Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 20
Dýralæknanám er háskólanám sem tekur fimm og hálft til sex og hálft ár.
Dýralækningar eru ekki kenndar hér á landi en hægt er að læra þær á hinum
Norðurlöndunum og í ýmsum öðrum Evrópulöndum. Í þeim löndum þar sem
dýralækningar eru kenndar eru þær taldar eitt erfiðasta námið á háskólastigi.[ ]
,,Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Á skipulegan og skjótvirkan
hátt er hægt að margfalda lestrarhraða án þess að það bitni á skilning.
Samfara lestri er námstækni sem nýtir aukin afköst lesturs og tryggir að
það sem lesið er gleymist ekki,, Þorvaldur H. 24 ára lögfræðinemi.
....næsta námskeið hefst 11. október
Skráning er hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Viltu læra að nota ilmkjarnaolíur?
Námskeið um meðferð og notkun ilmkjarnaolía
er að hefjast.
* Áhrif ilmkjarnaolía á líkama og huga
* Blöndun og uppskriftir
* Ítarleg umfjöllun um 20 algengar ilmkjarnaolíur
* Vegleg námskeiðsmappa fylgir
* Allt efni innifalið
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rúna Björk Smáradóttir, ilmkjarnaolíufræðingur.
Upplýsingar og skráning á www.palmarosa.is eða í síma 691 3129 (Rúna)
Aukin ökuréttindi
Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika!
Kennsla á leigu -, vöru -, hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.
Næsta námskeið hefst
5. október.
Upplýsingar og innritun í síma:
567-0300
Ökuskólinn í Mjódd
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
fijónustulundin er fl‡›ingarmikil
Margrét Reynisdóttir, mark-
aðs- og stefnumótunarfræð-
ingur er með klæðskerasaum-
uð námskeið um hvernig
framúrskarandi þjónusta
verður til á vegum símenntar
HR og Iðntæknistofnunar.
Ég mun fjalla um mikilvægi þess
að fólk sýni lipurð, nærgætni og
kurteisi í þjónustustörfum. Það
gildir jafnt um alla hvort sem það
er lögfræðingur, læknir eða af-
greiðslumanneskja á kassa í stór-
markaði. Það er þjónustan sem yf-
irleitt ræður vali neytandans þótt
ótrúlega fáir virðist átta sig á því,“
segir Margrét er hún er spurð um
umræðuefni námskeiðanna.
Henni er greinilega mikið niðri
fyrir og útskýrir efnið nánar. „Oft
eru fleiri en eitt fyrirtæki með
samskonar vöru. Þá getur það ver-
ið framkoma afgreiðslufólks sem
ræður því hvar neytandinn versl-
ar. Síðan er það jákvæð umfjöllun
tryggra viðskiptavina sem laðar
að enn fleiri viðskiptavini. Allt
leiðir þetta til þess að starfsmenn
verða stoltir af vinnu sinni og hafa
meiri ánægju af starfi sínu. Þetta
mun ég leggja áherslu á á nám-
skeiðinu,“ segir hún og heldur
áfram á sömu nótum. „Þegar fyr-
irtæki veita framúrskarandi þjón-
ustu stuðlar það að tryggð sem
leiðir til betri afkomu og vaxtar
fyrirtækis. Ánægðir starfsmenn
eru líklegir til að vera tryggir og
afkastamiklir og starfsmanna-
velta verður lægri en ella. Síðan
geta fyrirtæki sem veita hágæða
þjónustu verðlagt sig hærra en hin
og eru ekki eins viðkvæm fyrir
verðsamkeppni. Allt stuðlar þetta
að bættri afkomu fyrirtækisins,“
segir Margrét sem hefur greini-
lega heilmiklu að miðla.
gun@frettabladid.is
Ánægðir viðskiptavinir skipta öllu máli fyrir rekstur fyrirtækja. Þetta vita fisksalarnir á Sundlaugaveginum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Mælt og stika› í stær›fræ›i
Nemendur Húsaskóla voru í
smáhópum að leysa ýmis
óvenjuleg stærðfræðiverkefni
fyrri partinn í gær. Þeir létu
ekki kuldann úti hafa áhrif á sig
heldur voru líka utanhúss að
mæla og stika, reikna út stærðir
og hlutföll og saga út form.
Stærðfræðiratleikur var á
dagskránni og þar var nú betra
að vera talnaglöggur til að ná
góðum árangri. Eitt af því sem
mælt var var fótastærð og gerð-
ur var samanburður á fótastærð
fólks milli bekkja. Eins og nærri
má geta voru það miklir og
flóknir útreikningar sem þarna
áttu sér stað og voru kennararn-
ir hæstánægðir með frammi-
stöðu krakkanna. ■
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Dagur stærðfræðinnar var haldinn í Húsaskóla í Grafarvogi í
gær. Þar fengu nemendur á miðstigi að leysa alls kyns þrautir.
Ernir, Gunnlaugur, Daníel og Rúnar notuðu daginn í það að búa til líkan af húsi.
Sigurður og Helgi leituðu einbeittir að
formum í náttúrunni.
Sandra Lind mældi hlutföll í andliti
Söndru Mjallar með reglustiku.