknibæ í Skip- holti, þar sem hurð hafði verið spennt upp og hörðum tölvudisk- um stolið. Málin eru í rannsókn. BÍLVELTA Flutningabíll valt á Suð- urlandsveginum við Rauðavatn um sexleytið í gærmorgun. Öku- maðurinn var fluttur lítið slasað- ur á slysadeild, en bíllinn var fjarlægður með kranabíl. Slökkviliðið í Reykjavík hreinsaði olíu af veginum, og er lögreglan að rannsaka orsök slyssins. Stjórnarmyndunarviðræður í Noregi standa enn yfir: fiátttaka í NATO umdeild Samtök ferðaþjónustunnar: Fagna n‡ju tónlistarhúsi SKIPULAGSMÁL „Við höfum eindreg- ið fagnað þessari framkvæmd og óttumst ekki að þessi nýja ráð- stefnuaðstaða komi til með að skerða viðskipti hjá þeim sem nú þegar reka slíka aðstöðu,“ segir Erna Hauksdótt- ir, framkvæmda- stjóri Samtaka f e r ð a þ j ó n u s t - unnar. Erna segir að hið nýja tónlist- arhús verði hugsanlega til þess að beina meiri athygli að landinu sem góðum valkosti til að halda ráðstefnur og gæti ennfremur orðið til þess að dreifa úr háannatímanum í ferða- þjónustu. - saj ERNA HAUKSDÓTT- IR Framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 4. MARS 2002 Tryggvi svarar samdægurs: Sæll Jón. Ég þarf aðeins betri og ítarlegri skýringar. Þegar þú hringdir í mig á laugardag sagðir þú að við værum með opna ábyrgð hjá þér upp á 30-40 milljónir króna. Á bak við þær væru ekki vörukaup, því þú hefðir þurft að taka lán til að greiða taprekstur undanfarinna ára. Er þetta rétt skilið hjá mér? Ég þarf því að sjá uppgjörin fyrir þessi ár, það er rekstrar- og efnahags- reikninga og skýringar. Þetta kemur okkur verulega á óvart. Eins og málið lítur út gagnvart mér (byggt á þeim upplýsingum sem ég hafði fengið fram til laugardags) þá er það svona: 1. Þú opnaðir vöruhúsið 1999 og að þinni sögn fékkst samþykki eða blessun Jóns Ásgeirs fyrir því. Á sama tíma dregst salan hjá þér sam- an og þú lendir í taprekstri. Þegar við hittumst í maí 2000 er ákveðið að greiða þér $80.000 [5 milljónir kr.] til að standa undir því ári. 2. Við hittumst síðan í janúar 2001. Þá kemur fram (var raunar komið fram áður) að salan var langt undir væntingum. Þú þurftir því $2 milljóna [126 milljóna kr.] sölu til að standa undir rekstrinum. 3. Í síðasta mánuði kemur fram (og var raunar löngu komið fram) að salan 2001 gekk ekki eftir. Salan var $1,3 í stað $2,0 [82 milljónir kr. í stað 126 milljóna kr.]. Munurinn hér er $700 þúsund [44,1 milljónir kr.] og til þess að bæta þér upp þann framlegðarmissi sendum við þér $50 þúsund [3,2 milljónir kr.] Nú er sem sagt staðan sú, ef ég hef skilið laugardagssímtalið rétt, að þrátt fyrir þessar $130 þúsund [8,2 milljónir kr.] hefur þú nýtt ábyrgðir okkar til að taka lán til að mæta rekstrartapi síðustu ára. Þýðir þetta, ef ekkert er gert, að við fáum í hausinn kröfur að fjárhæð $300-$400 þús- und [18,9-25 milljónir kr.]? Ég hlýt að vera að misskilja eitthvað. Í guð- anna bænum útskýrðu það fyrir mér sem allra fyrst.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.